Fara í efni

Ungmennaráð Hornafjarðar

45. fundur
23. september 2019 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir
Ingunn Ósk Grétarsdóttir
Íris Mist Björnsdóttir
Birkir Snær Ingólfsson
Hermann Þór Ragnarsson
Starfsmenn
Herdís Ingólfsdóttir Waage
Fundargerð ritaði:
Herdís I. Waage Tómstundafulltrúi
Dagskrá
1.
Ungmennaþing 2019
Málsnúmer 201905026
Stefnt var að því að halda ungmennaþing nú í september. Fastlega er búist við því að það gangi ekki upp heldur verðum við að halda það í október.
Dagsetning ungmennaþings ákveðin og verður hún lögð fram til samþykkis hjá skólastjóra FAS og Grunnskóla Hornafjarðar. Dagskrá þingsins sett upp en þingið verður með öðru sniði en síðustu ár. Engir aðkeyptir fyrirlesarar verða nú í ár heldur var ákveðið að fá fólk á staðnum til að upplýsa nemendur um þema hverrar málstofu fyrir sig. Með þessu móti er vonast til að fá skýrari hugmyndir frá ungmennunum um það sem þeim finnst ábótavant eða gott í hverjum málaflokki fyrir sig. Jafnframt má ekki gleyma því að kosið er í nýtt ungmennaráð á ungmennaþinginu. Hvetjum við því nemendur í 8.-10.bekk grunnskólans og nemendur í FAS að bjóða sig fram til setu í ungmennaráði.
2.
Önnur mál ungmennaráðs
Málsnúmer 201902023
Ráðabrugg málþing ungmennaráða í Rvk. 27. sept.Á réttu róli spurningar fyrir ungmennaráð vegna skólaþings 4.nóvember í Rvk.
1) Ráðabrugg. Vegna mikilla anna hjá fulltrúum ungmennaráðs getum við því miður ekki tekið þátt í Ráðabruggi - málþingi ungmennaráða sem haldið verður í Reykjavík 27. september.

2) Á réttu róli? Ungmennaráð Hornafjarðar fékk líkt og önnur ungmennaráð á landinu öllu sendar fjórar spurningar til umfjöllunar í ungmennaráðinu. Spurningarnar fjalla um framtíð skólastarfs á Íslandi og munu svör ungmennaráða verða tekin saman og niðurstöður sem og tillögur sem fram koma verða svo kynntar á skólaþingi sveitarfélaga sem fram fer 4.nóv.nk. Ungmennaráð Hornafjarðar mun vitanlega svara þessum spurningum og koma svörunum/tillögunum á framfæri.