Fara í efni

Ungmennaráð Hornafjarðar

77. fundur
9. janúar 2023 kl. 16:30 - 17:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Selma Ýr Ívarsdóttir formaður
Birta Ósk Sigbjörnsdóttir
Maríus Máni Jónsson
Tómas Nói Hauksson
Erlendur Rafnkell Svansson
Patrekur Máni Ingólfsson
Alexandra Guðrúnardóttir
Starfsmenn
Emil Örn Moravek Jóhannsson
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Emil Morávek verkefnistjóri á fræðslu- og frístundasviði
Dagskrá
1.
Ungmennaráð sameginlegur fundur með bæjaráði
Málsnúmer 202211033
Sameiginlegur fundur bæjarráðs Hornafjarðar og ungmennaráðs. Stefnt er á umræður milli ráðana, fjárhagsáætlun, nefndarsetu og annað.
Ungmennaráð Hornafjarðar fór yfir þau mál sem hafa verið til umræðu á fundum ungmennaráðs.
Áhugi á þáttöku á uppbyggingu og þróun á íþróttasvæðum.
Hluti sem vantar á Höfn, eins og bíó og bakarí.
Einnig var farið yfir niðurstöður frá Barnaþingi og innleiðingu á Barnvænu Sveitarfélagi.
Næstu verkefni, ungmennaþing, loftlagsskóli unga fólksins og Höfn í Hafnarfirði.
Í kjölfarið varð mikið samtal um ofangreinda hluti ásamt öðru eins og stefnuna Hornafjörður nátturulega, seinkun grunnskólans, hreystibrautina og upplifun ungmennaráðs á nefndarstörfum.

Bæjarráð stefnir að því að vísa fleiri en færri málum til umræðu hjá ungmennaráði.

2.
Höfn í Hafnarfirði
Málsnúmer 202212135
Samstarfsverkefni ungmennaráðs Hafnarfjarðar og ungmennaráðs Hornafjarðar sem hlotið hefur styrk frá Erassmus.
Ungmennaráð Hornafjarðar kynnti samstarfsverkefni við Ungmennaráð Hafnafjarðar sem unnið er undir vinnuheitinu Höfn í Hafnarfirði og hlaut nýverið veglegan styrk frá Evrópusambandinu til samstarfsins.