Ungmennaráð Hornafjarðar
66. fundur
10. nóvember 2021
kl.
16:00
-
17:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Stígur Aðalsteinsson
Selma Ýr Ívarsdóttir
Alexandra Guðrúnardóttir
Maríus Máni Jónsson
Tómas Nói Hauksson
Starfsmenn
Herdís Ingólfsdóttir Waage
Fundargerð ritaði:
Herdís I. Waage
Tómstundafulltrúi
Dagskrá
1.
Svefn - vitundarvakning um mikilvægi svefns
Starfsmaður ungmennaráðs kynnir fyrir ungmennaráði vitundarvakningu um svefn á vegum Embætti Landlæknis ásamt fleirum
Góðar umræður voru um svefn og svefnvenjur ungmenna. Flest ungmennanna í Ungmennaráði sögðust fara of seint að sofa og væru oftast þreytt á morgnana þegar þau vakna. Mikill skjátími snjalltækja, orku/koffíndrykkjaneysla og seinn æfingatími íþrótta eiga stóran þátt í því að ungmenni sofna seinna. Hugmynd um að halda svefndagbók á hverju heimili í einhvern tíma þótti áhugaverð og mun Ungmennaráð leita sér frekari upplýsinga á framkvæmd.
2.
Kvikmyndasýningar á Hornafirði - Bíó
Unga fólkið kallar eftir bíósýningum á Höfn.
Ungmennaráð fékk fyrirspurn um að kanna möguleikann á bíósýningum á Höfn. Áætlað er að Sindrabær fari í endurbætur innanúss þar sem m.a.verður svölunum breytt aftur sem nær upprunalegu horfi þ.e. lengdar og opnaðar á ný sem hentar fullkomlega til bíósýninga. Starfsmanni falið að vinna áfram að málinu og taka fyrir á næsta fundi.
3.
Handbolti á Höfn
Á ný afstöðnu Barnaþingi var spurt út í íþróttir í sveitarfélaginu. Ungmennin voru spurð hvaða íþrótt þau vildu bæta við það sem í boði er nú þegar. Umræðustjórum þingsins fannst mest bera á óskum um handboltaæfingar og ákvað því Ungmennaráð að athuga málið.
Starfsmaður leitaði upplýsinga hversvegna handbolti væri ekki í boði á Höfn. Svarið sem starfsmaður fékk er eftirfarandi: ,,Handbolti er erfið íþrótt og flókin. Til að halda úti æfingum þá þurfa minnst 10 manns að mæta á æfingar og þjálfarinn ÞARF að kunna handbolta þ.e. reglur og spil. Þess ber að geta að hvergi á Austurlandi er í boði að þjálfa handbolta. Handbolti er í boði á Akureyri og svo á Selfossi og í Vestmannaeyjum og í Reykjavík. Handbolti er ,,hnignandi" íþrótt og eru íþróttafélögin í Rvk m.a.að sameinast til að ná í lið". Ungmennaráð þakkar fyrir upplýsingarnar og hvetur ungmenni Hafnar til að nýta sér þær íþróttir sem eru nú þegar í boði.
4.
Barnvænt sveitarfélag: Innleiðing barnasáttmála SÞ
Barnaþing 3.og 4. nóvember - Hvað stendur uppúr?
Þeir umræðustjórar Barnaþings sem eru einnig fulltrúar í Ungmennaráði Hornafjarðar fannst Barnaþingið ganga ágætlega. Þau voru sammála um það að færri/minni svörun var frá eldri hópunum. Ekki sköpuðust miklar umræður um spurningarnar/málefnin sem slík kannski frekar eitthvað annað sem tengdist þeim. Ef í heildina er litið til þessara tveggja daga voru þau nokkuð sátt og vonast til að niðurstöður þingsins komi fljótlega í ljós, svo hægt sé að vinna áfram með málefnin.