Ungmennaráð Hornafjarðar
55. fundur
21. október 2020
kl.
16:00
-
17:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir
Ingunn Ósk Grétarsdóttir
Íris Mist Björnsdóttir
Birkir Snær Ingólfsson
Stígur Aðalsteinsson
Selma Ýr Ívarsdóttir
Agnar Jökull Imsland Arason
Laufey Ósk Hafsteinsdóttir
Alexandra Guðrúnardóttir
Starfsmenn
Herdís Ingólfsdóttir Waage
Fundargerð ritaði:
Herdís I. Waage
Tómstundafulltrúi
Dagskrá
1.
Orkudrykkjakönnun ungmennaráðs
Orkudrykkjanotkun ungmenna
Ingunn formaður Ungmennaráðs kynnti fyrir nýju ráði fyrirhugaða könnun Ungmennaráðs á orkudrykkjaneyslu ungmenna á Höfn. Það sem þessi könnun hefur umfram aðrar þá er könnunin fyrir 10 ára til 25 ára aldurs. Einnig er þar leitast við að fá svör hverjir kaupa inn orkudrykkina t.a.m. fyrir yngri börnin. Vegna Covid mun Ungmennaráð leitast við að fá umsjónarkennara til að leggja könnunina fyrir í sínum bekkjum þar sem hægt er að koma því við en könnunin er einungis rafræn.
2.
Barnvænt sveitarfélag: Innleiðing barnasáttmála SÞ
Enn vantar okkur fulltrúa til að vera með í stýrihóp um Barnvænt sveitarfélag. Herdís kynnir fyrir nýjum fulltrúum Ungmennaráðs um verkefnið Barnvænt sveitarfélag
Starfsmaður Ungmennaráðs kynnti fyrir nýjum fulltrúum verkefnið Barnvænt sveitarfélag. Lagði einnig til að fulltrúar skoði gátlistana sem þarf að fylla út fyrir mælaborð verkefnisins. Óskað var eftir þriðja fulltrúa Ungmennaráðs í stýrihóp Barnvæns sveitarfélags og bættist Íris Mist Björnsdóttir við hópinn :)Hægt er að kynna sér Barnvæn sveitarfélög og innleiðingu þeirra hér: http://barnvaensveitarfelog.is/barnvaen-samfelog/
Að lokum var fulltrúa Ungmennaráðs Selmu Ýr Ívarsdóttur klappað lof í lófa vegna frammistöðu hennar í stærðfræðikeppni á meðal framhaldsskólanema á landsvísu. Selma Ýr er meðal 20 efstu í keppninni og er hún eini þátttakandinn utan höfuðborgarsvæðisins í þeim hópi. Til hamingju Selma :)
Að lokum var fulltrúa Ungmennaráðs Selmu Ýr Ívarsdóttur klappað lof í lófa vegna frammistöðu hennar í stærðfræðikeppni á meðal framhaldsskólanema á landsvísu. Selma Ýr er meðal 20 efstu í keppninni og er hún eini þátttakandinn utan höfuðborgarsvæðisins í þeim hópi. Til hamingju Selma :)