Fara í efni

Ungmennaráð Hornafjarðar

78. fundur
13. febrúar 2023 kl. 16:30 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Selma Ýr Ívarsdóttir formaður
Hekla Natalía Sigurðardóttir
Birta Ósk Sigbjörnsdóttir
Maríus Máni Jónsson
Tómas Nói Hauksson
Erlendur Rafnkell Svansson
Stefán Birgir Bjarnason
Berglind Stefánsdóttir
Patrekur Máni Ingólfsson
Alexandra Guðrúnardóttir
Starfsmenn
Emil Örn Moravek Jóhannsson
Fundargerð ritaði:
Emil Örn Morávek verkefnistjóri á fræðslu- og frístundasviði
Dagskrá
1.
Hornafjörður náttúrulega
Málsnúmer 202301036
Bæjarráð vísar heildarstefnu sveitarfélagsins Hornafjörður náttúrulega til kynningar í nefndum og ráðum sveitarfélagsins. Bæjarstjóri mætir á fundinn og kynnir stefnuna.
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri fór yfir innleiðingu stefnunnar Hornafjörður náttúrulega. Hann endaði kynninguna á að segja frá hugmynd um vistþorp út í Mikley. Hann sýndi drónamyndir af Mikley og ræddi lauslega hverskonar þorp fælist í þessari hugmynd.
2.
Kynningar á fastanefndum
Málsnúmer 202302002
Ungmennaráð fær í heimsókn sviðsstjóra sem kynna út á hvað nefndin þeirra gengur. Á þessum fundi fræðir Erla Björg Sigurðardóttir sviðsstjóri á velferðarsvið ungmennaráð um velferðarsviðið.
Erla Björg Sigurðardóttir sviðsstjóri á velferðarsviðinu fór yfir störf velferðarsviðs og skyldur þess.
3.
Íþróttahús - hönnun á nýju íþróttahúsi á Höfn
Málsnúmer 202206057
Fulltrúar ungmennaráðs hafa setið á hönnunarfundum um íþróttamannvirki. Umræða í ungmennaráði um málið.
Þórgunnur Torfadóttir sviðsstjóri á fræðslu- og frístundarsviði hefur haldið utan um verkefnið um uppbyggingu íþróttamannvirkja. Hún fór stöðuna í verkefninu og spurði ungmennaráð um þeirra upplifun á fundunum og hvað þau vildu leggja áherslu á.

Farið var yfir teikningar og myndir og fóru fulltrúar ungmennaráðs sem setið hafa á fundunum um uppbyggingu á íþróttamannvirkjum yfir sínar skoðanir og hvað þau taka út úr umræðunni. Eftir lauflétt samtal fór ungmennaráð yfir allskonar hluti sem þeim finnst vanta í íþróttamálunum hérna á Höfn. Þar var meðal annars rætt um eftirfarandi.
- Fleiri líkamsræktartæki í sundlaugina.
- Passa að það verði hiti undir gervigrasinu svo það sé hægt að nota það á veturna.
- Frítt í nýju ræktina fyrir nemendur eða a.m.k niðurgreitt og vitnuðu í önnur sveitarfélög.
- Ánægju að setja á upp hreystibraut, en það þá á eftir að ákveða hvar hún á að vera og trúlega þarf að ákveða það í samhengi við skipulagið á íþrótta- og skólasvæðinu.
- Mikilvægi þess að fá fimleikana út á Höfn í betra húsnæði
- Fá handboltaþjálfara á Höfn.

Einnig var rætt um þörfina í íþróttamannvirkjum og í hvaða röð á að framkvæma hlutina. Ungmennaráð telur að eftirtalandi forgangsröðun sé mikilvægust.

Nr 1. Ákveða staðsetningu og hönnun á íþróttahúsi
Nr 2. Fara í jarðvegskiptingu á öllu svæðinu í samræmi við það.
Nr 3. Gera gervigras og tartanbraut
Nr 4. Byggja svo íþróttahús.

Ungmennaráð talar líka um að þegar fimleikarnir flytjist út á Höfn þá eigi að breyta Mánagarði í alvöru menningarhús og leikhús.
Að lokum vill ungmennaráð vísa því til allra nefnda sem koma að uppbygging og þróun íþróttamannvirkja að málum sé vísaðar til ungmennaráðs til umsagnar.
4.
Tilnefning í nefndir og ráð - ungmennaráð
Málsnúmer 202209040
Fulltrúaskipti hafa orðið innan ungmennaráðs þar sem Magni Snær Imsland hefur sagt sig úr ráðinu. Í staðin hefur framhaldsskólinn boðað inn Alexöndru Guðrúnardóttur sem var næst á eftir Magna í kosningu. Þetta hefur áhrif á skipanir í nefndir og þarf að fara yfir fulltrúa og varafulltrúa í umhverfis- og skipulagsnefnd.
Stefán Birgir Bjarnason hefur verið varamaður í umhverfis- og skipulagsnefnd en verður núna aðalmaður eða áheyrnarfulltrúi ungmennaráðs. Alexandra Guðrúnardóttir verður varamaður Stefáns.

5.
Höfn í Hafnarfirði
Málsnúmer 202212135
Farið yfir fundargerð frá 24. janúar ásamt því sem starfshópur fer yfir nýjustu vendingar í sínum málum.
Í stýrihópi ungmennaráðs Hornafjarðar í verkefninu "Höfn í Hafnarfirði" eru;
Alexandra Guðrúnardóttir
Birta Sigbjörnsdóttir
Stefán Birgir Bjarnason.
Alexandra Guðrúnardóttir formaður vinnuhóps "Höfn í Hafnarfirði" kynnti stöðuna á verkefninu og hvað hefur farið fram á vinnufundunum. Hún ásamt Birtu og Stefáni sem einnig eru í starfshópnum sögðu frá skipulaginu og hvernig vinnunni miðar áfram. Ungmennaráðin tvö hafa verið að vinna með eftirfarandi spurningu. "Endurspeglar okkar ungmennaráð fjölbreytileika samfélagsins?"
6.
Ungmennaráðsfundir á skóla og vinnutíma
Málsnúmer 202301097
Ungmennaráð er ein mikilvægasta röddin í samfélaginu. Við erum að þróa betra samfélag fyrir börnin okkar. Þá er mikilvægt að virkja áhuga þeirra á þátttöku á slíkri þróun og hvetja þau til að taka þátt. Væri vænlegra að hafa fasta fundi ungmennaráðs á skóla og vinnutíma?
Ungmennaráð vill endilega skoða hvort hægt sé að hafa fundi ungmennaráðs skóla og vinnutíma. Starfsmanni á fræðslu og frístundarsvið falið að athuga hvort skólastjórnendur tækju vel í slíka hugmynd og einnig að athuga viðhorf atvinnulífsins til þess.
7.
Humarhátíð
Málsnúmer 202301049
Atvinnu- og menningarmálanefnd vinnur að skipulagningu Humarhátíðar. Hátíðin verður 30 ára í ár og ákveðið hefur verið að auglýsa eftir aðilum sem vilja taka að sér að skipuleggja og sjá um hátíðina. Nefndin hefur unnið að því að móta ramma utan um hátíðina og hyggst leggja lokahönd á það fyrir næsta fund nefndarinnar. Mikilvægt er að sem flestir í nærsamfélaginu leggi hönd á plóg til að gera hátíðina sem besta og atvinnu- og menningarmálanefnd óskar sérstaklega eftir aðkomu ungmenna- og öldungaráðs.
Ungmennaráð mun ræða þetta sín á milli.