Fara í efni

Umhverfis- og skipulagsnefnd

71. fundur
8. janúar 2024 kl. 13:00 - 13:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gunnlaugur Róbertsson formaður
Eyrún Fríða Árnadóttir varaformaður
Þröstur Jóhannsson aðalmaður
Helga Árnadóttir aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagstjóri
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Breyting á íbúðarbyggð ÍB5 á Höfn - Breyting á aðalskipulagi
Málsnúmer 202303122
Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030 er er lögð fram þar sem markmiðið er að stækka íbúðarsvæði ÍB5 á Höfn.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að kynna tillöguna í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þann 10. janúar 2024 kl. 16:00 í Nýheimum og leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði afgreidd í samræmi við 3. mgr. 30. gr. sömu laga.
2.
Breyting á aðalskipulagi - Nýtt verslunar- og þjónustusvæði á Höfn
Málsnúmer 202308017
Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030 er lögð fram þar sem markmiðið er að afmarka nýtt verslunar- og þjónustusvæði á Höfn þar sem koma megi fyrir rýmisfrekri verslunar- og þjónustustarfsemi.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að kynna tillöguna í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga þann 10. janúar 2024 kl. 16:00 í Nýheimum og leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði afgreidd í samræmi við 3. mgr. 30. gr. sömu laga.
3.
Leiðarhöfði - Deiliskipulag
Málsnúmer 202205086
Lögð er fram tillaga að deiliskipulagi Leiðarhöfða.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að kynna tillöguna þann 10. janúar 2024 kl. 16:00 í Nýheimum og leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði auglýst í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
4.
Krosseyjarvegur 2 - undanþága frá hæðartakmörkunum í dsk
Málsnúmer 202312112
Erindi dagsett 19. desember 2023 þar sem sótt er um undanþágu frá hæðartakmörkunum á skilgreindum byggingarreit á Krosseyjarvegi 2. Markmiðið er að koma fyrir frystibúnaði í fjórum 20 feta gámaeiningum ofan á frystinum. Einingarnar verða 1,8 m hærri en skilgreind hámarkshæð í gildandi deiliskipulagi.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að vikið sé frá kröfum 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga varðandi hámarkshæð þar sem um svo óveruleg frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðast í engu hvað varðar landkotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn sbr. 3. mgr. 43. gr. sömu laga. Erindinu vísað til bæjarstjórnar.
5.
Krosseyjarvegur 2 - Breyting á deiliskipulagi
Málsnúmer 202307065
Skinney-Þinganes hf. sótti um breytingu á deiliskipulagi, þann 28. júlí 2023, þannig að gert yrði ráð fyrir uppsetningu búnaðar í nýrri viðbyggingu Krosseyjarvegs 2 til að landtengja skip sem liggja við bryggju.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að vikið sé frá kröfum 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga varðandi viðbyggingu og tengikrana þar sem um svo óveruleg frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðast í engu hvað varðar landkotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn sbr. 3. mgr. 43. gr. sömu laga. Staðsetning bryggjukrana verði ákveðin í samráði við Hafnarstjórn. Málinu vísað til bæjarstjórnar.

6.
Skaftafell III - framkvæmdaleyfi vegna vegalagningar
Málsnúmer 202312100
Erindi dagsett 19. desember 2023 þar sem sótt er um framkvæmdaleyfi f.h. Arctic Circle Hotels ehf. fyrir veglagningu að Skaftafelli 3C í Öræfum.
Fyrirhuguð framkvæmd er í samræmi við aðalskipulag og deiliskipulag. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita framkvæmdaleyfi fyrir vegagerð og efnistöku í námu E75 í samræmi við framlögð gögn skv. 13. grein skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.