Ungmennaráð Hornafjarðar
75. fundur
14. nóvember 2022
kl.
16:30
-
17:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Selma Ýr Ívarsdóttir
formaður
Hekla Natalía Sigurðardóttir
Tómas Nói Hauksson
Erlendur Rafnkell Svansson
Stefán Birgir Bjarnason
Berglind Stefánsdóttir
Patrekur Máni Ingólfsson
Starfsmenn
Emil Örn Moravek Jóhannsson
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Emil Morávek
verkefnistjóri á fræðslu- og frístundasviði
Dagskrá
1.
Innleiðing Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna
Barnaþingið var haldið 3 -4. Nóv 2021. Fyrri daginn voru börn á aldrinum 6 - 10 ára og seinni daginn börn á aldrinum 11 - 18 ára. Samkvæmt innleiðingarferli á barnvænu sveitarfélagi á að kynna niðurstöðurnar fyrir börnum sem tóku þátt. Sigrún Bessý Guðmundsdóttir er starfsmaður barnvæns sveitarfélags í Sveitarfélaginu Hornafirði. Hugmyndin er að fá ungmennaráð með í kynningu á niðurstöðum barnaþings og jafnvel sjá um hana.Bessý verður gestur á fundinum.
Ungmennaráði var kynnt málið og hvernig á að standa að kynningum og eru þau til í að taka þátt. Næstu skref eru í höndum verkefastjóra og boðaður verður vinnufundur þar sem kynningar verða settar samann.
2.
Ungmennaráð - aukafundir
Aukafundur ungmennaráðs var haldinn í Þrykkjunni mánudaginn 25.október.En aukafundirnir eru kallaðir "partýfundir". Fundargerð partýfundar verður lögð hér fyrir til samþykktar og verða nokkur atriði fundarins rædd sérstaklega í næstu liðum. Stefnt er að næsta partýfundi þriðjudaginn 29. nóvember kl. 18:00 - 20:00.
Farið var yfir fundargerð aukafundar. Næsti aukafundur verður þriðjudaginn 29. nóvember kl 19:00 - 21:00.
3.
Ungmenni og afþreying
Í umræðunni Ungt fólk og afþreying hefur kvikmyndahús komið nokkrum sinnum til tals. Ungmennaráð vill gera sitt til að það verði að veruleika.
Farið var yfir hvaða rými eru til staðar og hvað þarf til að gera þau að alvöru sýningarsölum. Þá var rætt um bíósalinn í Sindrabæ og fjölnota sýningarhúsnæði. Fulltrúar ráðsins ætla að taka málið fyrir á aukafundi, spá í kostnaði og hvað Sveitarfélagið getur gert svo hægt sé að festa kaup á viðurkenndum sýningarbúnaði.
4.
Ungmennaráð útávið
Ungmennaráð Hornafjarðar vill vekja meiri athygli á sýnum störfum og hefur því búið til Tik Tok reikning ofan á Instagram reikning sem var þegar til. Hugmyndin er að vekja athygli á fundum og öðru starfi ungmennaráðs. Verkáætlun og handrit um næstu skref verða kynnt á fundinum.
Unnið er að leikplani í samræmi við næstu verkefni Ungmennaráðs.
5.
Ungmennaráð - Indjánaleikarnir
Indjánaleikarnir eru hreystileikar sem ungmennaráð Hornafjarðar ætlar að standa að.Ungmennaráð langar til þess að leikarnir vígi Hreystibrautinna sem á að rísa á skólasvæðinu. Ef hreystibrautin verður ekki tilbúin í náinni framtíð þá mun ungmennaráð finna aðrar leiðir til að láta hugmyndina ganga upp.Tómas Nói og Erlendur Rafnkell fengu það verkefni að þróa hugmyndina betur og vilja kynna nýjustu vendingar í því máli á þessum fundi.
Hugmyndin er metnaðarfull og þarfnast frekari vinnu en skemmilegast hafði verið að geta haldið hana í tengingu við nýja hreystibraut sem er á teikniborðinu. Þar sem hreystibrautinn er enn þá á hönnunarstigi þá horfa skipuleggjendur að því að finna aðrar leiðir og eru leikarnir því enn í þróun.
Verkefnastjóra á fræðslu og frístundarsviði er falið að finna tímasetningu á vormánuðum og fulltrúar ráðsins munu hanna leikana betur.
Verkefnastjóra á fræðslu og frístundarsviði er falið að finna tímasetningu á vormánuðum og fulltrúar ráðsins munu hanna leikana betur.
6.
Loftslagsskóli unga fólksins (LUNG).
Í Kjölfarið á vísindakaffi í Nýheimum á Höfn á vegum Rannsóknarsetur HÍ, kom upp hugmynd að verkefni sem ætti að liggja hjá ungmennaráði. Loftaslagsskóli unga fólksins eða LUNG. Hugmyndin er að koma upp vinnudegi með Ardísi Ósk Magnúsdóttur og fulltrúum háskólasetursins og fara betur yfir verkefnið. Vinnudagurinn yrðið ætlaður ungmennaráði, Arndísi Ósk Magnúsdóttur, Þorvarði Árnasyni og Hugrúnu Hörpu Reynisdóttur. Horfum á myndband:https://www.youtube.com/watch?v=5vMTK-tzCEA Frétta á ruv.ishttps://www.ruv.is/sjonvarp/spila/kastljos/32276/9jpreg/motmaeli-umhverfissinnaFyrilestur Arndísarhttps://www.youtube.com/watch?v=0tIu_1M_PXo
Kynning á LUNG (Loftslagskóla unga fólksins)
Fallist var á vinnudag, mánudaginn 19.desember í Nýheimum. Verkefnastjóra falið að skipuleggja daginn í samvinnu við Rannsóknarsetur HÍ.
Fallist var á vinnudag, mánudaginn 19.desember í Nýheimum. Verkefnastjóra falið að skipuleggja daginn í samvinnu við Rannsóknarsetur HÍ.
7.
Ungmennaráð skilaboð til fastanefnda og bæjaráðs
Ungmennaráð mun koma skilaboðum til fastanefnda og bæjarráðs.
Atriði sem ungmennaráð óskar eftir að tekin verði til umfjöllunar eru;
-að lýsing verði skoðuð á strandstígnum.
-að fulltrúar ungmennaráðs fái að taka þátt í umræðu um uppbyggingu á nýju íþróttasvæði og íþróttahúsi.
-að lýsing verði skoðuð á strandstígnum.
-að fulltrúar ungmennaráðs fái að taka þátt í umræðu um uppbyggingu á nýju íþróttasvæði og íþróttahúsi.
8.
Ungmennaráð sameginlegur fundur með bæjaráði
Samkvæmt erindisbréfi ungmennaráðs skal a.m.k. vera einn sameiginlegur fundur með bæjarráði og ungmennaráði á ári.Bæjarráð hefur fallist á að sá fundur verði 9.janúar kl 16:30 en það er á föstum fundartíma ungmennaráðs.
Ungmennaráð hlakkar til að funda með bæjaráði.