Fara í efni

Ungmennaráð Hornafjarðar

52. fundur
28. apríl 2020 kl. 14:30 - 16:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir
Ingunn Ósk Grétarsdóttir
Íris Mist Björnsdóttir
Birkir Snær Ingólfsson
Björgvin Freyr Larsson
Tómas Nói Hauksson
Stígur Aðalsteinsson
Selma Ýr Ívarsdóttir
Ólöf Ósk Guðnadóttir
Starfsmenn
Herdís Ingólfsdóttir Waage
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Herdís I. Waage Tómstundafulltrúi
Dagskrá
1.
Skuggakosningar v/forsetakosninga 2020
Málsnúmer 202004080
Samkv. fréttum þá hafa borist tvo mótframboð gegn sitjandi forseta. Spurning hvort ungmennaráð ætli að halda skuggakosningar jafnhliða forsetakosningunum.
Ungmennaráð hefur ákveðið að sleppa skuggakosningum þetta árið og þykir þeim það miður. Helstu ástæður eru samkomubann vegna Covid-19. Forsetakosningarnar eru á þeim tíma sem Humarhátíð hefði átt að fara fram. Þegar skuggakosningar hafa farið fram þá hafa ungmenni sveitarfélagsins fengið veglegt ball þar sem niðurstöður skuggakosninga eru birtar. Í ljósi aðstæðna núna þá er ekki hægt að halda ball/samkomu fyrir ungmennin og þar með er viss gulrót til góðrar mætingar á kjörstað dottin upp fyrir. Ungmennaráð hvetur ungmenni sveitarfélagsins að bíða spennt eftir næstu sveitarstjórnarkosningum því þá verða næstu skuggakosningar.
2.
Endurnýjun Jafnréttisáætlunnar
Málsnúmer 201907018
Jafnréttisáætlun sveitarfélagsins lögð fram til kynningar fyrir ungmennaráði.
3.
Önnur mál ungmennaráðs
Málsnúmer 201902023
1) Kynnig á styrkumsókn vegna loftlagsverkefnis sem fyrirhugað er í samvinnu við ungmennaráð.2) Orkudrykkjarannsókn ungmennaráðs3) Ungmennaþing - loftlagsráðstefna - kosningar í ungmennaráð
1) Nýheimar Þekkingarsetur í samvinnu við Ungmennaráð, Nemendafélag FAS, unga umhverfissinna og umhverfisfulltrúa sveitarfélagsins hefur sótt um styrk til að halda viðburð um loftslagsmál á Höfn í september 2020. Undirbúnings- og skipulagshópur undirbýr viðburðinn þar sem gert er ráð fyrir fræðsluerindum og vinnustofum. Áhersla verður lögð á að ná til og vekja áhuga ungs fólks á umhverfis- og loftslagsmálum.

Ungmennaráð er spennt fyrir loftlagsráðstefnunni og vonast til að hún verði að veruleika.

2) Eins og kom fram í fundargerð ungmennaráðs í mars þá var ákveðið að fresta framlögn orkudrykkjakönnunar sem ungmennaráð hefur unnið að. Nú hefur verið ákveðið að leggja könnunina fram í haust um leið og skólar hefjast á ný. Könnunin er að vísu rafræn en betra er að fulltrúar ungmennaráðs verði til staðar til að hjálpar ef þess þarf í yngri bekkjum.

3) Ungmennaráð hefur ákveðið að sleppa ungmennaþingi í haust. Í stað ungmennaþings verður vonandi af loftlagsráðstefnu Nýheima sem verður með svipuðu sniði og ungmennaþing hafa farið fram. Varðandi kosningar nýrra fulltrúa í ungmennaráð sem hefur farið fram á ungmennaþingi er ákveðið að halda sérstakan kosningaviðburð sem auglýstur verður síðar. Eitthvað til að hlakka til :)