Fara í efni

Umhverfis- og skipulagsnefnd

72. fundur
24. janúar 2024 kl. 16:00 - 17:40
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gunnlaugur Róbertsson formaður
Eyrún Fríða Árnadóttir varaformaður
Þröstur Jóhannsson aðalmaður
Helga Árnadóttir aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagstjóri
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Endurskoðun aðalskipulags Múlaþings 2025-2045 - beiðnir um umsagnir
Málsnúmer 202312097
Erindi barst sveitarfélaginu gegnum Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar þann 18. desember 2023. Óskað er eftir umsögn Sveitarfélagsins Hornafjarðar á skipulagslýsingu vegna endurskoðunar Aðalskipulags Múlaþings 2025-2045.Málið er nr. 1030/2023 í skipulagsgátt.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir engar athugasemdir.
2.
Umsagnir við frumvarpi til laga um vindorku - Samtök orkusveitarfélaga
Málsnúmer 202401126
Stjórn Samtaka orkusveitarfélaga hafa sent inn umsögn í samráðsgátt stjórnvalda vegna máls nr. 1/2024, Frumvarp til laga um vindorku.
Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur undir umsögn Samtaka orkusveitarfélaga og felur starfsmanni að koma því á framfæri.
3.
Endurskoðun aðalskipulags Þingeyjarsveitar 2023-2043 - beiðnir um umsagnir
Málsnúmer 202312107
Þingeyjarsveit hefur óskað eftir umsögn sveitarfélagsins Hornafjarðar um vinnslutillögu vegna endurskoðunar aðalskipulags.Málið er nr. 881/2023 í skipulagsgátt.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við vinnslutillögu Aðalskipulags Þingeyjarsveitar 2023-2043.
4.
Færsla Hringvegar í Mýrdal
Málsnúmer 202401130
Í skipulagsgátt er nú til kynningar umhverfismatsskýrsla vegna færslu Hringvegar í Mýrdal. Skoðaðir eru sex valkostir, auk núllkosts, og fela þrír valkostir í sér jarðgögn og þrír fela í sér endurbætur á núverandi Hringvegi að einherjum hluta.Málið er nr. 966/2023 í skipulagsgátt.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að fyrst og fremst eigi að byggja ákvörðun um veglínu á umferðaröryggi. Á þeim forsendum leggur nefndin áherslu á að áfram sé unnið að láglendisvegi með göngum í gegnum Reynisfjall. Mun það auka umferðaröryggi til muna fyrir vegfarendur um svæðið og tryggja betur samgöngur að vetri sem eru Hornfirðingum mjög mikilvægar.
5.
Umferðahraði á Fákaleiru
Málsnúmer 202401013
Lögð er fram áskorun um að bæta umferðaröryggi og huga að almennu aðgengi og tengingum að miðsvæði bak við raðhús Fálkaleiru 11-13 þar sem fyrirhugað er að byggja upp leikvöll.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að vinna málið áfram í tengslum við hönnun á leikvelli og gera tillögur um verklag vegna ábendinga um umferðaröryggismál.
6.
Hraunhóll 4 - Fyrirspurn til skipulagsstjóra
Málsnúmer 202401010
Erindi dagsett 2. janúar 2024 þar sem Rögnvaldur Finnbogason sækir um rekstrarleyfi fyrir Hraunhól 4 í Nesjahverfi.
Skv. aðalskipulagi er Hraunhóll 4 á íbúðasvæði ÍB10. Ekki er heimilt að selja gistiþjónustu í íbúðarbyggð, umfram heimild til heimagistingar í 90 daga á ári skv. 13. gr. reglugerðar nr. 1277/2016.
Umhverfis- og skipulagsnefnd synjar því umsókn um rekstrarleyfi.
7.
Hrafnavellir í Lóni - Breyting á aðalskipulagi
Málsnúmer 202401092
Tekið fyrir erindi frá KOA arkitektum ehf. f.h. landeigenda Hrafnavalla í Lóni. Í gildi er deiliskipulagið Hvammur fyrir svæðið með heimild til byggingar 9 gestahús og einu þjónustuhúsi en samkvæmt aðalskipulagi er svæðið skilgreint sem landbúnaðarland. Óskað er eftir breytingu aðalskipulags þannig að heimilað verði að koma fyrir 10 gistihúsum til viðbótar ásamt starfsmannaaðstöðu og annarri aðstöðu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að breyting verði gerð á gildandi aðalskipulagi.
8.
Álaugarey, hótel - Fyrirspurn til skipulagsstjóra
Málsnúmer 202401093
Lagt er fram erindi dagsett 11. janúar 2024 þar sem Ólöf Gísladóttir og Jóhann Gunnarsson óska eftir að í deiliskipulagsvinnu fyrir Álaugarey, Krossey og nágrenni verði gert ráð fyrir hótelbyggingu á lóð þeirra á Álaugarey, fyrir 100 herbergi.
