Umhverfis- og skipulagsnefnd
83. fundur
27. ágúst 2024
kl.
16:00
-
17:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gunnlaugur Róbertsson
formaður
Eyrún Fríða Árnadóttir
varaformaður
Guðbjörg Ómarsdóttir
2. varamaður
Helga Árnadóttir
aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
umhverfis- og skipulagstjóri
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Byggingarleyfisumsókn - Silfurbotn 1, 3, 5 - raðhús
Berglind Gerða Libungan sækir um byggingarleyfi til að reisa steinsteypta þriggja íbúða raðhús á lóðum Silfurbotn 1, 3 og 5. Sótt er um heimild til að fara með þakskyggni út fyrir byggingarreit og 27 cm yfir heimilda hámarkshæð mænis. Auk þess er sótt um heimild til að hafa skorsteinninn um 1,10 m hærra en mæni og hluta lóðar við útvegg lægra en 30 cm undir gólfplötu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að grenndarkynna, fyrir húseigendum á Silfurbraut 19-29 og 31-33, áform um framkvæmdir og frávik frá deiliskipulagi í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
2.
Hreinlætisðastaða á tjaldsvæði á Höfn - Breyting á deiliskipulagi
Sótt er um leyfi f.h. Þjónustumiðstöðvar SKG ehf. til að setja upp tvo gáma fyrir salernis- og baðaðstöðu á tjaldsvæðinu á Höfn.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að gera óverulega breytingu á deiliskipulagi tjaldsvæðis og íbúðarsvæðis við Fiskhól þannig að heimilt verði að staðsetja á lóðinni gáma fyrir salernis- og baðaðstöðu tímabundið þar til viðbygging þjónustuhúss hefur risið. Nefndin telur að tillagan feli í sér óverulegar breytingar á notkun, nýtingarhlutfalli, útliti og formi svæðisins og að breytingin hafi í engu áhrif á hagsmuni í grennd og því ekki þörf á grenndarkynningu skv. 44. gr. skipulagslaga. Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar þegar fullnægjandi gögn hafa borist.
3.
Skilmálar aðalskipulags varðandi ferðaþjónustu á landbúnaðarsvæðum - Fyrirspurn til skipulagsstjóra
Fyrirspurn um túlkun skilmála aðalskipulags varðandi ferðaþjónustu á landbúnaðarsvæðum. Áhugi er til að setja niður 1-2 færanleg hýsi til útleigu gistiplássa.
Skilmálar aðalskipulags eru skýrir um ferðaþjónustu á landbúnaðarsvæðum. Rekstur í samræmi við umsókn er ekki heimil.
4.
Umsókn um heimild til endurnýjunar flugleiðsögubúnaðar á Ingólfshöfða
ISAVIA sækir um heimild til endurnýjunar á CVOR/DME (Fjölstefnuvita) á Ingólfshöfða. Hér er um að ræða eðlilegt viðhald á þessum búnaði, sem fellst í endurnýjun á rafeindabúnað innan dyra og endurnýjun á svo kölluðu jarðneti (e. counterpoise) sem var hluti af þaki hússins en í þessari framkvæmd er það lyft frá þakinu. Verkið verður unnið af starfsmönnum Isavia ANS og Thales Group.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við framkvæmdina og heimilar útgáfu byggingarheimildar án skipulagsgerðar.
5.
Landeignaskrá - Hnappavellir, landskipti
Óskað er samþykkis sveitarfélagsins vegna skiptingar á jörð Hnappavellir í Öræfum, en eigendur jarðarinnar sem er í óskiptri sameign 4 lögbýla eru að skipta með sér hluta hins óskiptalands (öllu ræktuðu landi jarðarinnar). Einnig er verið að staðfesta merkjalínur á milli aðliggjandi jarða Kvískers að austan og Fagurhólsmýrar að vestan. Í landskiptum þessum er ekki verið að stofna neinar nýjar lóðir, hlunnindi verða áfram í óskiptri sameign.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við landskiptagerð, enda samræmist hún skipulagsáætlunum. Nefndin telur að stofnun lóðanna hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga nr. 81/2004. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
6.
