Fara í efni

Ungmennaráð Hornafjarðar

24. fundur
8. mars 2017 kl. 15:00 - 17:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sigrún Birna Steinarsdóttir
Arnar Ingi Jónsson
Wiktoria Anna Darnowska
Starfsmenn
Óskar Bragi Stefánsson
Fundargerð ritaði:
Óskar Bragi Stefánsson Tómstundafulltrúi
Dagskrá
1.
Erindisbréf Ungmennaráðs Suðurlands - umsögn
Málsnúmer 201703001
Farið yfir bréfið. Rætt um tilnefningu fulltrúa ungmennaráðs Hornafjarðar í Ungmennaráð Suðurlands. Lagt fyrir þá sem mættir voru. Engin formleg svör fengust. Gefum málinu frest til 30. mars til úrlausnar.
2.
Erindisbréf Ungmennaráðs 2015
Málsnúmer 201502032
Fulltrúar Grunnskólans og fulltrúar Þrykkjunnar starfi í ungmennaráði á meðan þau eru ennþá í grunnskólanum.
Fundarmenn telja að ákjósanlegast sé að fulltrúar séu ekki eldri en 9. bekkingar - vegna þess að stöðunni þarf að sinna til tveggja ára að lágmarki.

Ákveðið var að fulltrúi Þrykkjunnar sitji í tvö ár, þ.e. frá hausti 2016 fram á haust 2018. Fulltrúi sem kosinn verður 2018 í grunnskóla Hornafjarðar komi úr 9. bekk og sitji í tvö ár.

Sitjandi fulltrúi Grunnskóla Hornafjarðar lætur af störfum haustið 2017, samkvæmt fyrirkomulagi erindisbréfsins.

3.
Ungt folk og lýðræði
Málsnúmer 201703012
Hafdís Lára og Sigrún Birna eru tilnefndar sem fulltrúar ungmennaráðs á ráðstefnuna Ungt fólk og lýðræði á vegum UMFÍ.
Samþykkt af öllum sem mættir voru.
4.
Kosning á fulltrúum úr Heppuskóla í ungmennaráð
Málsnúmer 201703013
Óskar Bragi og Herdís Waage munu kynna fyrirkomulag á kosningu fulltrúa sbr. formlegt Erindisbréf Ungmennaráðs.

Kynningin fer fram á fundi Þrykkjuráðs 15. mars 2017.

Haustið 2018 verður fulltrúi grunnskólans úr 9. bekk og starfar til hausts 2020.
5.
Ungmennahús
Málsnúmer 201701046
Formleg opnun og naf á Ungmennahús.
1. Formleg opnun: Hugmyndir ræddar og fylgt eftir af vinnufundi. Samþykkt að 16. mars verði opnað í fyrsta sinn.

2. Formlegt nafn á ungmennahúsið: Möguleiki ræddur um að grunnskólanemendur stingi upp á nöfnum.

3. Breyting á dagsetningu opnunar: Skipta út þriðjudagskvöldum fyrir fimmtudagskvöld

4. Útboð á yfirhalningu í Vöruhúsinu. Staðan rædd og fulltrúar sammála um mikilvægi þess að endurbætur seu gerðar á húsnæðinu. Ungmennaráð krefst þess að framkvæmdirnar verði settar í forgang vegna þess að sem stendur er ekki vettvangur fyrir félagslega starfsemi ungs fólks.