Ungmennaráð Hornafjarðar
34. fundur
9. maí 2018
kl.
15:00
-
16:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sigrún Birna Steinarsdóttir
formaður
Arndís Ósk Magnúsdóttir
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir
Ingunn Ósk Grétarsdóttir
Íris Mist Björnsdóttir
Sigursteinn Már Hafsteinsson
Starfsmenn
Herdís Ingólfsdóttir Waage
Fundargerð ritaði:
Herdís I. Waage
Tómstundafulltrúi
Dagskrá
1.
Skuggakosningar 2018
Staðan tekin á undirbúningi fyrir skuggaskosningar. Hvaða verkefni þarf að klára og hvaða verkefni er ekki byrjað á?
Undirbúningur fyrir skuggakosningar eru í fullum gangi. Ræddar voru hugmyndir um utankjörstaðaratkvæði og mun ungmennaráð reyna að koma til móts við þau ungmenni sem óskuðu eftir því. Miða við aðsókn og áhuga nemenda á pallborðsumræðunum sem fram fóru 8. maí vonast ungmennaráð til að góð aðsókn verði á kosningadag og bíðum við spennt eftir deginum.
2.
Ungmennaþing 2018
Áformað er að halda ungmennaþing í haust til að kjósa inn nýja meðlimi ungmennaráðs og fara yfir það sem gert hefur verið frá síðasta ungmennaþingi
Stefnt er að því að halda ungmennaþing í september. Undirbúningur mun hefjast í ágúst. Tilnefningar í ungmennaráð Hornafjarðar frá Umf. Sindra og frá atvinnulífinu mega berast til ungmennaráðs fyrir ágúst mánuð. Kosið verður um setu í ungmennaráði annarsvegar frá Grunnskóla Hornafjarðar og hinsvegar frá FAS á ungmennaþinginu sjálfu.
3.
Umhverfisverkefni ungmennaráðs
Sigríður Þórunn lagði fram umhverfisverkefni til kynningar. Meðlimir ungmennaráðs eru mjög opin fyrir verkefninu og vilja helst hefjast handa strax en það verður að bíða þar til eftir skuggakosningar. Verkefnið verður nánar skýrt á uppskerufundi ungmennaráðs í júní :)