Umhverfis- og skipulagsnefnd
74. fundur
22. febrúar 2024
kl.
16:00
-
18:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gunnlaugur Róbertsson
formaður
Eyrún Fríða Árnadóttir
varaformaður
Þröstur Jóhannsson
aðalmaður
Elías Tjörvi Halldórsson
1. varamaður
Finnur Smári Torfason
1. varamaður
Stefán Birgir Bjarnason
Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
umhverfis- og skipulagstjóri
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Deiliskipulag verslun við aðkomu á Höfn
Kynning á vinnslutillögu að deiliskipulagi á nýju verslunar- og þjónustusvæði.
Lagt fram til kynningar. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að undirbúa deiliskipulagið til auglýsingar.
2.
Deiliskipulag íbúabyggðar vegna ÍB5
Kynnt eru vinnslutillaga að deiliskipulagi á IB5.
Lagt fram til kynningar. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að undirbúa deiliskipulagið til auglýsingar og bæta inn götunöfnum í samræmi við niðurstöður íbúakönnunar sem lýkur mánudaginn 26. febrúar.
3.
Deiliskipulag Miðsvæði Hafnar
Lagt er fram deiliskipulag fyrir skóla- og íþróttasvæði á Höfn. Samhliða deiliskipulaginu eru gerðar breytingar á afmörkun þriggja aðliggjandi skipulaga, miðbæjarskipulags, knattleikjahúss við Víkurbraut og íbúðarsvæðis á Leirum. Nýtt skipulag mun taka yfir hluta þessara skipulaga og eru skipulagsmörk samræmd og skilmálar endurskoðaðir. Einnig er lögð fram húsakönnun skipulagssvæðisins.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa deiliskipulagið skv. 41. gr. skipulagslaga nr 123/2010 samhliða breytingu skipulagsmarka aðliggjandi deiliskipulagssvæða. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
4.
Umsókn um byggingarheimild - Smárabraut 10, viðbygging
Benni Albert Friðþórsson og Eik Aradóttir sækja um byggingarheimild fyrir stækkun á íbúðarhúsi að Smárabraut 10 skv. framlögðum teikningum. Um er að ræða u.þ.b. 50fm tengibyggingu milli húss og bílskúr semkemur til með að innihalda salerni og alrými. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæðið.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að framkvæmdin sé í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Nefndin samþykkir að grenndarkynna umsóknina íbúum að Smárabraut 8 og 12 og Austurbraut 7, 9 og 11, samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga.
5.
Umsókn um byggingarheimild - Álaugarvegur 6, starfsmannabúðir
Sótt er um byggingarleyfi fyrir tímabundnum vinnubúðum á lóð Skinney-Þinganes að Álaugarvegi 6 vegna framkvæmda fyrirtækisins. Um er að ræða 26 stk af 16 feta og 2 stk af 20 feta gámaeiningar með í heild 16 einstaklingsherbergjum, salerniseiningu, sturtueiningu ásamt tæplega 60 m2 kaffi og setustofu. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæðið.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að grenndarkynna umsóknina lóðarhöfum að Krosseyjarvegi 15 og 17, samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga.
6.
Umsókn byggingarleyfi - Dalbraut 2a til 2c, fjölbýlishús
Sótt er um byggingarleyfi fyrir þrjú fjölbýlishús við Dalbraut 2a, 2b og 2c. Grenndarkynnig hefur áður farið fram, en þar sem byggingarleyfi hafi ekki verið gefið út innan eins árs frá afgreiðslu bæjarstjórnar þarf hún fara fram að nýju sbr. 4.gr. 44.gr. skipulagslaga. Ný tillaga gerir ráð fyrir því að húsin munu nýta útsýni betur. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að framkvæmdin sé í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Nefndin samþykkir að grenndarkynna umsóknina íbúum að Dalbraut 2, Dalbraut 4, Austurbraut 19, Austurbraut 20, Smárabraut 20 og Smárabraut 21, samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga.
7.
Umsókn um lóð - Álaugarvegur 10
Melatangi hefur óskað eftir breytingum vegna uppbyggingar á lóð þeirra við Álaugaveg 10.
Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur jákvætt í erindið og felur starfsmanni að ræða við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
8.
Heppuvegur 6 - breyting á aðalskipulagi
Skipulagsstofnun hefur óskað eftir frekari gögnum og telur vafa leika á hvort breytingin geti talist óveruleg. Í breytingartillögu kemur fram að heimila gistingu í allt að 12% húsnæðis. Að mati Skipulagsstofnunr þarf að setja skýrari skipulagsákvæði varðandi umfang gistingar þ.e. tilgreina þarf fjölda gistirúma m.a. til að unnt sé að meta áhrif af breytingunni.
Elías Tjörvi Halldórsson vék af fundi undir þessum lið.
Starfsmanni falið að svara erindinu í samræmi við umræður á fundinum.
Starfsmanni falið að svara erindinu í samræmi við umræður á fundinum.
9.
Breyting á aðalskipulagi
Gistihúsið Seljavellir óskar eftir óverulegri breytingu á aðalskipulagi á landi Seljavalla 2. Óskað er eftir í að færa fjölda gistirýma frá 25 rýmum uppí 30 gistirými á landi Seljavalla 2.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að gera breytingu á aðalskipulagi í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
10.
Sorpmál 2023
Samantekt um stöðu sorpmála.
Lagt fram til kynningar.
11.
Kolefnisspor og loftslagsáætlanir sveitarfélaga
Kynning á verkefni og útreikning á kolefnisspori sveitarfélagsins, samstarfsverkefni á vegum SASS.
Lagt fram til kynningar.
12.
Umhverfisviðurkenning 2023
Auglýst hefur verið eftir tilnefningum til umhverfisverðlauna 2023. Frestur til tilnefninga var til 19. febrúar en engar tillögur bárust.
Umhverfisfulltrúa falið að veita viðurkenningar á menningarhátíð sveitarfélagsins í samræmi við ákvörðun fundarins.
13.
Stjórnsýsla - Umhverfis og skipulagsnefnd, framsal á valdi til fullnaðarafgreiðslu mála
Lagt fram minnisblað um framsal á valdi vegna skipulags- og byggingarmála.
Umhverfis- og skipulagsstjóra falið að vinna málið áfram.
14.
Útiæfingasvæði
Hönnun á útiæfingasvæðum á Höfn við Syðri-Ægissíðuhól og strandstíg við Ekru lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
15.
Umsögn um drög að reglugerð um sjálfbæra landnýtingu
Matvælaráðuneytið kynnir til samráðs drög að reglugerð um sjálfbæra landnýtingu í samræmi við 11. gr. laga um landgræðslu í samráðsgátt stjórnvalda, mál nr. S-3/2024 (https://island.is/samradsgatt/mal/3642)
Starfsmanni falið að vinna umsögn í samræmi við umræður á fundinum og óska eftir samráði.