Ungmennaráð Hornafjarðar
73. fundur
15. september 2022
kl.
16:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Selma Ýr Ívarsdóttir
formaður
Hekla Natalía Sigurðardóttir
Birta Ósk Sigbjörnsdóttir
Maríus Máni Jónsson
Tómas Nói Hauksson
Erlendur Rafnkell Svansson
Stefán Birgir Bjarnason
Berglind Stefánsdóttir
Magni Snær Imsland Grétarsson
Starfsmenn
Emil Örn Moravek Jóhannsson
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Emil Morávek
Tómstundafulltrúi
Dagskrá
1.
Kosning formans og varaformans - Ungmennaráð
Emil greindi frá hlutverki formans og varaformans áður en gengið var til atkvæða.Formaður:Ungmennaráð kýs formann ráðsins á 1. fundi. Skyldur formansins er að stýra fundum ungmennaráðs ásamt því að deila verkefnum milli þeirra sem ráðið sitja. Formaður hittir verkefnastjóra á fræðslu og frístundarsviði einu sinni í mánuði aukalega fyrir fundi ráðsins til að undirbúa fundardagskrá. Varaformaður: Ungmennaráð kýs sér einnig varaformann á fyrsta fundi ráðsins. Varaformaður hleypur í skarðið fyir formann ef formaður kemst ekki á fund eða til þess að skipuleggja næstu funda. Mikilvægt að formaður og varaformaður verði í góðu samtali.
Formaður: Selma Ýr Ívarsdóttir
Varaformaður: Tómas Nói Hauksson
Samþykkt samhljóma.
Varaformaður: Tómas Nói Hauksson
Samþykkt samhljóma.
2.
Kynning
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi kynnti stjórnsýslu sveitarfélagsins fyrir ungmennaráði.
3.
Tilnefning í nefndir og ráð sem fulltrúar úr Ungmennaráði eiga sæti í.
Farið yfir nefndir og ráð sem fulltrúar ungmennaráðs sitja í. Þær eru annars vegar fastanefndir sveitafélagsins, velferðarnefnd, umhverfis og skipulagsnefnd, fræðslu og frístundanefnda, atvinnu- og menningarmálanefnd og hafnarstjórn. Hins vegar eru það Lýðheilsuráð sem er bakhjarl verkefnisins heilsueflandi samfélag og stýrihópur Barnvæns Sveitafélags. Þegar Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna var lögfestur á Íslandi jókst þörfin fyrir fræðslu um þýðingu hans. Því var ákveðið að Unicef, í samráði við Umboðsmann barna færi af stað með verkefnið; Barnvænt samfélag. Tilgangur með verkefninu er að íslensk stjórnvöld og öll sveitafélög landsins innleiði Barnasáttmálann í sína stjórnsýslu. Í raun má segja að hugsunin sé að starfsfólk ríkis og sveitafélaga noti sjónarhorn barna í öllum sínum verkefnum, stefnumótun og ákvörðunum.
Fræðslu- og frístundanefnd: Aðalmaður: Birta Ósk Sigbjörnsdóttir / Varamaður: Berglind Stefánsdóttir
Velferðarnefnd: Aðalmaður: Aðalmaður: Berglind Stefánsdóttir - Varamaður: kemur síðar
Umhverfis- og skipulagsnefnd: Aðalmaður: Magni Snær Imsland - Varamaður Stefán Birgir Bjarnason.
Atvinnu- og menningarmálanefnd: Aðalmaður: Selma Ýr Ívarsdóttir - Varamaður; kemur síðar.
Hafnarstjórn: Sigursteinn Ingvar Traustason - Varamaður: Stefán Birgir Bjarnason
Barnvænt sveitarfélag: Stefán Birgir Bjarnason, Birta Ósk Sigbjörnsdóttir og svo vantar einn í viðbót.
Lýðheilsuráð: Aðalmaður: Tómas Nói Hauksson - Varamaður: Berglind Stefánsdóttir
Velferðarnefnd: Aðalmaður: Aðalmaður: Berglind Stefánsdóttir - Varamaður: kemur síðar
Umhverfis- og skipulagsnefnd: Aðalmaður: Magni Snær Imsland - Varamaður Stefán Birgir Bjarnason.
Atvinnu- og menningarmálanefnd: Aðalmaður: Selma Ýr Ívarsdóttir - Varamaður; kemur síðar.
Hafnarstjórn: Sigursteinn Ingvar Traustason - Varamaður: Stefán Birgir Bjarnason
Barnvænt sveitarfélag: Stefán Birgir Bjarnason, Birta Ósk Sigbjörnsdóttir og svo vantar einn í viðbót.
Lýðheilsuráð: Aðalmaður: Tómas Nói Hauksson - Varamaður: Berglind Stefánsdóttir
4.
Siðareglur kjörinna fulltrúa 2022
Bæjarstjórn lagði til að siðareglurnar verði teknar upp til endurskoðunar í nefndum og bæjarráði.
Ungmennaráð gerir ekki athugasemd við siðareglurnar.
5.
Valdeflandi námskeið fyrir ungmennráð
Valdeflandi námskeið fyrir Ungmennaráð. 28. september frá 17:00 - 20:00.Hugrún Harpa Reynisdóttir mun kynna það fyrir Ungmennaráði.
Hugrún Harpa kynnti Nýheima þekkingarsetur fyrir ungmennaráði og Valdeflandi námskeið fyrir Ungmenni sem fram fer í Nýheimum 28.September. Einnig var talað um framtíðar viðfangsefni.
6.
Tilnefning í Ungmennaráð Suðurlands
Aðalmaður: Selma Ýr Ívarsdóttir
Varamaður: Tómas Nói Hauksson
Varamaður: Tómas Nói Hauksson
7.
Menntahvöt - Framlag ungmennaráða á Suðurlandi
Erindi frá Háskólafélagi Suðurlands beiðni um fralag ungmennaráðs sveitarfélaga á Suðurlandi til Menntahvatar.
Farið var yfir um hvað Menntahvöt snýst og dagsetningar. Ungmennaráð fékk afhenta könnun til að lesa yfir. Starfshópur mun svo hittast og klára beiðnina fyrir 15.oktober.