Fara í efni

Ungmennaráð Hornafjarðar

106. fundur
3. nóvember 2025 kl. 16:00 - 18:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Selma Ýr Ívarsdóttir
Sindri Sigurjón Einarsson
Sigurður Gunnlaugsson
Björg Kristjánsdóttir
Birta Ósk Sigbjörnsdóttir
Kristján Reynir Ívarsson
Sunna Dís Birgisdóttir
Theódór Árni Stefánsson
Starfsmenn
Emil Örn Moravek Jóhannsson
Fundargerð ritaði:
Emil Morávek verkefnistjóri á fræðslu- og frístundasviði
Dagskrá
1.
Skaftfellingur
Málsnúmer 202509069
Atvinnu- og menningarmálanefnd sveitarfélagsins óskaði eftir því á fundi sínum 22. október að starfsmaður hennar kynni fyrir ungmennaráði útgáfu Skaftfellings sem fyrirhuguð er árið 2026 og óska eftir virkri þátttöku ráðsins.
Ungmennaráð þakkar Kristínu Völu kærlega fyrir áhugaverða og vel heppnaða kynningu. Ráðið er ánægt með að fá tækifæri til að setja sitt mark á Skaftfelling. Ungmennaráð vill jafnframt þakka atvinnu- og menningarmálanefnd fyrir að vísa málinu áfram. Ráðið stefnir á að leggja sitt af mörkum í formi greina eða gagnaöflunar sem tengist verkefninu. Verkefnastjóri leggur til vinnuskipulag þar sem einn fulltrúi ráðsins tekur að sér ritstjórn fyrir hönd hópsins.

2.
HeimaHöfn - Ungt fólk og efling byggða
Málsnúmer 202312038
Heima Höfn - Ungt fólk og efling byggðarÁ síðasta fundi ungmennaráðs kynnti Eyrún Fríða Árnadóttir verkefni sem HeimaHöfn hefur fengið styrk til að vinna en það er kynningarmyndband um ungt fólk og eflingu byggðar. HeimaHöfn vill vinna að verkefninu í samstarfi við ungmennaráð Hornafjarðar bæði er snýr að hugmyndavinnu og framleiðslu myndbandsins og tók ungmennaráð vel í það. Eyrún Fríða fer nú yfir verkáætlun verkefnisins og næstu skref í samstarfinu.
Eyrún Fríða Árnadóttir kynnti fyrir ungmennaráði vinnustofu undir hennar leiðsögn. Vinnustofu þar sem unnið verður að hugmynd að myndbandinu. Ungmennaráð tók vel í tillöguna og lagði til miðvikudaginn 12. nóvember kl. 18:30-21:30. Ungmennaráð þakkar Eyrúnu fyrir gott samtal.
3.
Barna og ungmennaþing 2025
Málsnúmer 202504082
Undirbúningur fyrir Barna- og ungmennaþingið sem haldið verður 18. nóvember gengur vel.Markmiðið er að tryggja breiða þátttöku barna og ungmenna allt upp að 25 ára aldri. Ungemnnaráð hefur lagt til hugmyndir að umræðuefni sem unnið hefur verið úr. Hvernig er hægt að virkja ungmennaráð og nemendafélöginn að ná til ungmenna úr atvinnulífinu?
Rætt var um leiðir til að virkja ungmennaráð og nemendafélög til að ná betur til ungs fólks sem starfar í atvinnulífinu. Fulltrúar ungmennaráðs komu með ýmsar hugmyndir og bentu á einstaklinga og fyrirtæki sem gætu tekið þátt í viðburðinum. Verkefnastjóri mun vinna áfram með þær hugmyndir og hafa samband við þá aðila sem nefndir voru á fundinum.
4.
Ráðstefna þar sem ungmennaráð sveitarfélaga landsins koma samann
Málsnúmer 202510118
Samband íslenskra sveitarfélaga heldur Ungmennaráðstefnu þann 5. desember í Reykjavík.Þar koma saman öll ungmennaráð landsins til að vinna saman, ræða málefni ungs fólks og efla áhrif þeirra í samfélaginu. Ungmennaráð Hornafjarðar á pláss fyrir fimm fulltrúa sem taka þátt í ráðstefnunni.
Farið var yfir dagskrá ráðstefnunnar og skipulag hennar. Í kjölfarið samþykkti ráðið að senda fulltrúa ungmennaráðs Hornafjarðar á ráðstefnuna og felur verkefnastjóra að vinna frekar að málinu, þar á meðal að skipuleggja þátttöku og ferðalagið.
5.
Fulltrúar í fastenefndum fara yfir málin
Málsnúmer 202510010
Fulltrúar ungmennaráðs í fastanefndum sveitarfélagsins kynna umræður og mál sem þeim finnst standa upp úr af fundum nefndanna. Það sem er áhugaverðast eða hefur verið mest umdeilt eða eftirminnilegt.
Fulltrúar fastanefnda kynntu umræður sem fram fóru á fundum þeirra.
Farið var yfir umræður hafnarstjórnar um uppfærslur á Birni lóðs, málefni frá atvinnu- og menningarmálanefnd, sem og fjölda mála frá umhverfis- og skipulagsnefnd. Ráðið fór jafnframt yfir bókanir fræðslu- og frístundanefndar um málefni UMF Sindra, auk fleiri mála. Ljóst er að mikið er að gera í fastanefndum sveitarfélagsins.