Umhverfis- og skipulagsnefnd hafnar erindinu. Verslunar- og þjónustustarfsemi á lóðinni er ekki í tengslum við aðra verslunar- og þjónustustarfsemi í bænum. Aðliggjandi er starfsemi sem ekki hentar vel með hótelstarfsemi. Það er álit nefndarinnar að verslun á reitnum ætti að vera víkjandi landnotkun þar sem það er umkringt athafnasvæði.
9.
Heppuvegur 9 - Breyting á aðalskipulagi
Málsnúmer 202312117
Á fundi umhverfis- og skipulagsnefndar þann 20. desember 2023 samþykkti umhverfis- og skipulagsnefnd að breyta aðalskipulagi fyrir Heppuveg 9 og heimila þar uppbyggingu gistihúss.Tillaga að breyttu aðalskipulagi er lagt fram.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir óverulega breytingu á aðalskipulagi skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga þar sem tillagan hafi ekki verulegar breytingar á landnotkun í för með sér eða sé líkleg til að hafa mikil áhrif á einstaka aðila eða hafa áhrif á stór svæði. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
10.
Breyting á íbúðarbyggð ÍB5 á Höfn - Breyting á aðalskipulagi
Málsnúmer 202303122
Í framhaldi af íbúafundi um ÍB5 er tekið til umræðu aðkoma - og samráð við Vegagerðina. Einnig þarf að taka ákvörðun um heiti hverfisins.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að setja upp skoðanakönnun meðal íbúa byggt á framlögðum hugmyndum.
11.
Rauðaberg 2 Lóð 1 - Breyting á aðalskipulagi
Málsnúmer 202310064
Skipulagslýsing vegna breytingar Aðalskipulags Hornafjarðar 2012-2030 var auglýst frá 19. desember 2023 til 15. janúar 2024. Um er að ræða afmörkun nýs verslunar- og þjónustusvæði á lóð Rauðabergs 2/Lóð 1Umsagnir bárust frá RARIK, Skipulagsstofnun, Minjastofnun Íslands og Veðurstofu Íslands.Lögð er fram tillaga að breytingu á aðalskipulagi byggt á skipulagslýsingunni.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að kynna tillöguna í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga og leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði afgreidd í samræmi við 3. mgr. 30. gr. sömu laga.
12.
Rauðaberg 2 Lóð 1 - Deiliskipulag
Málsnúmer 202401073
Skipulagslýsing vegna deiliskipulags Rauðabergs 2 Lóðar 1 var auglýst frá 19. desember 2023 til 15. janúar 2024. Um er að ræða fyrirhugaða uppbyggingu ferðaþjónustu á lóðinni.Umsagnir bárust frá Skipulagsstofnun Minjastofnun Íslands og Veðurstofu Íslands.
Umhverfis- og skipulagsnefnd vísar innkomnum umsögnum í vinnslu deiliskipulagsins.
13.
Skaftafell III-IV - Breyting á aðalskipulagi
Málsnúmer 202401077
Skipulagslýsing vegna breytingar Aðalskipulags Hornafjarðar 2012-2030 var auglýst frá 19. desember 2023 til 15. janúar 2024. Um er að ræða fyrirhugaða aukningu á uppbyggingu ferðaþjónustu á svæðinu. Umsagnir bárust frá RARIK, Skipulagsstofnun, Veðurstofu Íslands, Minjastofnun Íslands og Umhverfisstofnun.Lögð er fram tillaga að breytingu á aðalskipulagi byggt á skipulagslýsingunni.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að kynna tillöguna í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga og leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði afgreidd í samræmi við 3. mgr. 30. gr. sömu laga.
14.
Skaftafell III og IV - Fyrirspurn til skipulagsstjóra
Málsnúmer 202309100
Skipulagslýsing vegna deiliskipulags Skaftafells III og IV var auglýst frá 19. desember 2023 til 15. janúar 2024. Um er að ræða fyrirhugaða uppbyggingu ferðaþjónustu á lóðinni nr. IV. Umsagnir bárust frá RARIK, Skipulagsstofnun og Veðurstofu Íslands Lögð er fram tillaga að breytingu deiliskipulags Skaftafells III og IV.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa deiliskipulagið skv. 41. gr. skipulagslaga samhliða breytingu aðalskipulags. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
15.
Breiðabólstaður 1 - Deiliskipulagsbreyting
Málsnúmer 202401061
Erindi dagsett 29. desember 2023 þar sem Fjölnir Torfason sækir um heimild til að leggja fram breytingu á deiliskipulagi Breiðabólstaðartorfu. Fyrirhugað er að reisa 37 m2 einingahús á lóð Breiðabólstaðar 1 L160112.
