Ungmennaráð Hornafjarðar
60. fundur
3. mars 2021
kl.
16:00
-
17:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ingunn Ósk Grétarsdóttir
Íris Mist Björnsdóttir
Björgvin Freyr Larsson
Stígur Aðalsteinsson
Selma Ýr Ívarsdóttir
Alexandra Guðrúnardóttir
Agnar Jökull Imsland Arason
Elín Ósk Óskarsdóttir
Laufey Ósk Hafsteinsdóttir
Starfsmenn
Herdís Ingólfsdóttir Waage
Fundargerð ritaði:
Herdís I. Waage
Tómstundafulltrúi
Dagskrá
1.
Kynning á stjórnmálaflokkum á Höfn
Varðandi kynningar á stjórnmálaflokkum í aðdraganda alþingiskosninga.
Ingunn hafði samband við ungliðahreyfingarnar: Ungir Píratar - Uppreisn - SUS - SUF - ungir VG og ungir jafnaðarmenn. Þau tóku öll vel í það að halda kynningarfundi til að fræða ungmenni Hornafjarðar um flokka sína og áherslur. Þar sem kynningarfundirnir fara fram á netinu í apríl þá er hugmyndin um að nota ungmennahús fyrir þá sem vilja skapa smá stemmingu og sitja saman og spjalla áfram eftir kynningarnar. Tímasetning kynningarfundanna verður auglýst síðar.
2.
Leikskólagjöld sveitarfélaga í skugga covid og atvinnuleysis
Tvö af stærstu sveitarfélögum á landinu hafa lækkað leikskólagjöld vegna atvinnuleysis foreldra.
Ungmennaráð Sveitarfélagsins Hornafjarðar fékk ábendingu um það, að í það minnsta hafa tvö af stærstu sveitarfélögunum á landinu þ.e. Akureyri og Mosfellsbær lækkað leikskólagjöld til þeirra foreldra sem misstu vinnuna vegna Covid. Nú hafa fjölmargir einstaklingar í okkar sveitarfélagi einnig misst vinnuna vegna Covid og áhugavert væri að vita hvort sveitarfélagið hafi með einhverju móti komið á móts við þá einstaklinga með einhverjum lækkunum eða niðurgreiðslum sem eiga t.d. börn á leikskóla? Starfsmanni falið að koma málinu áfram.
3.
Frumvarp til stjórnarskipunarlaga um breytingu á stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, Mál 188. (kosningaaldur)
Óskað er eftir umsögnum frá ungmennaráðum varðandi frumvarp til stjórnarskipunarlaga um breytingu á stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, með síðari breytingum (kosningaaldur).
Ungmennaráð gleðst yfir því að enn sé verið að vinna í því að lækka kosningaaldur. Ungmennaráð hefur því ekkert á móti þeim breytingum sem lagðar eru fram í frumvarpi þessu og eru breytingunum samþykk.
4.
Skýrsla forvarnardagsins
Farið yfir skýrslu rannsóknar & greiningar ,,Þetta vilja þau" sem gerð var vegna alþjóðlegs forvarnardags sem er á ári hverju.
Skýrsla Rannsóknar & greiningar ,,Þetta vilja þau" var lögð fram til kynningar. Spurningunni: ,,Hvað er í boði fyrir þau ungmenni Hornafjarðar sem ekki stunda skipulagðar íþróttir ?" var varpað fram í umræðum. Það gæti verið efni í næstu rannsókn ungmennaráðs að kanna ,,Hvað viljið þið?" í sambandi við skipulagðar frístundir fyrir ungmenni á aldrinum 16-25 ára í Sveitarfélaginu Hornafirði. Hugmyndin viðruð síðar.