Umhverfis- og skipulagsnefnd
73. fundur
7. febrúar 2024
kl.
16:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gunnlaugur Róbertsson
formaður
Eyrún Fríða Árnadóttir
varaformaður
Þröstur Jóhannsson
aðalmaður
Helga Árnadóttir
aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Sigursteinn Ingvar Traustason
Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
umhverfis- og skipulagstjóri
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Menningarstefna 2023
Bæjarráð vísar nýrri menningarstefnu til umsagnar í nefndum sveitarfélagsins. Eyrún Helga Ævarsdóttir fylgir menningarstefnunni eftir.
Lagt fram til kynningar.
2.
Samþykktir um götu- og torgsölu í Sveitarfélaginu Hornafirði
Atvinnu- og menningarmálanefnd ákvað að endurskoða reglur um götu- og torgsölu. Vísaði því til umhverfis- og skipulagsnefndar að rýna staðsetningu á sölusvæðum.
Starfsmönnum falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.
3.
Endurskoðun aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Lagðar fram fundargerðir stýrihóps.
Lagt fram til kynningar.
4.
Skriða - Breyting á aðalskipulagi
Sótt er um breytingu aðalskipulags í landi Skriðu vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar vegahótels, hótels og spa, smáhýsa og starfsmannaaðstöðu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að ræða við umsækjanda og óska frekari gagna í samræmi við umræður á fundinum.
5.
Hoffell, uppbygging ferðaþjónustu
Lögð er fram ósk f.h. landeigenda að Hoffelli 2 að formlegu samtali við sveitarfélagið um uppbyggingu ferðaþjónustu að Hoffelli.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að ræða við umsækjanda og óska frekari gagna í samræmi við umræður á fundinum.
6.
Deiliskipulag Miðsvæði Hafnar
Lagt er fram deiliskipulag fyrir skóla- og íþróttasvæði á Höfn. Samhliða deiliskipulaginu eru gerðar breytingar á afmörkun þriggja aðliggjandi skipulaga, miðbæjarskipulags, knattleikjahúss við Víkurbraut og íbúðarsvæðis á Leirum. Nýtt skipulag mun taka yfir hluta þessara skipulaga og eru skipulagsmörk samræmd og skilmálar endurskoðaðir. Einnig er lögð fram húsakönnun skipulagssvæðisins. Deiliskipulagið var áður auglýst frá 13. apríl til 5. júní 2022 og hefur verið breytt m.t.t. athugasemda Vegagerðarinnar og Skipulagsstofnunar.
Starfsmanni falið að vinna áfram að málinu.
7.
Breyting á deiliskipulagi - Heppuvegur 2a, lóðarmörk og byggingarreitur
Erindi dagsett 22. nóvember 2023 þar sem óskað er eftir stækkun lóðar að Heppuvegi 2a um 70 cm til vesturs. Einnig að byggingarheimild verði aukin að lóðamörkum til að byggja um 35 m2 óupphitaða sólstofu við hús. Í gildi er deiliskipulag Hafnarvík - Heppa.Lögð er fram afstöðumynd sem sýnir fyrirhugaða viðbyggingu.
Gunnlaugur Róbertsson vék af fundi undir þessum lið.
Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur jákvætt í erindið og felur starfsmanni að finna ásættanlega lausn í samráði við umsækjanda. Málinu vísað í vinnslu deiliskipulagsbreytingar fyrir Hafnarvík Heppu þar sem áhersla er lögð á endurskoðun lóðamarka, mál nr. 202312092.
Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur jákvætt í erindið og felur starfsmanni að finna ásættanlega lausn í samráði við umsækjanda. Málinu vísað í vinnslu deiliskipulagsbreytingar fyrir Hafnarvík Heppu þar sem áhersla er lögð á endurskoðun lóðamarka, mál nr. 202312092.
8.
Deiliskipulag íbúabyggðar vegna ÍB5
Lagðar fram tillögur að gatnaheitum fyrir skoðanakönnun meðal íbúa.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir tillögur að nöfnum til að leggja fram í skoðanakönnun fyrir íbúa.
9.
Breiðabólstaður 1 - Deiliskipulagsbreyting
Á fundi nefndarinnar þann 24. janúar 2024 var bókað að heimilt væri að leggja fram breytingu á deiliskipulagi Breiðabólstaðatorfu vegna fyrirhugaðrar byggingar 37 m2 einingahúss á lóð Breiðabólstaðar 1.Lögð er fram óveruleg breyting á deiliskipulagi Breiðabólstaðatorfu þar sem nánar er skýrt tákn fyrir óstaðsetta byggingareiti sem heimilar minniháttar uppbyggingu innan viðkomandi lóða án staðsetts byggingarreits.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að vikið sé frá kröfum 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga varðandi skýringu tákns fyrir óstaðsettan byggingarreit um svo óveruleg frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðast í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn sbr. 3. mgr. 43. gr. sömu laga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
10.
Friðsæld - umsókn um efnistöku
Óskað er eftir framkvæmdaleyfi til að taka 30.000 m3 af efni úr námunni Friðsæld E28 áður en náman verði deiliskipulögð og síðan allt að 70.000 m3 til viðbótar eftir að samþykkt deiliskipulag liggur fyrir.
Umhverfis- og skipulagsnefnd hafnar því að gefa út leyfi fyrir 30.000 m³ áður en að deiliskipulag liggur fyrir. Nefndin telur að liggja þurfi fyrir áhættumat og efnistökuáætlun áður en unnt er að veita leyfið í samræmi við umsögn Umhverfisstofnunar og Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar.