Fara í efni

Ungmennaráð Hornafjarðar

114. fundur
5. október 2026 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Adam Bjarni Jónsson
Theódór Árni Stefánsson
Gerður Lilja Helgadóttir
Daníel Elí Gíslason
Freyja Dís Tjörvadóttir
Áskell Vigfússon
Sigurður Arnar Hjálmarsson
Guðbjörg Dalía Björgvinsdóttir
Vaka Sif Tjörvadóttir
Anton Kristberg Sigurbjörnsson
Starfsmenn
Emil Örn Moravek Jóhannsson
Ágústa Margrét Arnardóttir
Fundargerð ritaði:
Ágústa Margrét Arnardóttir verkefnistjóri á fræðslu- og frístundasviði
Dagskrá
1.
Kynning nefnda og kosningar
Málsnúmer 202609119
Samkvæmt erindisbréfi ungmennaráðs skipar ráðið áheyrnarfulltrúa í fastanefndir sveitarfélagsins.Starfsmenn nefndanna kynntu nefndirnar fyrir ungmennaráði og í kjölfarið tilnefndi ráðið fulltrúa í þær. Með því að hafa fulltrúa ungmenna í fastanefndum er stuðlaða að því að rödd ungs fólks heyrist og ungmenni hafi raunverulega áhrif í ákvarðanatöku innan sveitarfélagsins.
Ungmennaráð fékk kynningar frá formönnum og/eða starfsfólki allra fastanefnda og þakkar kærlega fyrir gagnlegar kynningar.

Ungmennaráð hefur skipað í fastanefndir með eftirfarandi hætti:

Fræðslu- og frístundarnefnd.
Fulltrúi: Freyja Dís Tjörvadóttir
Til vara: Guðbjörg Dalía Björgvinsdóttir

Velferðarnefnd.
Fulltrúi: Vaka Sif Tjörvadóttir
Til vara: Daníel Elí Gíslason

Skipulags- og umhverfisnefnd.
Fulltrúi: Theódór Árni Stefánsson
Til vara: Sigurður Arnar Hjálmarsson

Atvinnu- og menningarmálanefnd.
Fulltrúi: Gerður Lilja Helgadóttir
Til vara: Adam Bjarni Jónsson

Hafnarstjórn.
Fulltrúi: Anton Kristberg Sigurbjörnsson
Til vara: Áskell Vigfússon
2.
Kosning formanns og varaformanns - ungmennaráð
Málsnúmer 202209041
Kosning formanns og varaformanns.
Gerður Lilja Helgadóttir bauð sig fram sem formaður Ungmennaráðs fyrir starfsárið 2026 - 2027 og var kjör hennar samþykkt einróma af fundarmönnum.

Theódór Árni Stefánsson bauð sig fram sem varaformaður Ungmennaráðs fyrir starfsárið 2026 - 2027 og var kjör hans samþykkt einróma af fundarmönnum.
3.
Aðgerðaráætun í lýðheilsu fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð
Málsnúmer 202510124
Sveitarfélagið Hornafjörður hefur frá árinu 2017 tekið þátt í verkefninu Heilsueflandi samfélag undir forystu landlæknisembættisins.



Í fáum orðum þá gengur það út á að efla og bæta hið manngerða umhverfi íbúanna eins og kostur er, draga úr ójöfnuði og draga úr tíðni og afleiðingum langvinnra sjúkdóma með margvíslegu forvarnar og heilsueflingarstarfi.



Verkefnið er einkum tvíþætt. Annars vegar það sem snýr að stefnumótun og starfsemi sveitarfélagsins en horfa þarf með „heilsueflingargleraugum“ á allar stefnur og allar áætlanir sveitarfélagsins.



Hins vegar það sem snýr að viðhorfum og fræðslu.



Það er nefnilega ekki nóg að bjóða upp á góða aðstöðu henni þarf að fylgja fræðsla og hvatning sem stuðlar að jákvæðum viðhorfum til heilsueflandi lífsstíls s.s. fæðuvals, hreyfingar, svefns og félagslegra tengsla.



