Umhverfis- og skipulagsnefnd
76. fundur
20. mars 2024
kl.
16:00
-
16:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gunnlaugur Róbertsson
formaður
Eyrún Fríða Árnadóttir
varaformaður
Þröstur Jóhannsson
aðalmaður
Helga Árnadóttir
aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Stefán Birgir Bjarnason
Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Bartek Andresson Kass
byggingarfulltrúi
Fundargerð ritaði:
Bartek Andresson Kass
byggingarfulltrúi
Dagskrá
1.
Smyrlabjörg - Deiliskipulag
Deiliskipulag Smyrlabjarga var tekið fyrir á fundi umhverfis- og skipulagsnefndar eftir auglýsingu þann 6. mars 2024. Umsögn Minjastofnunar barst 4. mars en var ekki færð inn í fundargáttina. Málið er því tekið fyrir á ný og umsögnin lögð fram.
Umhverfis- og skipulagsnefnd frestar afgreiðslu málsins þar til skráningu fornleifa innan svæðisins er lokið og ný umsögn Minjastofnunar liggur fyrir.
2.
Skriða - Breyting á aðalskipulagi
Sótt er um breytingu aðalskipulags í landi Skriðu vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar vegahótels, hótels og spa, smáhýsa og starfsmannaaðstöðu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd frestar málinu. Starfsmanni falið að boða umsækjendur á fund.
3.
Breyting á aðalskipulagi - stækkun miðsvæðis á Höfn
Lögð er fram breyting á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030 þar sem miðsvæði Hafnar er stækkað sem nemur lóð Álaugarvegi 2 og athafnasvæði minnkar að sama skapi. Stofnvegur tekur breytingum í samræmi við deiliskipulagstillögu svæðisins sem auglýst verður samhliða.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að kynna tillöguna í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga og leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði afgreidd í samræmi við 3. mgr. 30. gr. sömu laga.
4.
Deiliskipulag - Víkurbraut 1
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi fyrir Miðsvæði: Víkurbraut 1 og 5, Álaugarveg 2 og Heppuveg 5 og 7. Samhliða eru lagðar fram breytingar á skipulagsmörkum aðliggjandi svæða.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að kynna tillöguna í samræmi við 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
5.
Leiðarhöfði - Deiliskipulag
Tillaga að deiliskipulagi Leiðarhöfða var auglýst frá 24. janúar með athugasemdarfresti til 6. mars 2024.Umsagnir bárust frá Umhverfisstofnun, Náttúrustofu Suðausturlands, Minjastofnun Íslands og Náttúrufræðistofnu Íslands.
Starfsmanni falið að vinna áfram í málinu í samræmi við umræður á fundinum.