Fara í efni

Ungmennaráð Hornafjarðar

35. fundur
6. júní 2018 kl. 15:00 - 16:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sigrún Birna Steinarsdóttir formaður
Svandís Perla Snæbjörnsdóttir
Arndís Ósk Magnúsdóttir
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir
Ingunn Ósk Grétarsdóttir
Íris Mist Björnsdóttir
Angela Rán Egilsdóttir
Starfsmenn
Herdís Ingólfsdóttir Waage
Fundargerð ritaði:
Herdís I. Waage Tómstundafulltrúi
Dagskrá
1.
Skuggakosningar 2018
Málsnúmer 201802038
Fulltrúar að mestu ánægðir með framkvæmdina. Hefði mátt vera með meiri fræðslu innan skólans fyrir kosningar og bætt skipulag. Markmið fyrir næstu skuggakosningar er að ná betur til ungmennanna í sveitunum. Skuggakosningar eru komnar til að vera!
2.
Ungmennaþing 2018
Málsnúmer 201805022
Stefnt er að því að halda ungmennaþing í september 2018. Á þinginu verða kosningar fyrir fulltrúa í ungmennaráð. Fyrri uppsetningar á ungmennaþingi þar sem fyrirlesarar setja þingið og síðan eru málstofur þar sem málefni ungmennanna eru rædd. Hugmyndir komnar með fyrirlesara sem verða auglýstar síðar.
3.
Umhverfisverkefni ungmennaráðs
Málsnúmer 201805023
Sigga kynnir betur verkefnið sitt.
Málinu frestað og verður kynnt fyrir nýju ungmennaráði í haust.
4.
Humarhátíð 2018
Málsnúmer 201804060
Hugmyndir að skemmtilegum atburðum fyrir ungt fólk á Humarhátíð 2018. Allir að leggja höfuðið í bleyti og koma með uppástungur sem komið verður til forsjármanna hátíðarinnar
Hugmyndir ræddar sem fram komu frá ungmennum fyrir ungmenni á Humarhátíð. Fjörugar umræður spunnust um skemmtileg atriði fyrir ungmenni á öllum aldri. Enginn má missa af Humarhátíð í sumar, það verður sko stuð!! Nánar auglýst síðar.