Ungmennaráð Hornafjarðar
76. fundur
12. desember 2022
kl.
16:30
-
18:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Selma Ýr Ívarsdóttir
formaður
Hekla Natalía Sigurðardóttir
Birta Ósk Sigbjörnsdóttir
Maríus Máni Jónsson
Tómas Nói Hauksson
Erlendur Rafnkell Svansson
Stefán Birgir Bjarnason
Berglind Stefánsdóttir
Magni Snær Imsland Grétarsson
Patrekur Máni Ingólfsson
Starfsmenn
Emil Örn Moravek Jóhannsson
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Emil Morávek
verkefnistjóri á fræðslu- og frístundasviði
Dagskrá
1.
Tilnefning í nefndir og ráð - ungmennaráð
Það hefur oft vantað áheyrnarfulltrúa ungmennaráðs á fundi með umhverfis- og skipulagsnefnd. Ungmennaráð þarf því að tilnefna varafulltrúa.
Aðalmaður er Magni Snær Imsland og varamaður er Stefán Birgir Bjarnason.
Þar sem fundir ungmennaráðs og umhverfis- og skipulagsnefndar bera stundum upp á sama dag var farið yfir verkáætlun til að tryggja að fulltrúi ungmennaráðs komist á fund umhverfis- og skipulagsnefndar.

2.
Ungmennaráð - Aukafundir
Þann 29. nóvember síðastliðinn var svokallaður auka fundur ungmennaráðsÞar voru nokkur málefni rædd. -Innleiðing Barnasáttmálans og unnið að kynningu bæði fyrir framhaldsskólann og Grunnskólann. -Ungmenni og afþreying. -Indjánaleikarnir
Aukafundur ungmennaráðs gekk vel.
Stærsti hluti fundarins fór í að skipuleggja kynningar á niðurstöðu barnaþings en Sigrún Bessý Guðmundsdóttir verkefnisstjóri Barnvæns sveitarfélags hafði óskað eftir samstarfi við ungmennaráð með þá kynningu.
Einnig var farið yfir hugmyndir Bíóklúbbsins um Bíóloftið.

3.
Innleiðing Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna
Sigrún Bessy Guðmundsdóttir verður gestur á fundinum. Hún fer yfir niðurstöður barnaþing og hvernig fulltrúar ungmennaráðs lesa í niðurstöðurnar.
Sigrún Bessý Guðmundsdóttir fór yfir niðurstöður Barnaþings, út á hvað Barnvænt sveitarfélag gengur og hvar við erum stödd í innleiðingarferlinu. Ungmennaráð mun taka virkan þátt í innleiðingu á Barnvænu sveitarfélagi. Fulltrúar ungmennaráðs í stýrihópi Barnvæns sveitarfélags eru: Stefán Birgir Bjarnason, Birta Ósk Sigbjörnsdóttir og Hekla Natalía Sigurðardóttir.
4.
Ungmennaráð, sameginlegur fundur með bæjaráði
Þann 9.janúar 2023 verður sameiginlegur fundur bæjarráðs Hornafjarðar og ungmennaráðs. Umræður um mál sem ungmennaráð telur gott að taka fyrir á þeim fundi.
Ungmennaráð er fullt tilhlökkunar fyrir sameiginlegum fundi með bæjarráði.
Verkefnisstjóri á fræðslu og frístundarsviði fór yfir nokkra hluti til hugvíkkunar og undirbúnings fundarins. Þar má telja ný útgefna fjárhags og framkvæmdaáætlun sveitarfélagsins fyrir 2023, innleiðingu heildarstefnunnar "Hornafjörður náttúrulega" og hugmyndir um íþróttamannvirki.
Staldrað var við á málum sem sneru að leikvöllum, leikskólum, nýjum íbúðarsvæðum og framtíðaruppbyggingu íþróttamannvirkja, bíói og bakaríi.