Fara í efni

Ungmennaráð Hornafjarðar

109. fundur
2. febrúar 2026 kl. 16:00 - 19:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Selma Ýr Ívarsdóttir
Adam Bjarni Jónsson
Sindri Sigurjón Einarsson
Sigurður Gunnlaugsson
Björg Kristjánsdóttir
Birta Ósk Sigbjörnsdóttir
Kristján Reynir Ívarsson
Sunna Dís Birgisdóttir
Theódór Árni Stefánsson
Starfsmenn
Emil Örn Moravek Jóhannsson
Fundargerð ritaði:
Emil Morávek verkefnistjóri á fræðslu- og frístundasviði
Dagskrá
1.
Ungmennaráð - Fræðslu- og frístundanefnd
Málsnúmer 202303011
Ungmennaráð fundar árlega með fræðslu- og frístundarnefnd þar sem farið er yfir verkáætlun og rætt um undirbúning og framkvæmd samstarfsins. Á fundinum verður meðal annars fjallað um niðurstöður Barna- og ungmennaþingsins frá því í nóvember, framtíðarsýn í skólamálum, uppbyggingu íþrótta- og frístundasvæða og önnur málefni sem tengjast starfssviði nefndarinnar. Ungmennaráð hefur þegar rýnt í helstu áherslur barna- og ungmennaþings en þær snúa meðal annars að bættum aðbúnaði og öryggi, auknu félagslífi og fjölbreyttari samverutækifærum. Markmið fundarins er að eiga uppbyggilegt samtal um niðurstöðurnar og hvernig hægt er að vinna saman að raunhæfum umbótum til framtíðar.
Ungmennaráð þakkar fræðslu- og frístundanefnd kærlega fyrir góðan og uppbyggilegan fund.
Rætt var um mikilvægi heildstæðrar uppbyggingar skóla- og íþróttasvæðis í kringum Grunnskóla Hornafjarðar, þar á meðal endurbætur á skólahúsnæði, útisvæðum og tengdum mannvirkjum. Lögð var áhersla á að skólinn, sundlaug, íþróttamannvirki og útisvæði myndi eina samfellda heild.

Ungmennaráð beindi spurningum að nefndinni um hvenær raunverulegar framkvæmdir hefjist við nýtt íþróttahús á gamla malarvellinum og hvort eitthvað nýtt væri að frétta af því verkefni? Einnig var spurt hvaða kröfur yrðu gerðar um skipulag svæðisins í kringum komandi íþróttahús, grunnskóla og íþróttasvæði?

Umræður urðu um endurhönnun miðsvæðis, sparkvallar, körfuboltavallar, ramps og leiktækja, með áherslu á fjölbreytt og nútímaleg útisvæði. Þá var rætt um mögulega hreystibraut og útiæfingatæki sem gætu tengt saman útisvæði og sundlaugarsvæði þannig að hún gæti nýst bæði almenningi og sundlaugargestum.

Ungmennaráð vísaði einnig til niðurstaðna barna- og ungmennaþings þar sem mikilvægi samverustaða, svo sem bíós, bakarís og samfélagsviðburða kom skýrt fram, og spurði hvaða möguleika pólitíkin sæi í að byggja upp samfélagið með þetta í huga?

Lögð var áhersla á raunverulega aðkomu ungmenna að hönnun þeirra svæða sem um var rætt. Að lokum var rætt um afstöðu nefndarinnar til seinkunar skólabyrjunar með tilliti til mismunandi sjónarmiða og rannsókna.

