Fara í efni

Ungmennaráð Hornafjarðar

47. fundur
13. nóvember 2019 kl. 16:00 - 17:10
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Svandís Perla Snæbjörnsdóttir
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir
Ingunn Ósk Grétarsdóttir
Íris Mist Björnsdóttir
Birkir Snær Ingólfsson
Sóley Lóa Eymundsdóttir
Björgvin Freyr Larsson
Tómas Nói Hauksson
Stígur Aðalsteinsson
Selma Ýr Ívarsdóttir
Ólöf Ósk Guðnadóttir
Starfsmenn
Herdís Ingólfsdóttir Waage
Fundargerð ritaði:
Herdís I. Waage Tómstundafulltrúi
Dagskrá
1.
Kynning á stjórnsýslu sveitarfélagsins
Málsnúmer 201710012
Bryndís Bjarnason kynnir fyrir nýjum fulltrúum ungmennaráðs stjórnsýsluna.
Bryndís Bjarnason kynnti starfsemi stjórnsýslu sveitarfélagsins.
2.
Erindisbréf Ungmennaráðs 2017
Málsnúmer 201704091
Erindisbréf ungmennaráðs lagt fram til kynningar.
3.
Skipan ungmennaráðs og kosningar
Málsnúmer 201811054
Fulltrúar ungmennaráðs kjósa formann og varaformann ráðsins
Ungmennaráð Hornafjarðar 2019-2020 kaus sér nýjan formann og varaformann. Formaður ungmennaráðs er Ingunn Ósk Grétarsdóttir og Íris Mist Björnsdóttir er varaformaður.
4.
Ungmennaþing 2019
Málsnúmer 201905026
Farið verður yfir niðurstöður ungmennaþings sem haldið var 24. október. Niðurstöður þingsins verða kynntar þann 18.12. fyrir fræðslu- og tómstundanefnd
Fulltrúar ungmennaráðs 2018-2019 setja saman kynningu á niðurstöðum ungmennaþings. Nýtt ungmennaráð 2019-2020 mun fá tíma til að kynna sér efni og innihald niðurstaðnanna áður en þær verða kynntar fræðslu- og tómstundanefnd. Grunnskóli Hornafjarðar og FAS munu einnig fá niðurstöður ungmennaþingsins til skoðunar og upplýsinga.
5.
KNOW HUBs
Málsnúmer 201911026
Hugrún Harpa Reynisdóttir frá Nýheimum þekkingarsetri kom og kynnti fyrir ungmennaráði verkefnið KNOW HUBs og bauð jafnframt ungmennaráði að taka þátt í viðburði vegna verkefnisins í byrjun desember. Áhugavert og spennandi verkefni þarna á ferð.