Í heislueflandi samfélögum á að vera til aðgerðaráætlun um lýðheilsu, og nú á að fara í þá vinnu að búa til þá áætlun. Mikilvægt er að fá sem flesta íbúa sveitarfélagisns að borðinu við þá vinnu. Næstu skref í þeirri vinnu er fyrirlestur og vinnustofa með Ólafi Stafánssyni þann 15. október kl. 20:00.
Ungmennaráð er áhugasamt um aðgerðaráætlun lýðheilsu og hvetur alla íbúa til að taka þátt í gerð aðgerðaráætlunarinnar og mæta á opinn íbúafund og vinnustofu fimmtudaginn 15. október kl. 20:00 í Nýheimum.
4.
Áhrifadagur ungmenna
Málsnúmer 202610014
Í tilefni af 10 ára afmæli Barnvænna sveitarfélaga heldur UNICEF ráðstefnu undir yfirskriftinni Áhrifadagar ungmenna á Akureyri, 28.-29. október. Á þessari ráðstefnu koma saman ungmenni úr ungmennaráðum ásamt starfsfólki sveitarfélaga, kjörnum fulltrúum, og öðrum sérfræðingum, til þess að móta lausnir við áskorunum sem hafa komið fram á barna- og ungmennaþingum sveitarfélaga undanfarin ár.

Sveitarfélaginu Hornafirði býðst að senda allt að fimm fulltrúa úr ungmennaráði á ráðstefnuna.



Á fundinum verður hugur ungmennaráðsfélag til að fara kannaður



Ungmennaráði þykir þetta spennandi tækifæri og ætla að skoða þetta.
5.
Ungt fólk og lýðheilsa 2026
Málsnúmer 202608075
Vaka Tjörvadóttir, Freyja Dís Tjörvadóttir, Adam Bjarni Jónsson og Sigurður Arnar Hjálmarsson segja okkur frá ferð sinni á Reyki á ráðstefnuna Ungt fólk og lýðheilsa.



Dagana 18.?20. september söfnuðust um 80 ungmenni á aldrinum 14?25 ára saman í Skólabúðum UMFÍ á Reykjum í Hrútafirði á ráðstefnunni Ungt fólk og lýðheilsa 2026. Yfirskrift helgarinnar var Blómstrum. Styrkjumst. Tengjumst og var dagskráin, sem Ungmennaráð UMFÍ skipulagði og hefur staðið fyrir árlega frá 2009, byggð upp í kringum spurninguna Hver á þína athygli? Auk þátttakenda fylgdu starfsmenn sveitarfélaga og félagasamtaka hópum sínum, sem og starfsfólk UMFÍ.



Markmið helgarinnar var að skapa öruggan vettvang þar sem ungt fólk gæti eflt félagslega, andlega og líkamlega heilsu sína, tengst öðrum ungmennum og átt milliliðalaust samtal við þingmenn og annað áhrifafólk ? og um leið hvatt til þátttöku í félagsstarfi íþrótta- og ungmennafélagshreyfingarinnar.
Ungmennaráð þakkar góða kynningu frá Vöku Sif, Freyju Dís, Adam og Sigurði um ráðstefnuna Ungt fólk og lýðheilsa á Reykjum í Hrútafirði. Önnur ungmenni eru hvött til að sækja sambærilegar ráðstefnur í framtíðinni.
6.
Tilnefning í Ungmennaráð Suðurlands
Málsnúmer 202109012
Ungmennaráð Suðurlands er samvinnuvettvangur ungmenna á Suðurlandi sem starfar á vegum SASS (Samtök sunnlenskra sveitarfélaga) til að efla rödd unga fólksins í sveitarstjórnarmálum.



Ungmennaáð Suðurlands gefur ungum íbúum tækifæri til að koma skoðunum sínum á framfæri við stjórnvöld og sveitarfélögin á Suðurlandi.



Hlutverk Ungmennaráðs Suðurlands er að efla samstarf og fræðslu ungmennaráða á svæðinu, koma sjónarmiðum ungs fólks á framfæri við stjórn SASS og veita sveitarfélögum endurgjöf um málefni ungs fólks.



Sveitarfélögin 15 á Suðurlandi tilnefna fulltrúa (aðalmann og til vara) í ráðið úr heimabyggð.



Ráðið kemur saman tvisvar á ári (að hausti og vori) og fundar árlega með stjórn SASS.
Ungmennaráð þakkar Örnu Ýr Gunnarssdóttir verkefnastjóra Farsældarráðs Suðurlands kærlega fyrir góða kynningu.

Áskell Vigfússon bauð sig fram sem formaður Ungmennaráðs Suðurlands og var kjör hans samþykkt einróma af fundarmönnum.

Vaka Sif Tjörvadóttir bauð sig fram sem varaformaður Ungmennaráðs Suðurlands og var kjör hennar samþykkt einróma af fundarmönnum.