Umhverfis- og skipulagsnefnd heimilar umsækjanda að leggja fram breytingu á deiliskipulagi sem verður grenndarkynnt skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
16.
Deiliskipulag Miðsvæði Hafnar
Málsnúmer 201908014
Deiliskipulag fyrir skóla- og íþróttasvæði á Höfn er tekið fyrir að nýju ásamt athugasemdum Skipulagsstofnunar eftir yfirferð skipulagsgagna.Skipulagið var auglýst 13. apríl 2022. Athugasemdarfrestur var til 25. maí en var síðan framlengdur til 5. júní. Ekki náðist að ljúka ferli deiliskipulagsins í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Samhliða deiliskipulaginu eru gerðar breytingar á afmörkun þriggja aðliggjandi skipulaga og samþykkti nefndi breytingu á afmörkun aðliggjandi skipulaga á fundi sínum 12. júní 2023. Nýtt skipulag mun taka yfir hluta þessara skipulaga og eru skipulagsmörk samræmd og skilmálar endurskoðaðir.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að gera breytingar á tillögunni í samræmi við umræður á fundinum.
17.
Deiliskipulag Hafnarvík Heppa - endurskoðun lóðarmarka
Málsnúmer 202312092
Unnið hefur verið tillaga af uppfærslu á lóðarmörkum á svæðinu. Breytingar fela í sér að mestu leyti samræmingu lóðarmarka við notkun viðeigandi hluta svæðis, m.a. m.t.t. göngustíga, opinna svæða og bílastæða.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að gera breytingu að gildandi deiliskipulagi svæðisins, Hafnarvík - Heppa frá 2011, þar sem framlagðar tillögur að breyttum lóðamörkum verða sett fram og kynntar skv. skipulagslögum.

18.
Umsókn um byggingarheimild - Hoffell 3, skemma
Málsnúmer 202311184
Þrúðmar Sigurður Þrúðmarsson sækir um byggingarheimild fyrir geymsluhúsnæði sem fyrirhugað er að reisa að Hoffelli 3 þar sem áður stóð fjárhús. Erindið var grenndarkynnt frá 18. desember 2023 með athugasemdarfresti til 15. janúar 2024. Einnig var óskað eftir umsögn Minjastofnunar sem barst ekki.Engin athugasemd barst.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við að gefið verði út byggingarleyfi á grunni framlagðrar tillögu í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr 123/2010, þegar fullnægjandi gögn hafa borist. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
19.
Tilkynning um framkvæmd - Hafnarbraut 24, breyting á gluggum
Málsnúmer 202401071
Sigríður Kristinsdóttir tilkynnir um framkvæmd er varða breytingar á fyrirkomulagi glugga úr eldhúsi á efri hæð húss að Hafnarbraut 24. Fyrirhuguð er að endurnýja glugga vinstra megin án breytinga og skipta hægra glugga út í hurð, til að koma húsi í upprúnarlegt horft og til að bæta aðgengi að neyðarútgangi. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að heimilt verði að veita leyfi til framkvæmda án deiliskipulagsgerðar þar sem framkvæmdin er í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar, sbr. 1.mgr. 44.gr. skipulagslaga, og að fallið verði frá grenndarkynningu þar sem framkvæmd varði ekki hagsmuni annarra en umsækjanda, sbr. 3.mgr. 44.gr. skipulagskaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
20.
Fiskhóll 11 - Umsókn um deiliskipulagsbreytingu
Málsnúmer 202309040
Breytingar á lóð Fiskhóls 11 voru grenndarkynntar öðru sinni skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 frá 21. desember 2023 með athugasemdarfresti til 21. janúar 2024. Engar athugasemdir bárust.
Helga Árnadóttir vék af fundi undir þessum lið.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagsbreytingu skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
21.
Friðsæld - umsókn um efnistöku
Málsnúmer 202401101
Vegagerðin sækir um framkvæmdarleyfi fyrir viðbótar efnistöku uppá 100.000 m3 úr námunni Friðsæld, E28 skv. aðalskipulagi. Er það til viðbótar þeim 47.500 m3 sem tilgreindir eru í framkvæmdarleyfi vegna Hringvegar nr. 1 milli Hólms og Dynjanda.
Fyrirhuguð efnistaka er í samræmi við Aðalskipulag Hornafjarðar 2012-2030. Ekki er tilgreint hámarks efnistökumagn en flatarmál efnistökusvæðisins er 13 ha. Farið hefur fram mat á umhverfisáhrifum hringvegar milli Hólms og Dynjanda og er fyrirhugað efnismagn innan marka matsins. Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að vinna þurfi deiliskipulag fyrir námuna þar sem lögð sé áhersla á frágang og öryggi. Hægt verður að veita framkvæmdaleyfi þegar deiliskipulag hefur verið staðfest.