Ungmennaráð Hornafjarðar
18. fundur
11. maí 2016
kl.
16:00
-
17:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir
varaformaður
Sunna Dögg Guðmundsdóttir
formaður
Þorkell Ragnar Grétarsson
aðalmaður
Þórdís María R. Einarsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Dagbjört Ýr Kiesel
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Dagbjört Ýr Kiesel
Tómstundafulltrúi
Dagskrá
1.
Ungmennaráð óskar eftir skuggakosningum 2016
Ungmennaráð fagnar að bæjarstjórn hefur samþykkt að veita ungmennum í sveitarfélaginu kost á að kjósa í skuggakosningum samhliða forsetakosningum 25. júní 2016.
Ungmennaráð mun sjá um kosninguna í samráði við yfirkjörstjórn sveitarfélagsins.
Reglur um kosninguna liggja fyrir, þar sem fram kemur að ungmennaráð þarf að tilnefna þrjá aðalmenn í kjörstjórn og þrjá til vara. Ráðið mun tilnefna í kjörstjórn ungmennaráðs á næsta fundi sínum.
Ungmennaráð mun standa fyrir kynningum um kosninguna í skólum sveitarfélgasins og með því að senda út kynningarefni sem höfðar til ungs fólks.
Ungmennaráð hefur hafið undirbúning að kosningunni og kosningavöku sem haldin verður í Nýheimum. Á kosningavökunni verða úrslit kosninganna kynnt ásamt því að Emmsjé Gauti skemmtir gestum. Ungmennaráð óskar eftir að bæjarráð veiti ráðinu fjármagn vegna kosninganna og viðburðarins. Starfsmanni er einnig falið að óska eftir fjármagni úr forvarnarsjóði ásamt því að leita eftir öðrum styrktaraðilum.
Ungmennaráð hvetur ungmenni í sveitarfélaginu til að taka þátt í kosningunni og sýna fram á að ungt fólk lætur sig málin varða með því að taka þátt í tilraun til að auka lýðræðislega vitund ungs fólks.