Ungmennaráð Hornafjarðar
115. fundur
9. nóvember 2026
kl.
16:30
-
18:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Adam Bjarni Jónsson
Theódór Árni Stefánsson
varamaður
Gerður Lilja Helgadóttir
formaður
Daníel Elí Gíslason
Freyja Dís Tjörvadóttir
Áskell Vigfússon
Sigurður Arnar Hjálmarsson
Guðbjörg Dalía Björgvinsdóttir
Vaka Sif Tjörvadóttir
Anton Kristberg Sigurbjörnsson
Starfsmenn
Emil Örn Moravek Jóhannsson
Fundargerð ritaði:
Emil Morávek
verkefnistjóri á fræðslu- og frístundasviði
Dagskrá
1.
Ungmennaráð Hornafjarðar 2026-27
Hvaða málefni vill Ungmennaráð leggja sérstaka áherslu á starfsárið 2026?2027?
Markmið umræðunnar er að efla samheldni innan ungmennaráðs, stuðla að auknum kynnum meðal fulltrúa og skapa vettvang fyrir opinská og uppbyggileg skoðanaskipti.
Jafnframt er markmiðið að ræða hugmyndir, áherslur og stefnumál ráðsins fyrir komandi starfsár og leggja grunn að sameiginlegri sýn á þau málefni sem ráðið vill beita sér fyrir.

Í Ungmennaráði Hornafjarðar sitja í ár ólíkir einstaklingar sem eiga það þó öll sameiginlegt að vilja hafa áhrif og stuðla að því að Hornafjörður verði áfram góður staður til að búa á fyrir fólk á öllum aldri.
Ungmennaráð ræddi áherslur starfsársins 2026 til 2027 og lagði sérstaka áherslu á bætt félagslíf, fjölbreyttari afþreyingu, íþróttir og frístundastarf. Ráðið vill sjá betri íþróttamannvirki, fleiri stutt námskeið þar sem ungt fólk getur prófað ólíkar íþróttir, listir og tómstundir, auk bættrar aðstöðu fyrir eldri ungmenni, svo sem ungmennahúss, samfélagsmiðstöð eða aukinnar opnunar Þrykkjunnar um helgar fyrir eldri ungmenni.
Einnig var lögð áhersla á öryggi, betri gangstéttir, örugg leiksvæði og gott viðhald mannvirkja og umhverfis. Ungmennaráð telur mikilvægt að sveitarfélagið klári þau verkefni sem þegar hafa verið hafin, meðal annars framkvæmdir við Silfurbraut og viðhald og uppbyggingu leikvalla.
Ungmennaráð vill að rödd barna og ungmenna heyrist betur og að hugmyndum þeirra sé fylgt eftir. Ráðið leggur til að komið verði upp aðgengilegum, nafnlausum hugmyndaplaggötum með QR-kóða á stöðum þar sem ungt fólk kemur saman. Verkefnastjóri ungmennaráðs mun vinna að því að koma þessu í framkvæmd og leggja ábendingar reglulega fyrir ráðið.
Að loknu starfsárinu vill ungmennaráð geta séð raunverulegan árangur af starfi sínu, meðal annars í uppbyggingu íþróttaaðstöðu, betra félagslífi og fjölbreyttari afþreyingu. Umfram allt vill ráðið finna að hlustað hafi verið á sjónarmið þess og að þau hafi haft áhrif á ákvarðanir sveitarfélagsins.

2.
Leiktæki á skólalóð
Bæjarráði barst erindi frá nemanda Grunnskóla Hornafjarðar þar sem vakin var athygli á ástandi skólalóðarinnar og óskað eftir úrbótum. Bæjarráð vísaði erindinu til fræðslu- og frístundanefndar og ungmennaráðs til frekari umfjöllunar og mats á þörf fyrir endurbætur á skólalóðinni.
Markmið umræðunnar er að fá fram sjónarmið ungmennaráð hefur á hvaða úrbætur séu mikilvægastar til að bæta aðstöðu, öryggi og leikmöguleika á skólalóð Grunnskóla Hornafjarðar og hvaða úrbætur ætti að setja í forgang.

