Fara í efni

Ungmennaráð Hornafjarðar

51. fundur
18. mars 2020 kl. 16:00 - 17:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir
Ingunn Ósk Grétarsdóttir
Íris Mist Björnsdóttir
Birkir Snær Ingólfsson
Björgvin Freyr Larsson
Stígur Aðalsteinsson
Selma Ýr Ívarsdóttir
Ólöf Ósk Guðnadóttir
Starfsmenn
Herdís Ingólfsdóttir Waage
Fundargerð ritaði:
Herdís I. Waage Tómstundafulltrúi
Dagskrá
1.
Ungt fólk og lýðræði 1.-3.apríl 2020
Málsnúmer 202002015
Ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðræði átti að fara fram dagana 2.-4.apríl. Vegna samkomubanns er búið að seinka ráðstefnunni fram á haust.
Ungmennráði kynnt að UMFÍ ráðstefnan Ungt fólk og lýðræði sem halda átti í byrjun apríl verður frestað til september. Ungmenni ungmennaráðs fá því langan tíma til að ákveða hvort þau hafi hug á að taka þátt í þessari skemmtilegu ráðstefnu.
2.
Erindisbréf Ungmennaráðs 2017
Málsnúmer 201704091
Erindisbréf ungmennaráðs Hornafjarðar er frá því í júní 2017. Erindisbréfið þarfnast endurskoðunar.
Áður hefur komið fram að ungmennaráð vilji breyta erindisbréfi sínu. Einna helst eru það ungmennaþingin sem hafa verið haldin á hverju ári núna þrjú ár í röð sem ungmennin velta fyrir sér. Einnig eru það mál eins og að setja vinnufundi inn á bréfið. Þetta eru hugmyndir sem þarf að skoða nánar og engin ákvörðun er tekin á þessum fundi.
3.
Önnur mál ungmennaráðs
Málsnúmer 201902023
1) Orkudrykkjakönnun ungmennaráðs.2) Heimasíða ungmennaráðs. Er hægt að efla virknina á síðunni svo hún nái til unga fólksins t.a.m. ráðleggingar um covid?
1) Orkudrykkjakönnun Ungmennaráðs. Ákveðið er að fresta fyrirlögn könnunarinnar sem átti að leggja fram núna í mars í grunnskóla og framhaldsskóla. Ákveðið síðar hvort hún verði lögð fram við upphaf nýs skólaárs í ágúst.

2) Heimasíða ungmennaráðs. Ungmennaráð ætlar að að vera duglegri að auglýsa heimasíðuna og reyna setja inn á hana skemmtilegt efni sem létt gætu stundirnar á meðan Covid-19 aðgerðir eru í gangi.