Ungmennaráð Hornafjarðar
17. fundur
13. apríl 2016
kl.
16:00
-
17:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir
varaformaður
Sunna Dögg Guðmundsdóttir
formaður
Þórdís María R. Einarsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Dagbjört Ýr Kiesel
Fundargerð ritaði:
Dagbjört Ýr Kiesel
Tómstundafulltrúi
Dagskrá
1.
Heimsókn í ungmennaráð Hafnafjarðar
Ungmennaráð fór í heimsókn til ungmennaráðs Hafnarfjarðar dagana 7. til 9. apríl 2016. Ungmennaráðin sóttu námskeiðið ,,Sýndu hvað í þér býr" hjá UMFÍ, heimsóttu og fengu kynningu hjá Hinu Húsinu í Reykjavík og hittu jafningjafræðara frá Samtökunum '78 ásamt því að ungmennaráðin fræddu hvort annað um starfsemi sína. Í heildina litið álítur ráðið að ferðin hafi verið vel heppnuð og fræðandi.
2.
Merkingar á opinberum salernum
Ungmennaráð fer fram á að salerni í sveitarfélaginu sem enn tilheyra kynjatvíríki verði gerð kynlaus. Ráðið telur mikilvægt að svo verði til að svara þörfum hin- og kynseginfólks, einstæðra foreldra með börn og aldraðra og fatlaðra sem þurfa á hjálp að halda. Ákveðið að Sigríður Þórunn, Sunna Dögg og Þórdís María vinni áfram að málinu ásamt starfsmanni.
3.
Ungmennaráð óskar eftir skuggakosningum 2016
Stefnt er að skuggakosningum fyrir ungmenni í sveitarfélaginu á aldrinum 13 til 18 ára samhliða forsetakosningum þann 25. júní 2016. Bryndís greindi frá samskiptum við innanríkisráðuneytið vegna skuggakosninganna og var ráðuneytið jákvætt fyrir erindinu. Starfsmönnum er falið að vinna áfram að málinu.
4.
Ungt fólk og lýðræði, ályktun 2016
Dagana 16. - 18. mars 2016 fór fram ungmennaráðstefna UMFÍ Ungt fólk og lýðræði. Yfirskrift ráðstefnunnar í ár var Niður með grímuna - Geðheilsa ungmenna á Íslandi en það voru þær Sunna Dögg Guðmundsdóttir og Þórdís María R. Einarsdóttir sem sóttu ráðstefnuna fyrir hönd ungmennaráðs Hornafjarðar. Það er samhljóma álit ráðsins að ályktunin endurspegli þá gríðarlegu þörf á endurbótum er varðar málefnið og að sveitarfélagið Hornafjörður, eins og svo mörg önnur sveitarfélög, geti staðið betur að geðheilsu ungmenna. Í framhaldi af því var tekin ákvörðun um að vinna frekar að málinu og verður það tekið aftur upp á næsta fundi.
5.
Ósk um áheyrnafulltrúa í nefndnum sveitarfélagsins
Þeir fulltrúar sem setið hafa fundi til áheyrnar í nefndum sveitarfélagsins eru bæði jákvæðir og þakklátir fyrir þau tækifæri sem þeim hafa áhlotnast. Til að stuðla að bættum afköstum og frammistöðu óska áheyrnarfulltrúar eftir frekari aðstoð og kennslu við almenn fundarsköp, til dæmis er varðar fundargáttina, bókanir og annað er viðkemur nefndarfundum.