Ungmennaráð Hornafjarðar
14. fundur
16. desember 2015
kl.
15:00
-
17:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir
aðalmaður
Sunna Dögg Guðmundsdóttir
aðalmaður
Þórdís María R. Einarsdóttir
aðalmaður
Ragnar Magnús Þorsteinsson
aðalmaður
Starfsmenn
Dagbjört Ýr Kiesel
Fundargerð ritaði:
Dagbjört Ýr Kiesel
Tómstundafulltrúi
Dagskrá
1.
Umhverfisstefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Ungmennaráð telur nýja umhverfisstefnu sveitarfélagsins bæði jákvæða og uppbyggilega. Sérstaklega telur ráðið mikilvægt að fram fari fræðsla í umhverfismálum samtímans auk upplýsingamiðlunar um gildi sjálfbærrar neyslu. Meðlimir ráðsins telja það jákvætt að menningarminjar verði merktar með fræðsluskiltum. Þá setur ráðið spurningamerki varðandi hreinsunarviku og hreinsunardag. Í meðfylgjandi skýrslu um umhverfisstefnu sveitarfélagsins kemur fram að bæði séu þau haldin á vorin. Varpar því ráðið fram spurningunni hvort hvorki hreinsunarvika né dagur sé haldið að hausti til. Að lokum gerir ráðið athugasemnd um staðsetningu hjólreiðastíga. Niðurstöður frá ungmennaþingi sýndu mikinn áhuga á hjólreiðastíg sem liggur út í Nesjahverfi og leggja nefndarmeðlimir mikla áherslu á að það verði skoðað frekar.
2.
Framkvæmdaáætlun í umhverfismálum
Ungmennaráð telur mjög jákvætt að fegra eigi umhverfi í kringum Mánagarð og Holt. Í ljósi þess að Mánagarður sé nú íþróttamannvirki í mikilli notkun telur ráðið nauðsynlegt að bílastæði þar fyrir framan verði malbikuð. Ráðið telur það einnig mikilvægt að opinberað verði hvar uppbygging hjólreiðastíga fari fram.
3.
Ósk um áheyrnafulltrúa í nefndnum sveitarfélagsins
Ungmennaráð telur nauðsynlegt að ráðið eigi áheyrnarfulltrúa í öðrum formlegum nefndum sveitarfélagsins. Slíkt tíðkast í fleiri ungmennaráðum um land allt en sem dæmi má nefna á ungmennaráð Seltjarnarness áheyrnarfulltrúa í öllum nefndum þar í bæ. Fyrir ungmennaráð að eiga áheyrnarfulltrúa í nefndum stjórnsýslunnar er ekki aðeins valdeflandi fyrir ungt fólk heldur einnig mikilvæg reynsla og þekking fyrir fulltrúa ráðsins, sem og mikilvæg tenging fyrir starfandi nefndir sveitarfélagsins við ungt fólk á Hornafirði. Ráðið vísar málinu áfram til bæjarráðs.
4.
Heimsókn í ungmennaráð Seltjarnarness
Ákveðið hefur verið að ráðið fari í heimsókn í ungmennaráð Seltjarnarness um og uppúr miðjum febrúar 2016. Um er að ræða helgarferð þar sem nefndarmeðlimir fara og hitta meðlimi í ungmennaráði Seltjarnarness og kynnast starfsemi þeirra í von um aukna þekkingu, hugmyndir og sambönd. Ungmennaráð Seltjarnarness er eitt af virkustu ungmennaráðum íslands og því tilvalið að sækja þangað þekkingu ásamt því að miðla okkar reynslu áfram.
5.
Fundur með fræðslu- og tómstundanefnd
Nefndar meðlimir voru almennt mjög sáttir með síðasta fund með fræðslu- og tómstundanefnd. Þó telur ráðið að það væri bæði gott og nytsamlegt að fá uppbyggilega gagnrýni og sterkari skoðanir frá nefndinni er varðar vinnu og hugmyndir ungmennaráðs. Í ljósi þess að ráðið er að stíga sín fyrstu skref sem virkt ráð í stjórnsýslunni er augljóslega margt sem hægt er að læra og betur gera og því er öll leiðsögn vel þegin.