Ungmennaráð Hornafjarðar
7. fundur
9. janúar 2015
kl.
15:00
-
00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þorlákur Helgi Pálmason
formaður
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir
varaformaður
Ágúst Máni Aðalsteinsson
aðalmaður
Sunna Dögg Guðmundsdóttir
aðalmaður
Ingvi Þór Sigurðsson
aðalmaður
Dagbjört Ýr Kiesel
Bryndís Bjarnarson
umhverfis- og framkvæmdastjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Dagbjört Ýr Kiesler
Tómstundafulltrúi
Dagskrá
1.
Kynning á stjórnsýslu sveitarfélagsins
Bryndís Bjarnason upplýsinga- og gæðastjóri kynnti stjórnsýslu sveitarfélagsins. Fór með fulltrúa ungmennaráðs í heimsókn til starfsmanna í Ráðhúsi og fór svo yfir glærusýningu þar sem hún fór yfir skiplagsatriði er varða stjórnsýslu sveitarfélagsins.
2.
Ungmennaþing
Ragnhildur Jónsdóttir fræðslustjóri kom og ræddi við fulltrúa varðandi ungmennaþing sem stefnt er á að halda í mars 2015. Farið var yfir árhersluatriði á ungmennaþingi sem haldið var í Hafnarfirði og Grindavík og í framhaldi af því rætt um hvernig hægt væri að framkvæma slíkt þing hér á Hornafirði. Ákveðið að ungmennaráð skipuleggi dagskrá sem síðan verður borin undir Ragnhildi og Bryndísi sem munu skipuleggja þingið ásamt starfsmanni og fulltrúum ráðsins. Ungmennaráð samþykir að vinna að undirbúningi og framkvæmd ungmennaþings á Hornafirði. Fulltrúar ungmennaráðs skipta með sér verkum og afla sér upplýsinga er varðar málefni ungmenna og framkvæmdir ungmennaþings í öðrum bæjarfélögum. Jafnframt verður leitað til bæjarráðs með fjármögnun þingsins.
3.
Ráðstefna Landsambands Æskukýðsfélaga
Ákveðið að Ágúst Máni Aðalsteinsson og Sunna Dögg Guðmundsdóttir verði fulltrúar ungmennaráðs á ráðstefnunni.
4.
Önnur mál
Hlutverk fulltrúa:
Ákveðið að formaður taki þátt í skipulagningu fundar og dagskrá með starfsmanni ungmennaráðs.
Ákveðið að formaður taki þátt í skipulagningu fundar og dagskrá með starfsmanni ungmennaráðs.