Samtalinu lauk með góðum umræðum og áherslu á áframhaldandi samráð við ungmenni.
2.
Áskoranir og hvatningar frá Sambandsþingi UMFÍ
Málsnúmer 202512054
Á fundi fræðslu- og frístundanefndar þann 21.01.2026 var erindi frá Ungmennafélagi Íslands (UMFÍ) kynnt. Í erindinu er skorað á á ríki og sveitarfélög að efla lýðheilsu þjóðarinnar með því að hrinda af stað þjóðarátaki í lýðheilsu og forvörnum. Lagt var til að kraftar íþrótta- og ungmennafélagshreyfingarinnar yrðu nýttir til fulls, með áherslu á aukna þátttöku í íþróttum og hreyfingu fyrir alla aldurshópa ásamt fræðslu um forvarnir.Fræðslu- og frístundanefnd tók undir mikilvægi málsins og vísaði því til umræðu hjá ungmennaráði.
Ungmennaráð þakkar fræðslu- og frístundanefnd fyrir að vísa málinu til umræðu í ungmennaráði og tekur undir hvatningu frá sambandsþingi UMFÍ um mikilvægi þess að efla lýðheilsu þjóðarinnar. Ungmennaráð telur mikilvægt að hrinda af stað þjóðarátaki í lýðheilsu og forvörnum þar sem kraftur íþrótta- og ungmennafélagshreyfingarinnar verði nýttur til fulls.

Ungmennaráð leggur til að UMF Sindri verði tekið með í þetta samtal ásamt öðrum íþróttafélögum á svæðinu, líkamsræktarstöðinni og crossfit-stöðinni.
3.
Tilnefning í nefndir og ráð - ungmennaráð
Málsnúmer 202209040
Birta Ósk Sigbjörsdóttir hefur óskað eftir að stíga til hliðar sem áheyrnarfulltrúi ungmennaráðs í fræðslu- og frístundanefnd.
Adam Bjarni Jónsson tekur að sér hlutverk áheyrnarfulltrúa í fræðslu- og frístundanefnd og Selma Ýr Ívarsdóttir heldur áfram sem varamaður.
4.
Ráðstefna þar sem ungmennaráð sveitarfelaga landsins koma samann
Málsnúmer 202510118
Fulltrúar Ungmennaráðs Hornafjarðar sóttu ráðstefnu ungmennaráða sveitarfélaga sem haldin var af Samband íslenskra sveitarfélaga þann 5. desember 2025 á Hilton Reykjavík Nordica. Ráðstefnan var haldin í tilefni af 80 ára afmæli Sambandsins og skapaði mikilvægan vettvang fyrir samráð og samtal við unga íbúa landsins.Á ráðstefnunni komu saman fulltrúar ungmennaráða víðs vegar að af landinu til að ræða málefni sem snerta ungmenni, lýðræði og þátttöku ungs fólks í ákvarðanatöku á sveitarstjórnarstigi. Umræður voru líflegar og byggðu á reynslu, hugmyndum og áskorunum sem ungmennaráð standa frammi fyrir í sínu daglega starfi.Fulltrúar ungmennaráðs Hornafjarðar segja frá ráðstefnunni sjónarmiðum, hugmyndum og verkfæri, sem nýta mætti til að efla enn meira starf ungmennaráðs Hornafjarðar og styrkja þar með rödd ungs fólks í sveitarfélaginu.
Fulltrúum ungmennaráðs Hornafjarðar sem tóku þátt í umræddu þingi þótti þingið mjög gagnlegt, áhugavert og valdeflandi. Ljóst er að ungmennaráð Hornafjarðar stendur mörgum öðrum ráðum framar. Mánaðarlegir fundir og greidd fundarseta eru baráttumál margra ungmennaráða en þykja sjálfsögð hér og því ber að fagna.

