Ungmennaráð Hornafjarðar
53. fundur
15. júní 2020
kl.
16:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir
Ingunn Ósk Grétarsdóttir
Íris Mist Björnsdóttir
Birkir Snær Ingólfsson
Tómas Nói Hauksson
Stígur Aðalsteinsson
Selma Ýr Ívarsdóttir
Ólöf Ósk Guðnadóttir
Starfsmenn
Herdís Ingólfsdóttir Waage
Fundargerð ritaði:
Herdís I. Waage
Tómstundafulltrúi
Dagskrá
1.
Leikvellir/leiksvæði
Ungmennaráð hefur áhyggjur af aðsókn ungmenna á lóð leikskólans Sjónarhóls. Hugmyndir af leiksvæðum sem myndu frekar nýtast fyrir ungmennin viðraðar.
Samkv. upplýsingum safnast ungmenni saman á leiskólalóð Sjónarhóls eftir lokun leikskólans eða á kvöldin. Vegna ágangs þessara ungmenna hefur ýmislegt farið úrskeiðis á leikskólalóðinni, sem er miður. Ungmennaráð telur að uppfæra þurfi leikvelli sem eru til nú þegar en það þurfi að setja skemmtilegri leiktæki og tól á vellina sem hentar sem flestum. Hafa leiktæki/afþreyingu fyrir börn, ungmenni og fullorðna svo að leikskólalóðin fái að vera í friði. Birkir Þór Önnuson kom og kynnti fyrir ungmennaráði það sem hann er búinn að vera að vinna að í sambandi við leiksvæði bæjarins og er það mjög spennandi og í anda þess sem ungmennaráð lét sig ,,dreyma" um. Hugmyndir Birkis af mismunandi leiksvæðum eru mjög flottar og mun ungmennaráð senda til Birkis eitthvað af eigin hugmyndum sem hægt væri að flétta inn í það sem komið er. Birkir var jafnframt spurður að því hvenær eitthvað af þessum hugmyndum gætu orðið eitthvað meira en bara flottar hugmyndir í tölvu þá sagði hann að reynt yrði að hefja störf við einhver svæði strax í sumar. Ungmennaráð þakkar Birki fyrir flotta einfalda sköpun á leiksvæðum sveitarfélagsins þar sem framkvæmd mun kannski ekki kosta allt of mikla fjármuni á öllum leiksvæðum heldur verður að hluta hægt að notast við það sem finnst í nánasta umhverfi.
2.
Ungt fólk og lykiltölur í lífi barna
Skýrslan Ungt fólk - lykiltölur í lífi barna kynnt fyrir ungmennaráði.
Herdís kynnti niðurstöður rannsóknarinnar ,,Ungt fólk lykiltölur í lífi barna" sem snýr að ungmennunum okkar hér á Höfn. Stærsti hluti ungmennaráðs tók þátt í þessari könnun sem um ræðir og fannst þeim sjálfum niðurtöður vera helst til íþyngjandi. Á meðan áhyggjur eldri fulltrúa snérust að neyslu vímuefna ungmenna á Höfn þá fannst öðrum allt of fáir stunda íþróttir oftar en 2x í viku.
3.
Erindisbréf Ungmennaráðs 2017
Erindisbréf ungmennaráðs lagt til kynningar. Breytingar á bréfinu lagðar fram
Breytingar á erindisbréfi Ungmennaráðs verða sendar til samþykktar hjá Fræðslu-og tómstundanefnd. Má þar helst nefna breytingar á framkvæmd kosninga í ungmennaráðið en hingað til hafa þær verið á árlegu ungmennaþingi. Óskað er eftir að halda ungmennaþing annað hvert ár en boða til kosningabaráttu með öðrum hætti þau ár sem ekki eru haldin ungmennaþing.
4.
Önnur mál ungmennaráðs
Regnbogastígurinn. Þurfum að drífa í því að mála hann áður en flestir hlaupa í frí.
Ákveðið hefur verið að mála Regnbogastíginn kl. 13:00 föstudaginn 19. júní. Hvetjum sem flesta til að mæta bæði til að taka þátt sem og fylgjast með.