Fara í efni

Ungmennaráð Hornafjarðar

63. fundur
11. ágúst 2021 kl. 16:00 - 17:30
Vöruhús
Nefndarmenn
Ingunn Ósk Grétarsdóttir
Íris Mist Björnsdóttir
Stígur Aðalsteinsson
Agnar Jökull Imsland Arason
Elín Ósk Óskarsdóttir
Laufey Ósk Hafsteinsdóttir
Starfsmenn
Herdís Ingólfsdóttir Waage
Fundargerð ritaði:
Herdís I. Waage Tómstundafulltrúi
Dagskrá
1.
Aðgerðaáætlun ungmennaráðs haustönn 2021
Málsnúmer 202108012
Vinnufundur hjá Ungmennaráði Hornafjarðar. Á fundinum verður sett saman aðgerðaáætlun fyrir haustönnina 2021 en samkv. erindisbréfi á að vera ungmennaþing í haust. Líta verður til allra átta vegna aðstæðna í samfélaginu og undirbúa plan b jafnvel c og d eftir þörfum.
Á fundi ungmennaráðs voru ræddar hugmyndir að ungmennaþingi sem halda á í haust. Margar góðar hugmyndir komu fram og ákveðið var að halda ungmennaþing með öðru sniði en vanalega. Áður en þessar hugmyndir verða opinberar þarf starfsmaður ungmennaráðs að vinna áfram að frekari útfærslu.