Ungmennaráð Hornafjarðar
61. fundur
14. apríl 2021
kl.
16:00
-
17:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ingunn Ósk Grétarsdóttir
Íris Mist Björnsdóttir
Björgvin Freyr Larsson
Stígur Aðalsteinsson
Selma Ýr Ívarsdóttir
Alexandra Guðrúnardóttir
Agnar Jökull Imsland Arason
Elín Ósk Óskarsdóttir
Laufey Ósk Hafsteinsdóttir
Starfsmenn
Herdís Ingólfsdóttir Waage
Fundargerð ritaði:
Herdís I. Waage
Tómstundafulltrúi
Dagskrá
1.
Kynning á stjórnmálaflokkum á Höfn
Kynningarfundur með Pírötum og Framsókn 8.apríl.
Fimmtudaginn 8. apríl var haldinn kynningarfundur á stjórnmálaflokkum vegna alþingiskosninganna sem fram fara í haust. Tilgangurinn með kynningunum er að fræða ungmenni hvaða helstu flokkar eru í boði og fyrir hvað þeir standa. Þeir sem kynntu flokka sína voru Framsókn og Píratar. 16 ungmenni voru á fundinum þegar Framsókn kynnti sig og svaraði spurningum en flestir voru farnir þegar kom að Pírötum. Í kvöld 15.apríl verður annar kynningarfundur en þá eru það Vinstri grænir og Uppreisn (Viðreisn)sem kynna sig og sitja fyrir svörum. Síðasti kynningarfundurinn er þann 16. apríl og eru það ungir Jafnaðarmenn og Sjálfstæðismenn sem ljúka kynningunni. Fundirnir eru rafrænir þannig að allir ættu að geta tekið þátt sem áhuga hafa.
2.
Orkudrykkjakönnun ungmennaráðs
Orkudrykkjakönnun Ungmennaráðs
Kynna átti niðurstöður orkudrykkjakönnunar Ungmennaráðs fyrir Fræðslu- og tómstundanefnd. Ákveðið var að fresta sameiginlegum fundi þar til í maí og því beðið með kynninguna þar til þá.