Einnig var mjög áhugavert að heyra raddir margra ungmennaráða deila þeirri upplifun að aldrei sé hlustað á þau. Þó að ungmennaráð Hornafjarðar vilji vissulega halda áfram að minna á sig, þá er tilfinningin hér oftast sú að á Höfn í Hornafirði sýni starfsfólk og kjörnir fulltrúar ungmennaráðinu mikinn áhuga og vilji heyra þeirra skoðanir. Enda er það lykillinn að því að ungmennaráð virki vel.
5.
Hornafjörður náttúrulega
Málsnúmer 202301036
Kynningu og samráði vegna endurskoðaðrar stefnu sveitarfélagsins, Hornafjörður Náttúrulega!, er nú lokið eftir fjögurra vikna kynningar- og umsagnaferli. Lagt fram til umræðu og umfjöllunnar.
Ungmennaráð þakkar vel unna endurskoðun stefnunnar og samþykkir fyrirlagðar breytingar.
6.
Skuggakosningar 2026 ( Sveitarstjórnarkosningar)
Málsnúmer 202601015
Kynning á uppsetningu skuggakosninga í tengslum við sveitastjórnakosningar 2026.
Ungmennaráð Hornafjarðar stefnir að því að halda skuggakosningar og er fylgjandi því að kjördagur þeirra verði miðvikudaginn 13. maí, með viðburði í Sindrabæ um kvöldið fyrir þá sem taka þátt í skuggakosningunum.

Horft er til þess að blásið verði til pallborðsumræðna í aðdragandanum, þar sem nemendur í 8. bekk og eldri, allt að 18 ára, komi saman og spyrji frambjóðendur spjörunum úr, ásamt kynningum og öðru viðeigandi efni.

Niðurstöður yrðu síðan kynntar að kvöldi kjördagsins, 16. maí, á samfélagsmiðlum.
Verkefnastjóri vinnur áfram að skipulagi ásamt fulltrúum ungmennaráðs.
7.
Skaftfellingur
Málsnúmer 202509069
Staðan á útgáfu tímaritinu Skeftfellings kynnt.
Selma Ýr Ívarsdóttir tók að sér þetta verkefni á nóvemberfundi ráðsins í kjölfar þess að atvinnu- og menningarmálanefnd óskaði eftir virkri þátttöku ungmennaráðs í fyrirhugaðri útgáfu Skaftfellings árið 2026. Ráðið hefur lýst ánægju með að fá tækifæri til að leggja sitt af mörkum í verkefninu, meðal annars með greinum og gagnaöflun. Selma Ýr mun halda áfram að vinna að þessu verkefni og mun kynna þá nálgun sem hún telur æskilegasta á marsfundi ráðsins.
8.
Fjölbreytileikavikan 2026
Málsnúmer 202601149
Á undirbúningsfundi vegna skipulags Fjölbreytileikavikunnar 2026 var ákveðið að yfirskrift vikunnar í ár verði kærleikur. Á barna- og ungmennaþinginu var mikið talað um að fólki eigi að geta liðið vel en ein mikilvægasta forsenda þess er að fólk eigi í góðum samskiptum. Góð samskipti byggja í grunninn á virðingu, umburðalyndi, skilning og samkennd, eða kærleika. Í ár verður verður fjölbreytileikavikan ekki einungis ein vika heldur einn mánuður. Allur mars mánuður verður helgaður kærleikanum. Markmiðið er að við, fólkið í Sveitarfélaginu Hornafirði, æfum okkur í mars í að sýna kærleika og stuðlum þannig að betra samfélagi fyrir alla. Æfum okkur í að sýna virðingu, skilningi, samkennd og umburðalyndi. Lögð verður áhersla á að virkja skóla, stofnanir, félagasamtök, fyrirtæki og samfélagið allt á fjölbreyttan hátt. Nánara skipulag verður auglýst þegar nær dregur en á þessum fundi verður hugmyndum frá ungmennaráði safnað saman.
Ungmennaráð styður það að kærleikur verði í brennidepli í marsmánuði og vill minna alla á mikilvægi þess að sýna samkennd og virðingu í samfélaginu.
Ungmennaráð mun leggja sitt af mörkum með því að vera virkt á samfélagsmiðlum sínum til að halda umræðunni lifandi og hvetja til jákvæðra samskipta.