Fara í efni

Ungmennaráð Hornafjarðar

64. fundur
8. september 2021 kl. 16:00 - 17:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ingunn Ósk Grétarsdóttir
Íris Mist Björnsdóttir
Stígur Aðalsteinsson
Selma Ýr Ívarsdóttir
Alexandra Guðrúnardóttir
Elín Ósk Óskarsdóttir
Laufey Ósk Hafsteinsdóttir
Starfsmenn
Herdís Ingólfsdóttir Waage
Fundargerð ritaði:
Herdís I. Waage Tómstundafulltrúi
Dagskrá
1.
Ungmennaþing 2021
Málsnúmer 202109021
Samkv. Erindisbréfi Ungmennaráðs Hornafjarðar á að halda ungmennaþing á oddatöluárum. Hugmyndir um framkvæmd var reifuð á síðasta fundi en engin niðurstaða var komin í málið. Áframhaldandi umræður um framkvæmdina
Sveitarfélagið Hornafjörður vinnur að því að gerast Barnvænt sveitarfélag. Eitt af þeim verkefnum sem þarf að uppfylla er að halda barnaþing/ungmennaþing. Á ungmennaþingi Ungmennaráðs eru nemendur á aldrinum 13-18 ára eða þeir nemendur sem eru í 7.bekk grunnskóla til og með nemendum í FAS. Mæting á ungmennaþing er ekki valkvæð heldur er það partur af uppbrotum í skólunum. Umræður/málstofur á ungmennaþingi fara eftir því hvað liggur mest á ungmennunum, hvað vilja þau ræða, hverju vilja þau breyta og hvaða fræðslu vilja þau fá. Í stað þess að þurfa að sitja tvö þing í haust þ.e. ungmennaþing Ungmennaráðs og barna/ungmennaþing sveitarfélagsins var ákveðið að sleppa ungmennaþingi Ungmennaráðs. Ungmennaráð mun þess í stað leggja fram hjálp sína við að halda barna/ungmennaþing sveitarfélagsins.
2.
Fulltrúar í Ungmennaráði 2021-2022
Málsnúmer 202109022
Tilnefningar í ungmennaráð frá umf. Sindra - Þrykkjunni o.fl.
Ungmennaráð vantar fjóra fulltrúa í ráðið. Búið er að óska eftir tilnefningum frá Umf.Sindra og frá félagsmiðstöðinni Þrykkjunni. Jafnframt vantar einn fulltrúa frá Grunnskóla Hornafjarðar og einn frá FAS. Fulltrúar í ungmennaráði munu hvetja skólasystkini sín til að bjóða sig fram til setu í ungmennaráði og munu kosningar fara fram á hvoru skólastigi fyrir sig ef fleiri en einn bjóða sig fram á hvorum stað.
3.
Tilnefning í Ungmennaráð Suðurlands
Málsnúmer 202109012
Ungmennaráð Suðurlands. Þar sem Íris Mist er að klára sína göngu sem fulltrúi í UngHorn sem og UngSu þá vantar okkur tilnefningu fulltrúa í UngSu. Sú tilnefning þarf að berast til SASS fyrir 20.sept.
Kynning á ungmennaráði Suðurlands var kynnt fyrir fulltrúum UngHorn sem mættir voru á fund og þau hvött til að skoða málið. Frestur til að svara erindinu er 20. september n.k.