Fara í efni

Ungmennaráð Hornafjarðar

36. fundur
26. september 2018 kl. 15:00 - 17:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Svandís Perla Snæbjörnsdóttir
Arndís Ósk Magnúsdóttir
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir
Ingunn Ósk Grétarsdóttir
Íris Mist Björnsdóttir
Starfsmenn
Herdís Ingólfsdóttir Waage
Fundargerð ritaði:
Herdís I. Waage Tómstundafulltrúi
Dagskrá
1.
Ungmennaþing 2018
Málsnúmer 201805022
Komið er að því að halda árlegt ungmennþing ungmennaráðs með kosningu nýrra fulltrúa í ungmennaráð. Farið var yfir vinnuferli ungmennaþings ásamt því að setja fram drög að málstofum sem og fyrirlesurum. Þau ungmenni sem víkja fyrir nýjum fulltrúum í ungmennaráði eru ekki alveg á því að hætta í ráðinu og leita því allra leiða til að fá að vera áfram. Það er því deginum ljósara að ungmennaráð rokkar!