Umhverfis- og skipulagsnefnd
94. fundur
20. febrúar 2025
kl.
14:30
-
15:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gunnlaugur Róbertsson
formaður
Eyrún Fríða Árnadóttir
varaformaður
Þröstur Jóhannsson
aðalmaður
Helga Árnadóttir
aðalmaður
Finnur Smári Torfason
1. varamaður
Starfsmenn
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
umhverfis- og skipulagstjóri
Xiaoling Yo
Guðrún Agða Aðalheiðardóttir
Fundargerð ritaði:
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
umhverfis- og skipulagsstjóri
Dagskrá
1.
Verkefni umhverfisfulltrúa áætluð fyrir árið 2025
Farið yfir verkefni umhverfisfulltrúa fyrir árið 2025.
Lagt fram til kynningar.
2.
Erindi varðandi dýrahræ í Öræfum
Sveitarfélaginu hefur borist ítrekun á beiðni frá Búnaðarfélagi Hofshrepps um tvö viðbótarílát í Öræfi fyrir dýrahræ, ásamt beiðni um skýringar á förgunarkostnaði dýrahræja.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að ílátum sé fjölgað í samræmi við beiðnina með þeim fyrirvara að kostnaðarauki verði greiddur af notendum. Nefndin bendir á að unnið er að því að setja á fót söfnunarkerfi fyrir dýrahræ á landsvísu sem á að leysa núverandi kerfi af hólmi um næstu áramót. Starfsmanni falið að vinna nánari útfærslu í samráði við Búnaðarfélag Hofshrepps.
3.
Umferðaröryggisáætlun - Endurskoðun - 2025
Umferðaröryggisáætlun 2017-2027 þarfnast endurskoðunar. Lagt er til að fenginn verði ráðgjafi til að vinna uppfærslu á umferðaröryggisáætlun í samvinnu við starfsfólk.
Starfsmanni falið að sækja tilboð í vinnu við endurskoðun að umferðaröryggisáætlun.
4.
Byggingarleyfisumsókn - Júllatún 8 og 10, parhús
Stálgrindarhús ehf óska eftir að byggja 1 parhús við Júllatúni 8 og 10. Hvor íbúð er 100 m2 og bílskúr 30 m2. Heildar byggingarmagn 260 m2.
Gunnlaugur Róbertsson vék af fundi undir þessum lið.
Umhverfis- og skipulagsstjóra er falið að láta vinna óverulega breytingu á deiliskipulaginu og grenndarkynna fyrir nágrönnum.
Umhverfis- og skipulagsstjóra er falið að láta vinna óverulega breytingu á deiliskipulaginu og grenndarkynna fyrir nágrönnum.
5.
Umsókn um endurnýjun skiltis við N1
N1 sækir um endurnýjun á skilti við gatnamót Hafnarbrautar og Vesturbrautar. Skiltið mun verða auglýsingaskilti og hæðin er um 8m og breiddin er um 1,6m.
Gunnlaugur Róbertsson vék af fundi undir þessum lið.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarfulltrúi gefi út byggingarleyfi fyrir endurnýjun á skilti á sama stað og núverandi skilti er.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarfulltrúi gefi út byggingarleyfi fyrir endurnýjun á skilti á sama stað og núverandi skilti er.
6.
Endurskoðun aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Lögð fram tillaga að vinnufundi vegna endurskoðunar aðalskipulags 14. mars kl 10-15.
Fundartími samþykktur og lagt til að bæjarstjórn og varamenn í umhverfis- og skipulagsnefnd fái fundarboð.