Ungmennaráð Hornafjarðar
39. fundur
16. janúar 2019
kl.
16:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Svandís Perla Snæbjörnsdóttir
Ingunn Ósk Grétarsdóttir
Íris Mist Björnsdóttir
Hermann Þór Ragnarsson
Sóley Lóa Eymundsdóttir
Guðný Olga Sigurbjörnsdóttir
Starfsmenn
Herdís Ingólfsdóttir Waage
Fundargerð ritaði:
Herdís I. Waage
Tómstundafulltrúi
Dagskrá
1.
Ungmennaþing 2018
Ungmennaráði finnst jákvætt að fá tækifæri til þess að funda með fræðslu-og tómstundanefnd og koma skoðunum sínum á framfæri.
2.
Ungmennahús 2018
Ungmennaráð telur að helst vanti að auglýsa ungmennahús. Mörg ungmenni á aldrinum 16-25 ára hafa ekki hugmynd um að hægt sé að fara í ungmennahúsið til að hitta vini og hafa gaman. Einhver mæting hefur verið þegar viðburðir eru í gangi en það er alltaf hægt að bæta mætinguna. Ungmennaráð mun vinna í því að auglýsa ungmennahús.
3.
Umhverfisverkefni ungmennaráðs
Ungmennaráð þarf að fara að huga að umhverfisverkefninu sem lagt var fram til kynningar 2018.
Sigga formaður ungmennaráðs var með okkur á fundinum á Skype. Kynnti hún umhverfisverkefnið fyrir nýjum meðlimum ungmennaráðs. Einhverjar breytingar verða gerðar á verkefninu áður en farið verður af stað með það út í samfélagið. Mjög áhugavert og þarft umhverfisverkefni sem mun fara af stað mjög fljótlega. Verður auglýst nánar þegar farið verður í verkefnið sem er mjög fljótlega.
4.
Ungmennaráð 2018-2019
Ungmennaráð hélt jólabingó í golfskálanum fyrir jól. Mjög góð mæting var í bingóið og vilja þau þakka fyrir mætinguna. Hugur er að halda annað bingó því enn eru til flottir vinningar. Í desember stóð ungmennaráð fyrir kynningu/fyrirlestri í ungmennahúsi. Gestur þeirra og fyrirlesari var Najmo Fiyasko en hún er er tvítugur nemi í Fjölbrautarskólanum við Ármúla. Hún kom hingað til lands ein á báti þegar hún var sextán ára eftir að hafa flúið heimaland sitt Sómalíu, þegar átti að gefa hana í hjónaband einungis þrettán ára gamla. Einhver ungmenni mættu á þennan viðburð og fór hann vel fram með góðum umræðum og upplýsingum. Það er aldrei lognmolla í kringum ungmennaráð og má segja að þau séu stútfull af hugmyndum um ný verkefni/uppákomur sem verða framkvæmdar þegar rétt færi gefast.