Fara í efni

Ungmennaráð Hornafjarðar

13. fundur
11. nóvember 2015 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir aðalmaður
Sunna Dögg Guðmundsdóttir aðalmaður
Þorkell Ragnar Grétarsson aðalmaður
Þórdís María R. Einarsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Dagbjört Ýr Kiesel
Fundargerð ritaði:
Dagbjört Ýr Kiesel Tómstundafulltrúi
Dagskrá
1.
Kjör formanns og varaformanns ungmennaráðs 2015-2016
Málsnúmer 201510032
Sunna Guðmundsdóttir og Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir bjóða sig formlega fram sem formann og varaformann og var það samþykkt einróma. Sunna Guðmundsdóttir situr nú í embætti formanns ungmennaráðs 2015-2016 og Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir í embætti varaformanns.
2.
Umhverfisstefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 201305011
Frestað
3.
Framkvæmdaáætlun í umhverfismálum
Málsnúmer 201309021
Frestað
4.
Verkefni ungmennaráðs 2015-2016
Málsnúmer 201511015
Lögð var fram tillaga um pólitíska vinnuhelgi þar sem ungmennum Hornafjarðar yrði boðið að taka þátt í vinnubúðum. Vinnubúðirnar yrðu haldnar með þeim tilgangi að upplýsa ungt fólk í sveietarfélaginu um stöðu stjórnmálaflokka í landinu. Yrði þetta einn af tveimur liðum í átaki ungmennaráðs til að efla kosningaþátttöku ungs fólks. Í framhaldi af því yrði hugmynd ungmennaráðs varðandi skuggakosningar kynnt.

Ákveðið var að ungmennaráð færi á þessu starfsári í heimsókn í annað ungmennaráð og var Sigríði, Sunnu og Þórdísi falið að vinna undirbúningsvinnu varðandi þá ferð.

Þá var einnig ákveðið að halda áfram með vinnu síðasta starfsárs varðandi ungmennahús. Aðalmenn telja þörf á slíku húsnæði gríðarlega og segja eftirspurn í framhaldsskólanum mikla. Til að leggja áherslu á slíka eftirspurn hafa nefndarmeðlimir ákveðið að lögð verði fram könnun um áhuga og notagildi slíks húsnæðis.

Að lokum var ákveðið að ráðið skyldi gert sýnilegra fyrir almenningi, meðal annars með facebook síðu sem og greinarskrifum og öðru áhugaverðu efni á vefmlðli sveitarfélagsins og í Eystrahorni.