Fara í efni

Ungmennaráð Hornafjarðar

72. fundur
18. maí 2022 kl. 14:15 - 16:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Stígur Aðalsteinsson
Selma Ýr Ívarsdóttir
Alexandra Guðrúnardóttir
Birta Ósk Sigbjörnsdóttir
Maríus Máni Jónsson
Brynja Lind Óskarsdóttir
Petra Rós Jóhannsdóttir
Starfsmenn
Herdís Ingólfsdóttir Waage
Fundargerð ritaði:
Herdís I. Waage Tómstundafulltrúi
Dagskrá
1.
Skuggakosningar 2022
Málsnúmer 202201035
Skuggakosningar yfirstaðnar - hvað fór vel og hvað má bæta til framtíðar.
Ungmennaráð vill byrja á því að þakka öllum þeim ungmennum sem tóku þátt í Skuggakosningum 2022.Kjörsóknin var mjög góð enda var ,,smalað" til þeirra :) Sem þakkarvott fyrir þátttökuna var haldin pizzuveisla og ball á Hafinu þann 17.maí og var mjög góð þátttaka og flest allir sáttir. Það eina sem núverandi ungmennaráð vill koma á framfæri til þeirra ungmennaráða sem eftir koma er að: Byrja undirbúning Skuggakosninga snemma og fá upplýsingar og fræðslu um frambjóðendur/flokka fyrir nemendur. En þetta tókst með ykkar (kjósenda) þátttöku :)
2.
Önnur mál ungmennaráðs
Málsnúmer 201902023
Önnur mál - spurning til ungmennaráðs
Ungmennaráð fékk spurningu sem þau vilja koma hér með á framfæri:

Það vantar klósett aðstöðu, nestisaðstöðu og geymslustað fyrir hjól á motokross brautinni. Er það sveitarfélagsins eða einhverra annarra að uppfylla? Ef það er sveitarfélagsins er þetta þá eitthvað sem er á framkvæmdalista sumarsins?

Spurningunni er vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar og fræðslu- og tómstundanefndar
3.
Humarhátíð 2022
Málsnúmer 202202017
Hugmyndir af aðkomu ungmennaráðs á Humarhátíð. Götuleikhús? Annað sprell í boði ungmennaráðs?
Fulltrúar Ungmennaráðs Hornafjarðar eru til í að hafa aðkomu að Humarhátíð hvort sem er á vegum Leikfélags Hornafjarðar eða Umf. Sindra. Hvetjum við því þessi félagasamtök að hafa samband við starfsmann ungmennaráðs ef óskað er eftir aðkomu þeirra.