Ungmennaráð þakkar fyrir að málinu hafi verið vísað til ráðsins og vill jafnframt þakka þeim nemendum sem sýndu frumkvæði með því að vekja athygli á ástandi skólalóðarinnar.
Ráðið minnir á að Hornafjörður er barnvænt sveitarfélag, sem felur meðal annars í sér að börn eigi rétt á að tjá sig frjálslega um málefni sem þau varða og að fullorðnir eigi að hlusta og taka mark á sjónarmiðum þeirra.
Ungmennaráð leggur áherslu á að þörf fyrir viðhald og endurbætur á skólalóð Grunnskóla Hornafjarðar hefur ítrekað verið til umræðu. Sterk og skýr skilaboð komu meðal annars fram á barna- og ungmennaþingi í nóvember 2025. Þá hafa í gegnum tíðina verið ræddar og kynntar ýmsar hugmyndir um úrbætur og telur ráðið mikilvægt að þeim sé fylgt eftir.
Ungmennaráð tekur jákvætt í þær hugmyndir um úrbætur sem fram koma í minnisblaðinu en leggur jafnframt áherslu á mikilvægi opins efniviðar á skólalóðinni. Þótt stór og fjölbreytt leiktæki hafi sitt gildi er opinn efniviður oft ódýrari kostur sem getur skapað fjölbreyttari og skemmtilegri leikmöguleika. Hann gefur börnum tækifæri til að nýta eigið hugmyndaflug, sköpunargleði og frumkvæði, þar sem leikurinn mótast af börnunum sjálfum. Slíkir leikir geta orðið sérstaklega eftirminnilegir og lifað lengi í minningum barna og ungmenna.
Ungmennaráð hvetur eindregið til þess að farið verði í bekki Grunnskóla Hornafjarðar, tillögur að úrbótum kynntar nemendum og leitað beint eftir þeirra hugmyndum og sjónarmiðum. Mikilvægt er að börnin sem nýta skólalóðina daglega fái raunverulegt tækifæri til að hafa áhrif á hvernig hún verður mótuð.
Ungmennaráð hvetur bæjarráð og aðra sem að málinu koma til að fylgja ábendingum barna og ungmenna eftir með raunverulegum úrbótum. Raunverulegt samráð felst ekki aðeins í því að hlusta, heldur einnig í því að sýna hvernig tekið er tillit til sjónarmiða þeirra við ákvarðanatöku og framkvæmdir.

3.
Samningur um uppbyggingu nýs miðbæjar á Höfn
Lögð hafa verið fram drög að samningi milli Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Landsbyggðar hf. um uppbyggingu nýs miðbæjar á Höfn. Bæjarstjórn hefur samþykkt að leggja samningsdrögin fyrir íbúa í ráðgefandi kosningu. Ungmennaráð hefur óskað eftir kynningu á verkefninu og fræðslu um fyrirhugaða íbúakosningu, meðal annars um tilgang hennar og framkvæmd.
Ungmennaráð þakkar Hjalta kærlega fyrir góða kynningu og hvetur alla 16 ára og eldri til að taka þátt í íbúakosningunni!
4.
Barnvænt sveitarfelag, Aðgerðaráætlun 2
Vinna við gerð nýrrar aðgerðaáætlunar í tengslum við verkefnið Barnvænt sveitarfélag er að hefjast á fræðslu- og frístundasviði. Endurskoðun og samþykkt nýrrar aðgerðaáætlunar er liður í því að viðhalda viðurkenningu sveitarfélagsins sem barnvæns sveitarfélags. Markmið umræðunnar er að kynna ungmennaráði verkefnið, fara yfir stöðu fyrri aðgerðaáætlunar og meta árangur þeirra aðgerða sem ráðist hefur verið í. Jafnframt verður farið yfir hvaða aðgerðum er enn ólokið og hvaða áskoranir hafa haft áhrif á framgang þeirra.
Við mótun nýrrar aðgerðaáætlunar verður horft til niðurstaðna barna- og ungmennaþings sem haldið var í nóvember á síðasta ári og þeirra sjónarmiða og tillagna sem þar komu fram. Ungmennaráð skipar veigamikinn sess í mótun aðgerðaráætlunarinnar og verður leiðandi í að leggja til aðgerðir og áherslur. Hvaða áherslur og aðgerðir telur ungmennaráð mikilvægast að verði lagðar til grundvallar í aðgerðaáætlun 2 fyrir Barnvænt sveitarfélag?

Ungmennaráð þakkar verkefnastjóra fyrir góða kynningu á Barnvænu Sveitarfelagi.
Ungmennaráð hlakkar til að fá að takast á við þau verkefni sem fylkjga því að setja saman aðra aðgerðaráætlun og að fylgja henni eftir.

5.
Fulltrúar í fastenefndum fara yfir málin
Fulltrúar fastanefnda fara yfir málin
Áheyrnarfulltrúar úr fastanefndum, umhverfis- og skipulagsnefnd, fræðslu- og frístundanefnd og velferðarnefnd, fóru yfir helstu umræður og málefni sem tekin voru fyrir á fundum nefndanna.