Fara í efni

Ungmennaráð Hornafjarðar

56. fundur
11. nóvember 2020 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ingunn Ósk Grétarsdóttir
Íris Mist Björnsdóttir
Björgvin Freyr Larsson
Stígur Aðalsteinsson
Selma Ýr Ívarsdóttir
Alexandra Guðrúnardóttir
Agnar Jökull Imsland Arason
Elín Ósk Óskarsdóttir
Laufey Ósk Hafsteinsdóttir
Starfsmenn
Herdís Ingólfsdóttir Waage
Fundargerð ritaði:
Herdís I. Waage Tómstundafulltrúi
Dagskrá
1.
Erindisbréf Ungmennaráðs 2020
Málsnúmer 202006071
Erindisbréf til kynningar fyrir nýja fulltrúa Ungmennaráðs
Erindisbréf Ungmennaráðs var til kynningar fyrir nýja fulltrúa ráðsins. Meðal annars var farið yfir kosningar í ungmennaráð, lengd setu í ráðinu o.fl
2.
Ungmennaráð Hornafjarðar 2020-2021
Málsnúmer 202011027
Kosning formanns og varaformanns
Ingunn Ósk Grétarsdóttir var kosin til áframhaldandi setu sem formaður ráðsins og Íris Mist Björnsdóttir sem varaformaður. Til hamingju báðar tvær.
3.
Áheyrnarfulltruar fastanefnda 2020-2021
Málsnúmer 202011026
Okkur vantar nýja áheyrnarfulltrúa í fastanefndir sveitarfélagsins. Nefndirnar eru: Umhverfis- og skipulagsnefnd, Hafnarstjórn, Fræðslu- og tómstundanefnd, Atvinnu - og menningarmálnefnd.
Fulltrúar ungmennaráðs buðu sig fram til setu sem áheyrnarfulltrúar fastanefnda. Nefndirnar eru fjórar sem um ræðir og fengust fulltrúar í þrjár þeirra. Nýir fulltrúar ungmennaráðs ætla að kynna sér nefndirnar betur og gefa svör síðar.
4.
Barnvænt sveitarfélag: Innleiðing barnasáttmála SÞ
Málsnúmer 201911065
Gátlistar fyrir innleiðingu Barnsvæns sveitarfélags
Varðandi gátlista Barnvæns sveitarfélags þá ætla fulltrúar Ungmennaráðs að svara gátlistunum og senda Herdísi þá sem mun svo taka niðurstöðurnar saman og senda þær áfram til stýrihóps Barnvæns sveitarfélags.
5.
Örnefnaskilti
Málsnúmer 202008081
Ungmennaráð valdi sér þetta mál frá Atvinnu- og menningarmálanefnd til frekari umfjöllunar í Ungmennaráði.
,,Til skoðunar er að setja upp örnefnaskilti á Höfn þar sem má sjá öll helstu örnefnin við Hornafjörðinn". Ungmennaráð fagnar þessu frábæra framtaki og finnst að með verkefni þessu þá viðhaldist gömul örnefni sem síður muni gleymast. Skiltin verða að auki lærdómsefni fyrir þau sem yngri eru.
6.
Flugsamgöngur til Hafnar
Málsnúmer 202010122
Ungmennaráð valdi sér þetta mál frá Bæjarráði til frekari umfjöllunar í Ungmennaráði.
Ungmennaráð valdi til umfjöllunar bókun Bæjarráðs um flugsamgöngur til Hafnar. Ungmennaráð tók undir þær áhyggjur er varðar flug til Hafnar. Þess má þó geta að búið er að koma á samningi við Erni er varðar flugið þannig að við getum andað léttar.
7.
Vímuefnanotkun unglinga á Höfn, Espad 2019
Málsnúmer 202010086
Ungmennaráð valdi sér þetta mál frá Fræðslu- og tómstundanefnd til frekari umfjöllunar í Ungmennaráði.
Ungmennaráð kynnti sér Evrópsku vímuefnarannsóknina Espad 2019 en rannsóknin er gerð á fjögurra ára fresti meðal nemenda í 10. bekk í rúmlega fjörutíu Evrópulöndum. Túlkun niðurstaðna fyrir Hornafjörð geta verið sveiflukenndar á milli ára því árgangar eru fámennir. Fulltrúar ungmennaráðs töluðu um mikla notkun á nikótínpúðunum Lyft. Þetta væri einhverskonar ,,menning" að vera með nikótínpúða í vör. Ungmennaráð vill meina að foreldrar ungmenna þurfi á fræðslu að halda er varðar þessa púða því þeir eru mjög ávanabindandi og með mikinn nikótín-styrkleika sem gæti skaðað heilsu þeirra sem neyta sé til lengri tíma litið.
8.
Heimasíður skólanna
Málsnúmer 202011032
Íris Mist lagði inn fyrirspurn um heimasíður skólanna hér á Höfn. Eru þær einungis settar upp á íslensku?
Ungmennaráð ræddi um heimasíður FAS og grunnskóla Hornafjarðar. Á þessum heimasíðum er mikið efni upplýsinga fyrir nemendur og foreldra. Ekki var hægt að sjá að hægt væri að velja á milli tungumála á þessum síðum. Ungmennaráði finnst það með ólíkindum að ekki hafi neitt verið gert í þessum málum vitandi það að 22% íbúa í sveitarfélaginu Hornafirði eru af erlendum uppruna. Ungmennaráð hvetur því bæði skólayfirvöld í framhaldsskólanum og skólayfirvöld í grunnskólanum að bæta úr þessu sem fyrst.