Fara í efni

Ungmennaráð Hornafjarðar

12. fundur
14. október 2015 kl. 16:00 - 17:00
í ráðhúsi
Fundargerð ritaði:
Dagbjört Ýr Kiesel Tómstundafulltrúi
Dagskrá
1.
Kynning á stjórnsýslu sveitarfélagsins
Málsnúmer 201501024
Bryndís Bjarnason kynnti fyrir meðlimum ungmennaráðs stjórnsýsluna og hlutverk starfsmanna í Ráðhúsinu. Meðlimir ráðsins fóru í heimsókn á skrifstofur starfsmanna og fengu að heyra hver helstu verkefni þeirra eru.
2.
Erindisbréf Ungmennaráðs 2015
Málsnúmer 201502032
Farið yfir erindisbréf ráðsins,vinnuskipulag og fyrri störf.
3.
Kjör formanns og varaformanns ungmennaráðs 2015-2016
Málsnúmer 201510032
Ákveðið að fresta kjöri formanns og varaformanns þangað til á næsta fundi vegna slakrar mætingu aðalmanna. Formaður verður því kjörinn þann 11. nóvember 2015.
4.
Frítíminn er okkar fag - Ráðstefna
Málsnúmer 201510034
Ráðstefnan Frítíminn er okkar fag er kynnt í samráði við Margréti Gauju Magnúsdóttur. Hún ásamt tómstundafulltrúa koma til með að sækja ráðstefnuna og bjóða formanni ungmennaráðs að koma með. Ákveðið var að Sunna Guðmundsdóttir myndi sækja ráðstefnuna fyrir hönd ungmennaráðs.
5.
Leiðtoganámskeið
Málsnúmer 201510033
Margrét Gauja Magnúsdóttir kynnti fyrir meðlimum ráðsins verkefnið Oppocing Force. Ungmennaráði er boðið að taka þátt í leiðtoganámskeiði sem fer af stað í lok október. Góðar undirtektir eru hjá meðlimum ráðsins og ákveðið að ungmennaráð taki þátt eftir bestu getu.