Ungmennaráð Hornafjarðar
50. fundur
10. febrúar 2020
kl.
16:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir
Ingunn Ósk Grétarsdóttir
Íris Mist Björnsdóttir
Birkir Snær Ingólfsson
Björgvin Freyr Larsson
Tómas Nói Hauksson
Selma Ýr Ívarsdóttir
Starfsmenn
Herdís Ingólfsdóttir Waage
Fundargerð ritaði:
Herdís I. Waage
Tómstundafulltrúi
Dagskrá
1.
Ungt fólk og lýðræði 1.-3.apríl 2020
Ráðstefnan ungt fólk og lýðræði verður haldin daga 1.-3. apríl á Laugarvatni. Okkur býðst til að skrá 2 ungmenni á ráðstefnuna. Fyrstur kemur, fyrstur fær... Verðum að drífa okkur að skrá
Ráðstefnan kynnt fyrir ungmennaráði og þau hvött til að taka þátt. Tveir sýndu áhuga fyrir því að fara en ekki er hægt að skrá ungmennin fyrr en leyfi foreldra liggja fyrir.
2.
Barnvænt sveitarfélag: Innleiðing barnasáttmála SÞ
Kynning á barnvænlegu sveitarfélagi. Farið yfir innleiðingarferli.
Hjördís Eva kynnti markmið með verkefninu Barnvæn sveitarfélög og innleiðingarferli þess fyrir Fræðslu- og tómstundanefnd og Ungmennaráði saman. Ungmennaráð hlakkar til að fá að taka þátt í þessu verkefni sem vonandi verður samþykkt að innleiða hér í Sveitarfélaginu Hornafirði.
3.
Kynning umhverfisfulltrúa fyrir ungmennaráð
Anna Ragnarsdóttir Pedersen kemur á fundinn og kynnir sig fyrir ungmennaráði og fer yfir verkefni sem hún er að vinna að.
Umhverfisfulltrúinn Anna Ragnarsdóttir Pedersen kom, sá og sigraði ungmennin í ungmennaráði með kynningu á sjálfri sér og þeim umhverfisverkefnum sem hún er að kynna sér í sveitarfélaginu. Þó nokkrar umræður áttu sér stað um hin ýmsu umhverfismál. Búast má við að ungmennaráð nýti sér þekkingu umhverfisfulltrúa við næstu umhverfismál sem ungmennaráð hefur hug á að vinna í.
4.
Önnur mál ungmennaráðs
1.) Kynning á umsókn vegna fyrirhugaðs loftlagsverkefnis sem ungmennaráð mun taka þátt í.2.) Vinnufundur vegna orkudrykkjakönnunar ungmennaráðs3.) Erindisbréf stýrihóps Heilsueflandi samfélags
1.) Kynning á umsókn vegna fyrirhugaðs loftlagsverkefnis frestað til næsta fundar.
2.) Ungmennaráð hélt vinnufund þann 5. febrúar þar sem allur hópurinn mætti til að undirbúa könnun sem þau ætla að leggja fyrir börn og ungmenni grunn- og framhaldsskóla um neyslu orkudrykkja. Könnunin verður rafræn og órekjanleg. Ungmennaráð býst við að leggja hana fyrir í skólunum í mars/apríl en enn er eftir að skoða hvernig fyrirlögnin fari best fram og afla leyfa frá foreldrum ef þess þarf.
3.) Erindisbréf stýrihóps Heilsueflandi samfélags kynnt fyrir ungmennaráði. Í stýrihópinn vantaði fulltrúa frá ungmennaráði og bauð Ingunn Ósk Grétarsdóttir sig fram til að starfa í stýrihópnum.