Vegur á milli Nesja og Hafnar - Hringtorg
Vegagerðin leggur fram fyrirspurn um hvort breyting á gatnamótum nýs hringvegar og Hafnarvegar kalli á breytingar á aðalskipulagi sveitarfélagsins og einnig hvort sækja þurfi um breytingu á framkvæmdaleyfi.
Í aðalskipulagi er útfærsla gatnamóta ekki tiltekin. Tillögur að hringtorgi eru á sama svæði og gatnamótin eru skilgreind í aðalskipulagi og því ekki þörf á breytingu á aðalskipulagi þó útfærsla gatnamóta breytist. Í framkvæmdaleyfi fyrir hringveg er tiltekið að um T-gatnamót sé að ræða og teikningar sem framkvæmdaleyfi byggir á sýna slíka útfærslu. Umhverfis- og skipulagsnefnd telur því að gera þurfi breytingar eða viðauka við framkvæmdaleyfið þegar afstaða Skipulagsstofnunar vegna breytingar á framkvæmdinni liggur fyrir.
7.
Stækkun athafnasvæðis við Sæbraut 4 - Breyting á aðalskipulagi
Í gildandi aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030 er ósamærmi í afmörkun athafnasvæðisins AT1 milli stafrænna ganga og prentaðra gagna. Misræmið varðar lóð Sæbrautar 4 sem er innan athafnasvæðis miðað við stafræn gögn en utan þess miðað við prentuð gögn.Ástæða er til að eyða óvissu og samræma gögn um landnotkun.
Umhverfis- og skipulagsnefnd vísar málinu í endurskoðun aðalskipulags.
8.
Skriða - Breyting á aðalskipulagi
Skipulagslýsing vegna nýs deiliskipulags og breytingu aðalskipulags fyrir Skriðu í Nesjum var kynnt skv. 30.gr og 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 frá 4. júlí til 12. ágúst 2024. Fyrirhuguð er uppbygging á ferðamannaaðstöðu með gistirýmum, veitingaþjónustu og baðtengdri afþreyingu. Umsagnir og ábendingar bárust frá: Heilbrigðiseftirliti Austurlands, Náttúrufræðistofnun Íslands, Skipulagsstofnun, Umhverfisstofnun, íbúum á Stapa og Minjastofnun Íslands.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að vinna málið áfram.
9.
Skriða - Deiliskipulag
Skipulagslýsing vegna nýs deiliskipulags og breytingu aðalskipulags fyrir Skriðu í Nesjum var kynnt skv. 30.gr og 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 frá 4. júlí til 12. ágúst 2024. Fyrirhuguð er uppbygging á ferðamannaaðstöðu með gistirýmum, veitingaþjónustu og baðtengdri afþreyingu. Umsagnir og ábendingar bárust frá: Rarik, Heilbrigðiseftirliti Austurlands, Náttúrufræðistofnun Íslands, Skipulagsstofnun, íbúum á Stapa og Minjastofnun Íslands.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að vinna málið áfram.
10.
Vegslóði í Staðardal - umsóknum framkvæmdaleyfi
Erindi dagsett 25. júlí 2024 þar sem sótt er um leyfi til lagfæringa á vegslóða í Staðardal í landi Kálfafellsstaðar. Efni verður sótt í efnistökusvæði E57.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að framkvæmdin sé ekki framkvæmdaleyfisskyld eins og hún hefur verið kynnt enda um lagfæringu á núverandi slóða að ræða og áætlað efnismagn fellur undir flokk 1 um efnistöku í aðalskipulagi þar sem heimiluð er efnistaka til eigin nota.
11.
Vinnuskóli Hornafjarðar 2024
Lögð er fram til kynningar lokaskýrsla vinnuskólans fyrir árið 2024.