Fara í efni

Ungmennaráð Hornafjarðar

54. fundur
2. september 2020 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir
Ingunn Ósk Grétarsdóttir
Íris Mist Björnsdóttir
Björgvin Freyr Larsson
Stígur Aðalsteinsson
Selma Ýr Ívarsdóttir
Starfsmenn
Herdís Ingólfsdóttir Waage
Fundargerð ritaði:
Herdís I. Waage Tómstundafulltrúi
Dagskrá
1.
Hlutverk og tilgangur ungmennaráða sveitarfélaga
Málsnúmer 202008088
Bréf umboðsmanns barna er varðar hlutverk og tilgang ungmennaráða lagt fram og kynnt fyrir ungmennaráði Hornafjarðar.
2.
Fundir með bæjarráði/fræðslu- og tómstundanefnd
Málsnúmer 202009003
Í erindisbréfi ungmennaráðs stendur: ,,Fræðslu- og tómstundanefnd og ungmennaráð skulu halda sameiginlega tvo fundi á ári en oftar ef þurfa þykir. Gert er ráð fyrir að ungmennaráð fundi a.m.k. tvisvar á ári með bæjarráði". Ungmennaráð fundar 10 sinnum á ári og finnst of mikið að gefa eftir 4 fundi. Ungmennaráð óskar eftir að funda 2 sinnum á ári á sameiginlegum fundi bæjarráðs og fræðslu-og tómstundanefndar og óska eftir auka fundi/fundum ef þurfa þykir. Fastir fundir gætu t.d. verið í desember og mars.

Vísað til bæjarráðs
3.
Erindisbréf Ungmennaráðs 2020
Málsnúmer 202006071
Farið var yfir erindisbréf ungmennaráðs til hliðsjónar við bréf Umboðsmanns barna og vegna funda með bæjarráði og fræðslu- og tómstundanefnd. Ákveðið var að bíða eftir framvindu mála er varðar bréf umboðsmanns barna og engra breytinga er óskað. Búið er að gera breytingar á erindisbréfi ungmennaráðs vegna kosninga fulltrúa í ráðið en sú ósk um breytingar á sameiginlegum fundum ungmennaráðs með bæjarráði og fræðslu- og tómstundanefnd hefur verið vísað til umfjöllunar hjá bæjarráði.
4.
Barnvænt sveitarfélag: Innleiðing barnasáttmála SÞ
Málsnúmer 201911065
Óskað er eftir að fá fulltrúa úr ungmennaráði til að vera í stýrihóp um innleiðingu barnvæns sveitarfélags. Óskað er eftir þremur ungmennum í heildina en minnst einum úr ungmennaráði.
Kallað var eftir fulltrúum úr ungmennaráði til að vera með í nýjum stýrihóp sem kemur að innleiðingu Barnvæns sveitarfélags. Þrír fulltrúar buðu sig fram en óskuðu jafnframt eftir frekari upplýsingum um fundarsetuna. Starfsmanni falið að afla upplýsinga og koma þeim á framfæri.
5.
Ungt fólk og lýðræði 17. sept 2020
Málsnúmer 202008055
UMFÍ hefur nú í þriðja sinn í ár boðið fulltrúum ungmennaráðs Hornafjarðar að sitja ráðstefnuna Ungt fólk og lýðræði. Vegna Covid-19 hefur ekki verið hægt að halda ráðstefnuna með sama sniði og síðustu ár. Ráðstefnan verður nú haldin í Reykjavík þann 17.september n.k. frá kl. 09:00 - 16:00. Því miður hentar þessi tími ekki fulltrúum ungmennaráðs Hornafjarðar og verðum við því að segja pass við gott boð. UMFÍ verður upplýst um málið.
6.
Orkudrykkjakönnun ungmennaráðs
Málsnúmer 202009004
Ungmennaráð Hornafjarðar hannaði rafræna skoðanakönnun um orkudrykkjaneyslu ungmenna frá 5. bekk grunnskóla upp í framhaldsskóla. Ekki var hægt að leggja þessa könnun fyrir nemendur í vetur/vor en ákveðið hefur verið að fá leyfi hjá skólayfirvöldum til að leggja könnunina fram nú í september. Starfsmaður mun óska eftir hentugum tíma fyrir fyrirlögnina.
7.
Nikótín og orkudrykkir
Málsnúmer 202009005
Starfsmaður ungmennaráðs framkvæmdi óvísindalega könnun á framboði orkudrykkja og á nikótín tengdum vörum sem seldar eru í verslunum á Höfn. Sérstaklega var sýnileiki/uppstilling varanna skoðaður og hvert aðgengi ungmenna var að vörunum. Lagt fram til kynningar.
8.
Kosningar í Ungmennaráð 2020-2021
Málsnúmer 202009002
Fyrirhugaðar eru kosningar í ungmennaráð nú í september. Beðið er eftir að nemendaráð beggja skólastiga hefji starfsemi sína. Starfsmanni falið að athuga hvenær nemendaráð verði tilbúin til starfa svo vinna við undirbúning kosninga geti hafist.
9.
Áheyrnarfulltrúar fastanefnda 2020
Málsnúmer 201912051
Áheyrnarfulltrúar fastanefnda - breytingar
Þeir fulltrúar ungmennaráðs sem sitja nú sem áheyrnarfulltrúar fastanefnda en eru að hætta störfum fyrir ráðið vilja koma því á framfæri: Að mjög mikilvægt er að fjalla um áheyrnarfulltrúa á fyrsta fundi nýs ungmennaráðs og hvetja jafnframt nýja fulltrúa ráðsins til að bjóða sig fram til setu. Að sitja sem áheyrnarfulltrúi er mjög lærdómsríkt og gefur mjög góða innsýn í málefni sem sveitarfélagið er að vinna að.