Fara í efni

Ungmennaráð Hornafjarðar

8. fundur
11. febrúar 2015 kl. 15:00 - 16:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Þorlákur Helgi Pálmason formaður
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir varaformaður
Ágúst Máni Aðalsteinsson aðalmaður
Sunna Dögg Guðmundsdóttir aðalmaður
Ingvi Þór Sigurðsson aðalmaður
Starfsmenn
Dagbjört Ýr Kiesel
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Dagbjört Ýr Kiesler Tómstundafulltrúi
Dagskrá
1.
Lýðræðisleg þátttaka ungmenna á Hornafirði
Málsnúmer 201502031
Dagbjört og Sunna kynntu niðurstöður frá ráðstefnu Landsambands Æskulýðsfélaga. Rætt um ástæður þess að ungt fólk mætir ekki á kjörstað og hvernig ungmennaráð Hornafjarðar getur brugðist við. Ákveðið að vinna áfram að málinu og kynna fyrir bæjaryfirvöldum.
2.
Erindisbréf Ungmennaráðs 2015
Málsnúmer 201502032
Rætt um breytingar á erindisbréfi Ungmennaráðs Hornafjarðar. Óskað eftir því að meðlimir ráðsins verði ekki lengur tilnefndir eftir formennsku heldur verði kosið fulltrúa úr hverjum flokki, þ.e fulltrúi frá USÚ, fulltrúi frá Heppuskóla, fulltrúi frá félagsmiðstöðinni Þrykkjunni, fulltrúi frá Framhaldsskóla Hornafjarðar og óháður fulltrúi. Ungmennaráð leggur einnig til að hluti fulltrúa sé kjörinn til tveggja ára.
3.
Ósk um aukið fjárframlag til ungmennaráðs
Málsnúmer 201502035
Ungmennaráð Hornafjarðar óskar eftir fjárframlagi til að nýta í ferðir og aðra viðburði sem ráðið telur mikilvæga hverju sinni. Starfsmanni er falið að ganga frá málinu í samstarfi við Sunnu Dögg og Sigríði.
4.
Ráðstefna UMFÍ - Ungt fólk og lýðræði
Málsnúmer 201502033
Starfsmaður kynnir ráðstefnu UMFÍ fyrir fulltrúum, Ungt fólk og lýðræði sem haldin verður dagana 25.-27. mars í Stykkishólmi. Tveimur fulltrúum ásamt starfsmanni býðst að fara og ákveðið að það verði Sigríður Þórunn og Þorlákur Helgi.
5.
Ungmennahús á Hornafirði
Málsnúmer 201502034
Fulltrúar ráðsins kynntu niðurstöður úr rannsóknum sínum varðandi ungmennahús víðsvegar á landinu. Ákveðið að draga saman niðurstöður og kynna á ungmennaþingi í mars.
6.
Ungmennaþing
Málsnúmer 201501025
Samþykkt að halda vinnufund til undirbúnings fyrir ungmennaþing mánudaginn 16. febrúar.