Umhverfis- og skipulagsnefnd
77. fundur
8. apríl 2024
kl.
16:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gunnlaugur Róbertsson
formaður
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir
varamaður
Þröstur Jóhannsson
aðalmaður
Helga Árnadóttir
aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
umhverfis- og skipulagstjóri
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Hraðhleðslustöðvar - Fyrirspurn til skipulagsstjóra
Tekin er fyrir fyrirspurn frá Orkusölunni vegna hraðhleðslustöðva við verslunarmiðstöðina á Höfn.
Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur vel í erindið og felur starfsmanni að ræða við umsækjanda.
2.
Seljavellir, vatnsverndarsvæði - Fyrirspurn til skipulagsstjóra
Erindi frá eigendum Seljavalla sem gera athugasemdir við skilgreiningu vatnsverndarsvæða í landi Seljavalla og Árnaness. Einnig er óskað eftir skilgreiningu landbúnaðarlands í endurskoðuðu aðalskipulagi í Hrísey.
Umhverfis- og skipulagsnefnd vísar erindinu í endurskoðun aðalskipulags.
3.
Umsókn um byggingarheimild - Álaugarvegur 6, starfsmannabúðir
Sótt er um byggingarleyfi fyrir tímabundnum vinnubúðum á lóð Skinney-Þinganes að Álaugarvegi 6 vegna framkvæmda fyrirtækisins. Um er að ræða 26 stk af 16 feta og 2 stk af 20 feta gámaeiningar með í heild 16 einstaklingsherbergjum, salerniseiningu, sturtueiningu ásamt tæplega 60 m2 kaffi og setustofu. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæðið.Byggingaráform voru grenndarkynntfrá 28. febrúar með athugasemdarfresti til 28. mars 2024. Engin athugasemd barst.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við að gefið verði út byggingarleyfi á grunni framlagðrar tillögu í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr 123/2010, þegar fullnægjandi gögn hafa borist. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
4.
Hafnarbraut 34 - Umsókn um byggingarleyfi
Erindi frá Reyni Ásgeirssyni þar sem sótt eru m að breyta Hafnarbraut 34 í tvær tveggja herbergja íbúðir sem ætlaðar eru til skammtímaleigu.Skv. aðalskipulagi er lóðin á miðsvæði M1. Í gildi er deiliskipulag miðbæjar Hafnar í Hornafirði og er hluti þess í endurskoðun í deiliskipulagi skóla- og íþróttasvæði Hafnar sem nú er í auglýsingu. Þar segir að heimilt sé að vera með verslun og þjónustu og menningarstarfsemi í húsunum.
Gunnlaugur Róbertsson vék af fundi undir þessum lið.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að framkvæmdin sé í samræmi við gildandi deiliskipulag og samþykkir því framalgða tillögu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að framkvæmdin sé í samræmi við gildandi deiliskipulag og samþykkir því framalgða tillögu.
5.
Breyting á aðalskipulagi - Nýtt verslunar- og þjónustusvæði á Höfn
Breyting aðalskipulags vegna nýs verslunar- og þjónustusvæðis á Höfn var auglýst með athugasemdarfresti frá 15. febrúar til 28. mars 2024. Umsagnir bárust frá Umhverfisstofnun, Náttúrufræðistofnun Íslands, Minjastofnun Íslands og Vegagerðinni.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir breytingu á aðalskipulagi skv. 32. gr. skipulagslaga. Starfsmanni falið að svara umsagnaraðilum. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
6.
Breyting á íbúðarbyggð ÍB5 á Höfn - Breyting á aðalskipulagi
Breyting aðalskipulags vegna íbúðarsvæðisins ÍB5, sem hefur fengið heitið Hagahverfi, var auglýst með athugasemdarfresti frá 15. febrúar til 28. mars 2024.Umsagnir bárust frá Umhverfisstofnun, Náttúrufræðistofnun Íslands, Minjastofnun Íslands og Vegagerðinni.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir breytingu á aðalskipulagi skv. 32. gr. skipulagslaga. Starfsmanni falið að svara umsagnaraðilum. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
7.
Skaftafell III-IV - Breyting á aðalskipulagi
Breyting á aðalskipulagi þar sem er fyrirhugaðuð aukning á uppbyggingu ferðaþjónustu á svæðinu Skaftafell III og IV var send til Skipulagsstofnunar til yfirferðar fyrir auglýsingu þann 1. mars 2024. Skipulagsstofnun hefur heimilað auglýsingu aðalskipulagsbreytingarinnar að undangengnum lagfæringum á gögnunum. Athugasemdir Skipulagsstofnunar ásamt viðbrögðum við þeim eru hér lagðar fram ásamt uppfærðum gögnum.
Umhverfis- og skipulagsnefnd fellst á viðbrögð við athugasemdum Skipulagsstofnunar og felur starfsmanni að auglýsa tillöguna í samræmi við 31. gr. skipulagslaga.
8.
Fyrirspurn til skipulagsstjóra - Silfurbraut
Sótt er um að byggja raðhús á einni hæð með þremur íbúðum á hvor tveggja Silfurbraut 44 og Silfurbraut 46. Hver íbúð verður um 150 m2 að stærð.Í gildi er deiliskipulag þar sem gert er ráð fyrir einbýlishúsum á lóðunum.
Umhverfis- og skipulagsnefnd heimilar umsækjanda að leggja fram tillögu að breytingu deiliskipulags í samræmi við umsókn en nýtingarhlutfall lóðanna skal vera í samræmi við skilmála deiliskipulags.
9.
Lóðir J og K, Útbæ Höfn - Breyting á deiliskipulagi
Lögð er fram tillaga að breytingu Útbæjar á Höfn fyrir lóðina Ránarslóð 3 og lóð J-K. Breytingar verða á byggingarreitum og hámarkshæð hækkar úr 2 hæðum í 3 hæðir auk þess sem lóðir eru sameinaðar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
10.
Háhóll Dilksnes - Breyting á deiliskipulagi
Lagt fram erindi dagsett 4. apríl 2024 þar sem Finndís Harðardóttir óskar eftir óverulegi breytingu á deiliskipulagi Dilknes þar sem byggingarreitur er færður til. Með erindinu er lagt fram samþykki eiganda í nágrenninu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að gera óverulega breytingu á deiliskipulagi í samræmi við framlögð gögn. Nefndin telur að tillagan feli í sér óverulegar breytingar á notkun, nýtingarhlutfalli, útliti og formi svæðisins og að breytingin hafi í engu áhrif á hagsmuni í grennd og því ekki þörf á grenndarkynningu skv. 44. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar þegar fullnægjandi gögn hafa borist.