Fara í efni

Ungmennaráð Hornafjarðar

113. fundur
1. júní 2026 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Selma Ýr Ívarsdóttir
Adam Bjarni Jónsson
Sindri Sigurjón Einarsson
Sigurður Gunnlaugsson
Björg Kristjánsdóttir
Birta Ósk Sigbjörnsdóttir
Kristján Reynir Ívarsson
Sunna Dís Birgisdóttir
Theódór Árni Stefánsson
Starfsmenn
Emil Örn Moravek Jóhannsson
Ágústa Margrét Arnardóttir
Fundargerð ritaði:
Ágústa Margrét Arnardóttir verkefnistjóri á fræðslu- og frístundasviði
Dagskrá
1.
Leiksvæði, miðsvæði við Heppuskóla
Málsnúmer 202602154
Unnið er að því að byrja að hanna og byggja upp miðsvæðið við Heppuskóla. Nokkrar hugmyndir er upp um það hvernig hægt er að hanna svæðið svo það nýtist bæði nemendum og íbúum sem best. Ein hugmynd er að setja upp hreystibraut, setja nýjan körfuboltavöll, færa hjólabrettarampana við blakvöllinn,bæta við rampi og setja upp "pump track" braut.
Ungmennaráð fagnar þessu og telur þetta bæði þarft og gott. Nokkrir punktar:
Mætti koma grindverk við körfuboltavöllinn, nýjar körfur og á sumum stöðum er undirlagið slæmt.
Skipta þyrfti um undirlag á sparkvelli og setja nýtt net.
Ungmennaráði lýst vel á nýjan ramp, puump track og hreystibraut og umræður sköpuðust um staðsetningu á þessu. Í minnisblaði kemur fram að mögulega verði rampar færðir að Báru/ blakvelli. Ungmennaráð velti fyrir sér hvort pump track færi líka þangað. Er verið að flytja þetta til að tryggja öryggi gangnadi á miðsvæðinu eða annað? Huga þarf vel að staðseningu út frá öryggi.
Ungmennaráð telur að hreystibraut ætti að vera nálægt Heppuskóla og hafa hana stóra með köðlum og öllu. Hún gæti verið þar sem rampar eru núna. Og sniðugt að setja lítið ungbarna/ barna svæði nálægt þannig að yngstu börnin fái sitt svæði og flækist ekki fyrir hreystibraut. Mikilvægt að skipuleggja svæðið þannig að það nýtist enn sem hátíðarsvæði. Ungmennaráð skoðaði loftmynd af miðsvæðinu og velti fyrri sér hvort það eigi eitthvað að koma inn á sundlaugarlóðina. Það mætti nýta það svæði mun betur.
2.
Ungmennaráð 2025-2026
Málsnúmer 202606010
Uppgjör og umræður um starfsárið 2025-2026
Sumir í ungmennaráði hafa verið í mörg ár, aðrir bara eitt ár.
Öll buðu sig fram og voru svo kosin. En í einhverjum tilfellum voru svo fáir sem buðu sig fram að þau voru sjálfkjörin.
Ungmennaráð hittist oftast einu sinni í mánuði, en oftar ef þurfa þykir.
Umræðuefnin hafa verið margskonar og einstaklingunum í ráðinu finnst það besta við að sitja í ráðinu að vita hvað er í gangi í bænum.
Ráðinu finnst vera hlustað á sig og tekið mark á þeim. Og oft hafi þau áhrif.
Það stendur upp úr að hafa fengið að fylgjast með framgangi nýs íþróttahúss.
Það sem er neikvæðast er þegar fundir dragast allt of langt.
Ungmennaráði finnst nýja opna svæðið fyrir aftan Krónuna spennandi. þeim fannst gott að opnunartími sundlaugar var lengdur. Þeim finnst uppbygging Sindrabæjar flott. Þeim finnst Grafíll flott framtak og vilja sjá það vaxa. Ungmennaráði finnst slæmt hvað uppbygging íþróttahúss hefur tekið langan tíma og vona að nýtt hús rísi hratt. Það er líka slæmt að nýji vegurinn er ekki opinn.
Ungmennaráð er þakklátt fyrir fá tækifæri til að hafa áhrif.
3.
Fyrirkomulag ungmennaráðs 2026-2027
Málsnúmer 202606011
Umræður um fyrirkomulag ungmennaráðs 2026-2027
Ungmennaráði finnst skipulagið fínt og fjöldinn góður.
Það er undir einstaklinginum sjálfum komið að hafa metnað fyrir þessu.
Þau eru sátt við launin.
Þeim finnst gott að eiga tækifæri á að vera í öðrum nefndum.
Umræður sköpuðust um val í ráðið. Þau vilja að það sé lýðræðisleg kosning en samt að öll eigi jafna möguleika. Það mætti alveg skoða fyrirkomulagið.