Fara í efni

Ungmennaráð Hornafjarðar

79. fundur
13. mars 2023 kl. 16:30 - 17:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Selma Ýr Ívarsdóttir formaður
Hekla Natalía Sigurðardóttir
Birta Ósk Sigbjörnsdóttir
Maríus Máni Jónsson
Tómas Nói Hauksson
Erlendur Rafnkell Svansson
Stefán Birgir Bjarnason
Berglind Stefánsdóttir
Patrekur Máni Ingólfsson
Alexandra Guðrúnardóttir
Starfsmenn
Emil Örn Moravek Jóhannsson
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Emil Morávek verkefnistjóri á fræðslu- og frístundasviði
Dagskrá
1.
Ungmennaráð - Fræðsla og frístundanefnd
Málsnúmer 202303011
Samkvæmt erindisbréfi ungmennaráðs þá á að vera sameiginlegur fundur ungmennaráðs og fræðslu- og frístundarnefndar einu sinni á ári. Fræðslu og frístundanefnd mætir á fundinn. Umræðuefnið verður opið þar sem aðallega er verið að ræða störf ungmennaráðs og opna samtalið á milli ungmennaráðs og fræðslu- og frístundanefndar.
Fulltrúar fræðslunefndar spurðu út í þau verkefni sem Ungmennaráð hefur verið að vinna að og hvernig gengi með Höfn í Hafnarfirði verkefnið. Alexandra fór yfir hvað þau hafa verið að gera, út á hvað rannsóknarverkefnið gengur og hvernig þau ætla að skila niðurstöðum en ungmennaráðin tvö sjá fyrir sér að gera myndband.
Rannsóknarspurningin sem unnið er með er "Hvort ungmennaráðið endurspegli samfélagið?". Nokkur umræða var um hana, hvort hægt sé að ná til fjölbreyttari hóps eins og ungmenna úr sveitunum og ungmenna af erlendum uppruna.
Þá voru hugmyndir ungmennaráðs um að færa fundartíma yfir á skóla og vinnutíma ræddar og hvernig það kæmi út gagnvart fulltrúum atvinnulífsins.

Fulltrúar fræðslu og frístundarnefndar yfir sín störf og hvað heyrir undir þeirra svið. Eftir umræður kvöddust ráðin tvö og óskaði fræðslunefnd eftir því að ungmennaráð vísaði málum á þeirra borð. Ungmennaráð hvatti fræðsla og frístundarnefnd sömuleiðis til að vísa málum á borð ungmennaráðs.
2.
Mannréttindastefna
Málsnúmer 202301007
Unnið er að mannréttindastefnu Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Hvað er mannréttindastefna?Af hverju þurfum við að hafa mennréttindastefnu?Hvað hefur mannréttindastefna að gera með ungmennaráð.Eyrún Fríða Árnadóttir forseti bæjarráðs mætir á fundinn, en hún leiðir störf nefndarinnar sem fer fyrir mannréttindastefnunni.
Eyrún byrjaði á að svara þeim spurningum sem eru í inngangi. Að því loknu var rætt um mannréttindi, hver sýn ungmennaráðs er á mannréttindi og mikilvægi þeirra.

Eyrún mun vísa mannréttindastefnunni til ungmennaráðs þegar vinnsla hennar verður komnin lengra á veg og sérstök áhersla lögð á að þau skoði einstaka kafla hennar s.s. kaflann um aldur.


3.
Höfn í Hafnarfirði
Málsnúmer 202212135
Ungmennaráð Hornafjarðar fer til Hafnarfjarðar 20. - 23. apríl að vinna í verkefninu Höfn í Hafnarfirði. Ungmennaráð Hafnarfjarðar tekur á móti hópnum og leiðir hann í gegnum dagskrá sem ungmennaráðin eru að skipuleggja. Ungmennaráð Hafnarfjarðar er að ath. hvort breyta megi dagsetningu á fyrirhugaðri heimsókn þeirra til Hafnar. Eins og er er heimsóknin áætluð 1 - 4 júni.
Alexandra Guðrúnardóttir fór yfir hvað starfshópurinn hefur verið að gera og hvað er næst á dagskránni hjá þeim. Ungmennaráð Hornafjarðar hefur þegar samþykkt planið og áfram verður unnið skv. því plani.