Ungmennaráð Hornafjarðar
74. fundur
10. október 2022
kl.
16:30
-
17:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Selma Ýr Ívarsdóttir
formaður
Hekla Natalía Sigurðardóttir
Birta Ósk Sigbjörnsdóttir
Maríus Máni Jónsson
Tómas Nói Hauksson
Erlendur Rafnkell Svansson
Stefán Birgir Bjarnason
Berglind Stefánsdóttir
Magni Snær Imsland Grétarsson
Patrekur Máni Ingólfsson
Starfsmenn
Emil Örn Moravek Jóhannsson
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Emil Morávek
verkefnistjóri á fræðslu- og frístundasviði
Dagskrá
1.
Tilnefning í nefndir og ráð - ungmennaráð
Ungmennaráð á eftir að skipa varafulltrúa í tvær fastanefndir, atvinnu- og menningarmálanefnd og velferðanefnd og þrjá fulltrúa í stýrihóp Barnsvæns sveitarfélag.
Í atvinnu og menningarmálanefnd, varamaður Erlendur Rafnkell Svansson
Í velferðarnefnd, varamaður Stefán Birgir Bjarnason
Barnvænt sveitarfélag, fulltrúar Stefán Birgir Bjarnason, Birta Ósk Sigbjörnsdóttir og Hekla Natalía Sigurðardóttir
Í velferðarnefnd, varamaður Stefán Birgir Bjarnason
Barnvænt sveitarfélag, fulltrúar Stefán Birgir Bjarnason, Birta Ósk Sigbjörnsdóttir og Hekla Natalía Sigurðardóttir
2.
Menntahvöt - Framlag ungmennaráða á Suðurlandi
Förum yfir hverju nemendur í FAS svöruðu í Menntahvöt. Sjáum hvort við getum skilað því eða hvort það þurfi að koma því í betra ferli.
Starfshópur hafði hist og farið yfir umræðuefnið og skoðað vinnuskjal sem þau höfðu sett athugasemdir inn í. Hópurinn hafði svo vísað málinu á nemendur í FAS og hvað þau beðið þá um að koma með sínar hugmyndir. Farið var yfir nokkur atriði sem komu út úr því en hópurinn hefur ákveðið að hittast einu sinni enn og fara betur yfir málin. Ákveðið að nokkrir úr ungmennaráði hittist 12. október klukkan 13:00 og klári að fara yfir umræðuna og skili niðurstöðum í kjölfarið.
3.
Ungmenni og Afþreying
Öðru hverju hefur vaknað upp umræða með ungmennahús, og þá sérstaklega aðstöðu fyrir ungmenni sem eru á aldrinum 16 - 24 ára. Ungmenni á Hornafirði hafa fengið Þrykkjuna til afnota tvisvar í viku undanfarin ár. Er það nóg? Getum við gert betur?Hvað getum við gert ef við viljum gera betur?Hvaða hugmyndir hefur ungmennaráð um aðstöðu fyrir krakka á þessum aldri?
Ungmennaráð sér mikla möguleika í hugmyndinni um Ungmennahús og vill halda áfram með þá umræðu. Ungmennahús er þó langtímaverkefni sem þarf að útfæra vel og í samráði við alla hlutaðeigandi. Mikilvægast er að nóg sé um að vera og vill Ungmennaráð standa að viðburðum sem ná þvert á aldur og skóla.
Skólahreystisbraut í sundlauginni var hlutur sem fundarmenn höfðu heyrt talað um og fannst spennandi og velta fyrir sér hvað hafi orðið um þá umræðu. Þau töldu að slík leiktæki í sundlauginni væru mjög jákvæð fyrir alla. Einnig komu fram allskonar skoðanir um opnu svæðin og nýtingu þeirra og sjá fundarmenn mikla möguleika í hreystibrautum og afþreyingu á útisvæðum til að stuðla að félagslífi.
Upp kom hugmynd um hreystikeppni milli ungmenna í Hornafirði sem ungmennaráð myndi halda.
Var ákveðið að boða til hugmyndaflæði fundar þriðjudaginn 25. október klukkan 19:00 og fara yfir slíkan viðburð ásamt fleiru.
Skólahreystisbraut í sundlauginni var hlutur sem fundarmenn höfðu heyrt talað um og fannst spennandi og velta fyrir sér hvað hafi orðið um þá umræðu. Þau töldu að slík leiktæki í sundlauginni væru mjög jákvæð fyrir alla. Einnig komu fram allskonar skoðanir um opnu svæðin og nýtingu þeirra og sjá fundarmenn mikla möguleika í hreystibrautum og afþreyingu á útisvæðum til að stuðla að félagslífi.
Upp kom hugmynd um hreystikeppni milli ungmenna í Hornafirði sem ungmennaráð myndi halda.
Var ákveðið að boða til hugmyndaflæði fundar þriðjudaginn 25. október klukkan 19:00 og fara yfir slíkan viðburð ásamt fleiru.
4.
Ungmennaráð Útávið
Mikill áhugi er að virkja ungmennaráðið betur, svo það verði sýnilegra gagnvart nemendum FAS og GH. Hvaða hugmyndir hefur ungmennaráði til að gera ráðið sýnilegra og áhugaverðara? Getum við poppað upp umræður á samfélagsmiðlum sem ungmennaráð stendur fyrir? Hvernig umræða væri það?
Ákveðið var að á starfsfundinum 25.október klukkan 19:00 yrði einnig farið yfir ungmennaráð á samfélagsmiðlum og hvernig yrði staðið að því að kynna það.
5.
Loftslagsskóla Unga Fólksins (LUNG).
Laugardaginn 1.október var vísindakaffi í Nýheimum á Höfn sem Rannsóknarsetur HÍ sem stóð fyrir. Þar var Arndís Ósk Magnúsdóttir m.a. með erindi. Hún kynnti skýrslu sem ber yfirskriftinna „Ungt fólk og útsýnið á loftslasbreytingar“ en þessa skýrslu vann hún fyrir Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Hornafirði. Í kjölfarið þessa viðburðar hafa vaknaði pæling um frekara samstarf Rannsóknarsetursins við ungmenni Hornafjarðar og að gera ungmennaráð leiðandi í þeirri umræðu. Ein hugmyndin er t.d. LUNG eða Loftslagsskóli unga fólksins. Arndís og fulltrúar Ransóknasetursins vilja kynna hugmyndina frekar fyrir ungmennaráði og í framhaldi taka vinnustofu þar sem rætt verður um pælingar unga fólksins.
Umræðuefnið var kynnt lauslega fyrir ungmennaráði.
6.
Ungt Fólk og Heimsmarkmiðin
Miðvikudaginn 12. október bjóða Nýheimar þekkingarsetur ungum Hornfirðingum á fund um Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Ungmennaráð er sérstaklega hvatt til að mæta og hvetja annað ungt fólk til að koma.
Erindið var kynnt fyrir fulltrúum ungmennaráðs og þeir hvattir til þess að mæta.