Ungmennaráð Hornafjarðar
38. fundur
20. nóvember 2018
kl.
15:30
-
17:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Svandís Perla Snæbjörnsdóttir
Arndís Ósk Magnúsdóttir
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir
Ingunn Ósk Grétarsdóttir
Íris Mist Björnsdóttir
Birkir Snær Ingólfsson
Hermann Þór Ragnarsson
Sóley Lóa Eymundsdóttir
Salvör Dalla Hjaltadóttir
Guðný Olga Sigurbjörnsdóttir
Starfsmenn
Herdís Ingólfsdóttir Waage
Fundargerð ritaði:
Herdís I. Waage
Tómstundafulltrúi
Dagskrá
1.
Kynning á stjórnsýslu
Nýjum fulltrúum ungmennaráðs kynnt stjórnsýsla félagsins. Kynning á fundargáttinni frestað til síðar.
2.
Erindisbréf Ungmennaráðs 2017
Nýjum fulltrúum ungmennaráðs kynnt Erindisbréf ungmennaráðs Hornafjarðar ásamt þeim gildum og reglum sem ungmennaráð vinnur eftir.
3.
Skipan ungmennaráðs og kosningar
Fulltrúar ungmennaráðs kusu sér formann og varaformann ungmennaráðs. Sigríður Þ. Þorvarðardóttir var kosinn formaður og Íris Mist Björnsdóttir varaformaður. Ákveðið var í framhaldinu að fundir ungmennaráðs yrðu annan miðvikudag í mánuði kl. 16:00.
4.
Ungmennaþing 2018
Ungmennaráð fór yfir vinnuferli nýafstaðins ungmennaþings. Fulltrúar voru að mestu leiti ánægðir með þingið en alltaf er hægt að bæta það sem gott er. Rætt var hvort þyrfti að breyta skipulaginu fyrir næsta þing og verður það tekið fyrir síðar. Niðurstöður úr málstofum liggja ekki fyrir en ákveðið var að halda vinnufund og útbúa skýrslu sem leggja þarf fram á fundi þann 29.nóvember nk.
5.
Ungmennahús 2018
Ungmennahús var til umræðu og þá helst hvernig væri hægt að hvetja ungmenni á aldrinum sextán til tuttuguogfjögurra ára að nýta sér aðstöðuna. Það virðist brenna við að ungmennin viti ekki af þessum möguleika að geta nýtt sér húsnæði Þrykkjunnar á þriðjudags- og fimmtudagskvöldum. Ungmennaráð impraði á tveimur viðburðum sem hugur er til að halda í ungmennahúsi til að fá ungmennin þangað inn. Þessir viðburðir verða auglýstir síðar. Fyrirspurn um breytingu á tíma ungmennahúss frá fimmtudagskvöldi yfir á föstudagskvöld var hafnað á fundinum.