Fara í efni

Ungmennaráð Hornafjarðar

59. fundur
10. febrúar 2021 kl. 16:00 - 17:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ingunn Ósk Grétarsdóttir
Íris Mist Björnsdóttir
Björgvin Freyr Larsson
Stígur Aðalsteinsson
Selma Ýr Ívarsdóttir
Alexandra Guðrúnardóttir
Agnar Jökull Imsland Arason
Starfsmenn
Herdís Ingólfsdóttir Waage
Fundargerð ritaði:
Herdís I. Waage Tómstundafulltrúi
Dagskrá
1.
Orkudrykkjakönnun ungmennaráðs
Málsnúmer 202009004
Niðurstöður orkudrykkjakönnunar skoðaðar og ákveðið hver næstu skref eru varðandi upplýsingarnar.
Niðurstöður orkudrykkjakönnunarinnar komu ungmennaráði ekki á óvart og verða niðurstöðurnar kynntar fyrir skólastjórnendum beggja skólastiga ásamt fræðslu- og tómstundanefnd. Áhugavert væri að kalla eftir fræðslu um áhrif koffíns á líkamann. Starfsmanni falið að athuga það nánar.
2.
Kynning á stjórnmálaflokkum á Höfn
Málsnúmer 202101040
Ungmennaráð hefur ákveðið að leita til ungliðahreyfinga á höfuðborgarsvæðinu til að kynna stjórnmálaflokkana og störf þeirra fyrir ungmennum á Hornafirði. Ákveðið var að leita til sem flestra ungliðahreyfinga því mun fleiri flokkar bjóða fram til alþingiskosninga en þeir flokkar sem í boði eru í sveitarfélaginu.
3.
Stuðningur við atvinnu ungmenna 2021
Málsnúmer 202102037
Fyrirspurn um stuðning frá sveitarfélaginu varðandi vinnu sumarið 2021.
Ungmennaráð fékk fyrirspurn um það hvort ráðið ætli að beita sé fyrir því að sveitarfélagið verði með stuðning við atvinnu ungmenna líkt og gert var í fyrra sumar. Þá er átt við hvort sveitarfélagið muni bjóða aftur út störf eins og nemendum stóð til boða í fyrra t.a.m. störf í áhaldahúsi eða á skrifstofum sveitarfélagsins. Ungmennaráði finnst áhugavert og gleðilegt að ungmenni vilji og hafi áhuga á að starfa við hin ýmsu störf sem vinna þarf í sveitarfélaginu. Starfsmanni ungmennaráðs falið að vinna áfram í málinu.