Ungmennaráð Hornafjarðar
48. fundur
11. desember 2019
kl.
16:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir
Ingunn Ósk Grétarsdóttir
Íris Mist Björnsdóttir
Birkir Snær Ingólfsson
Björgvin Freyr Larsson
Tómas Nói Hauksson
Stígur Aðalsteinsson
Selma Ýr Ívarsdóttir
Starfsmenn
Herdís Ingólfsdóttir Waage
Fundargerð ritaði:
Herdís I. Waage
Tómstundafulltrúi
Dagskrá
1.
Ungmennaþing 2019
Farið yfir kynningu á niðurstöðum ungmennaþings
Farið var yfir niðurstöður ungmennaþings. Ungmennaráð er ánægt með þátttöku nemenda og niðurstöður þingsins. Af nógu er að taka til að framkvæma/uppfylla. Ungmennaráð mun því velja eitt til tvö verkefni og leita leiða til að koma þeim í framkvæmd á vordögum 2020.
2.
KNOW HUBs
KNOW HUBs námskeiðið sem haldið var í byrjun des.
Nýheimar þekkingarsetur hélt KNOW HUBs námskeið í byrjun desember og bauð fulltrúum ungmennaráðs að taka þátt. Þeir fulltrúar sem gátu sótt námskeiðið voru almennt mjög ánægðir með námskeiðið og þóttu vel að því staðið.
3.
Áheyrnarfulltrúar fastanefnda 2020
Ungmennaráð leitar eftir ungu fólki sem er reiðubúið að taka að sér að vera áheyrnafulltrúar í fastanefndum.
Leitað er eftir ungmennum sem eru reiðubúnir til að vera áheyrnarfulltrúar í fastanefndum sveitarfélagsins. Hver fastanefnd heldur fund 1x í mánuði og er ætlast til þess að sá sem gefur sig fram til að sitja sem áheyrnarfylltrúi gefi sér tíma til þess, ella kalli á varamann fyrir sig svo alltaf séu áheyrnarfulltrúar til staðar. Strax buðu þrír fulltrúar fram krafta sína og fleiri fulltrúar ungmennaráðs ætla að ígrunda málið.
4.
Önnur mál ungmennaráðs
Farið yfir reglur um mætingar fulltrúa ungmennaráðs á hina ýmsu viðburði. Á að gera eitthvað jóla jóla?
Að sitja í ungmennaráði er ekki einungis að mæta á fund einu sinni í mánuði. Ungmennaráði fylgja einnig vinnufundir þar sem vinna þarf úr verkefnum, þátttaka á hinum og þessum viðburðum/námskeiðum og ýmislegt annað. Það er því oftast nóg að gera til viðbótar við aðrar tómstundir og íþróttir. Fulltrúar eru hvattir til að reyna að mæta á sem flesta auka viðburði/fundi svo vinnan leggist ekki einungis á fáa fulltrúa sem mæta alltaf. Málshátturinn "Margar hendur vinna létt verk" stendur alltaf fyrir sínu.
Jóla hvað?
Í desember í fyrra hélt ungmennaráð jólabingó sem var vel sótt. Undirbúningur þess hófst um mitt haust til að safna vinningum og skipuleggja bingóið. Nú hafa fulltrúar verið að fá spurningar þess eðlis hvort ekki eigi að halda jólabingó aftur. Því miður verður ekki af því í ár en stefnan er sett á eitthvað virkilega spennandi fyrir árið 2020. Svo við hvetjum fólk til að fylgjast vel með fundargerðum ungmennaráðs :)
Jóla hvað?
Í desember í fyrra hélt ungmennaráð jólabingó sem var vel sótt. Undirbúningur þess hófst um mitt haust til að safna vinningum og skipuleggja bingóið. Nú hafa fulltrúar verið að fá spurningar þess eðlis hvort ekki eigi að halda jólabingó aftur. Því miður verður ekki af því í ár en stefnan er sett á eitthvað virkilega spennandi fyrir árið 2020. Svo við hvetjum fólk til að fylgjast vel með fundargerðum ungmennaráðs :)